Víkurfréttir


Víkurfréttir - 15.09.1988, Síða 17

Víkurfréttir - 15.09.1988, Síða 17
MlKUK jutíit Fimmtudagur 15. september 1988 17 Bjarni Ragnarsson, nýr rekstrarstjóri TRE-X: J Ei r em n ai í á « ta i m ig i í h ili lll tun um úú Bjarni Ragnarsson, rekstrarstjóri TRÉ-X, í verksmiðjusal fyrirtækisins að Iðavöllum. Ljósm.: hbb. Bjarni Ragnarsson, rekstrar- tæknir, 37 ára Reykvíkingur, búsettur í Kópavogi, hefur verið ráðinn rekstrarstjóri hjá Tré- smiðju Þorvaldar Ólafssonar hf. frá 1. september s.l. Eins og áður hefur verið get- ið hér í blaðinu, þá hætti Hlöð- ver Ólafsson, áður verksmiðju- stjóri, hjá Tré-X í febrúars.l. og flutti búferlum til Indónesíu. Blaðamaður hitti Bjarna að máli. „Ég var stýrimaður hjá Eimskip í nokkur ár, síðan lá leiðin í Tækniskóla íslands. 1979 gerðist ég framleiðslu- stjóri hjá Álafoss hf. og starf- aði þar til 1984. Frá Alafossi réðst ég til Kristjáns Sig- geirssonar hf. og starfaði þar sem rekstrarstjóri. Starf mitt þar var rekstur húsgagnaverk- smiðju og verslunar á Hest- hálsi; þar starfaði ég til síðustu mánaðamóta, þegar ég hóf störf hér hjá Tré-X.“ -En hverjir eru fjölskyldu- hagir? „Ég er giftur Sigurveigu Hafsteinsdóttur, deildar- þroskaþjálfa á Kópavogshæli, og eigum við tvö börn, 13 ára stúlku og 8 ára dreng." -I hverju er starfið fólgið? „I stuttu máli er starfið fólg- ið í áætlanagerð, verkefna- stjórnun, fjármálastjórnun, starfsmannahaldi og kem ég sem sagt inn á öll svið reksturs fyrirtækisins. Ég er fulltrúi forstjóra og skiptum við á milli okkar hinum ýmsu verkefn- um.“ -Er að vænta einhverra breyt- inga á rekstri verksmiðjunnar? „Það er nú of snemmt að spyrja um breytingar ennþá. Ég er enn að átta mig á hlutun- um, þar sem ég hef aðeins starfað í eina viku. Mér líst mjög vel á fyrirtæk- ið í heild og starfsmenn þess, sem allir hafa verið mjög hjálpsamir að kynna starfsem- ina. Fyrirtækið er mjög vel tækjum búið og talið vera eitt fullkomnasta tréiðnaðarfyrir- tæki landsins. Afkastageta verksmiðjunnar er mjög mikil og starf mitt mun felast í því að nýta verksmiðjuna sem best í samvinnu með starfsmönnum fyrirtækisins." -Hvað starfa margir hjá fyr- irtækinu? „Að jafnaði starfa hér 36-38 manns. Unnið er á vöktum við framleiðsluna 5 daga vikunn- ar, 16 tíma á dag. Framleiðsluvörur okkar eru aðallega innihurðir, millivegg- ir, vegg- og ioftklæðningar og síðast en ekki síst TRÉ-X spónparket, sem hefur selst framar öllum vonum og höf- um við varla undan eftir- spurn.“ -Er ekki þungt í vöfum að framleiða svona margar teg- undir af vörum? „Eins og ég hef áður sagt er verksmiðjan mjög vel að tækj- um búin og aðal vélalína verk- smiðjunnar er tölvustýrð og tekur stilling vélanna úr einni framleiðsiu í aðra ca. 10-15 mínútur og er framleiðslunni stjórnað samkvæmt eftirspurn frá degi til dags. Þanniggetum við þjónað viðskiptavinum okkar á sem skemmstum tíma. Markmið fyrirtækisins er að framleiða vandaðar bygginga- vörur á samkeppnishæfu verði." Nauðungaruppboð á eftirtöldum fasteignum fer fram í skrifstofu em- bættisins, Vatnsnesvegi 33, fimmtudaginn 22. sept. 1988 kl. 10:00. Birkiteigur 16, Keflavík, þingl. eigandi Jón B. Olsen o.fl. Upp- boðsbeiðandi er Vilhjálmur H. Vilhjálmsson hrl. Brekkustígur 29a, Njarðvík, þingl. eigandi Valur Ingimund- arson. Uppboðsbeiðandi er Bæjarsjóður Keflavíkur. Fífumói 1B, Njarðvík, þingl. eigandi Helgi Magnússon. Uppboðsbeiðandi er Veðdeild Landsbanka íslands. Mávabraut 7, 2. hæð A, Kefla- vík, þingl. eigandi María Haf- dís Ragnarsdóttir. Uppboðs- beiðendur eru: Vilhjálmur H. Vilhjálmsson hrl. og Bæjar- sjóður Keflavíkur. Melbraut 13, Garði, þingl. eig- andi Walter Borgar. Uppboðs- beiðendur eru: Gerðahreppur, Innheimtumaður ríkissjóðs og Brunabótafélag Islands. Njarðvíkurbraut 24, Njarðvík, þingl. eigandi Sigurbjörg Sig- urðardóttir. Uppboðsbeiðend- ur eru: Vilhjálmur H. Vil- hjálmsson hrl. og Brunabóta- félag íslands. Sólvallagata 40 B, Keflavík, þingl. eigandi Ásgeir Svan Vagnsson. Uppboðsbeiðendur eru: Veðdeild Landsbanka ís- lands, Jón G. Briem hdl. og Jón Finnsson hrl. Vallargata 21, Sandgerði, þingl. eigandi Karl Einarsson. Uppboðsbeiðendur eru: Inn- heimtumaður ríkissjóðs, Veð- deild Landsbanka Islands og Ingi H. Sigurðsson hdl. Vallargata 35, Sandgerði, þingl. eigandi Ingimar Sumar- liðason. Uppboðsbeiðandi er Veðdeild Landsbanka íslands. Bæjarfógetinn í Keflavík, Grindavík og Njarðvík. Sýslumaðurinn í Gullbringusýslu. Nauðungaruppboð annað og síðara, á eftir- töldum fasteignum fer fram í skrifstofu embætt- isins, Vatnsnesvegi 33, fimmtudaginn 22. sept. 1988 kl. 10:00. Akurbraut 10, efri hæð, Njarð- vík, þingl. eigandi BrynjarSig- mundsson. Uppboðsbeiðend- ur eru: Bæjarsjóður Keflavík- ur, Veðdeild Landsbanka Is- lands, Brunabótafélag íslands, Valgarður Sigurðsson hrl. Austurgata 3, Sandgerði, þingl. eigandi Ragnar Sigurðs- son o.fl. Uppboðsbeiðendur eru: Iðnaðarbanki Islands h.f. og Vilhjálmur Þórhallsson hrl. Baðsvellir 17, Grindavík, þingl. eigandi Laufey D. Jóns- dóttir. Uppboðsbeiðendur eru: Innheimtumaður ríkissjóðs, Bæjarsjóður Grindavíkur, Veðdeild Landsbanka Islands og Vilhjálmur H. Vilhjálms- son hrl. Bakkastígur 8, Njarðvík, þingl. eigandi Nesberg hf. Uppboðs- beiðandi er Njarðvíkurbær. Brekkustígur 17, miðhæð, Njarðvík, þingl. eigandi Sigríð- ur E. Jónsdóttir, talinn eigandi Vilhjálmur Viihjálmsson. Uppboðsbeiðendur eru: Njarð- víkurbær, Brynjólfur Kjartans- son hrl. og Olafur Gústafsson hrl. Djúpivogur 24, Höfnum, þingl. eigandi Hafnahreppur, talinn eigandi Jónína ísleifs- dóttir. Uppboðsbeiðendur eru: Veðdeild Landsbanka íslands, og Valgeir Kristinsson hrl. Faxabraut 25 C, 2. hæð, Kefla- vík, þingl. eigandi Ragnheiður Pálsdóttir. Uppboðsbeiðendur eru: Veðdeild Landsbanka ís- lands, Þórólfur Kr. Beck hrl. og Tryggingastofnun Ríkisins. Faxabraut 25B, Keflavík, þingl. eigandi Jónas P. Guð- laugsson. Uppboðsbeiðendur eru: Vilhjálmur H. Vilhjálms- son hrl., Bæjarsjóður Keflavík- ur og Ævar Guðmundsson hdl. Faxabraut 30, efri hæð, Kefla- vík, þingl. eigandi Jóhannes Bjarnason. Uppboðsbeiðendur eru: Þorsteinn Eggertsson hdl., Ásgeir Thoroddsen hdl. og Vil- hjálmur H. Vilhjálmsson hrl. Fífumói 4, neðri hæð, Njarð- vík, þingl. eigandi Elísabet Sævarsdóttir. Uppboðsbeið- andi er Tryggingastofnun Rík- isins. Heiðarhvammur 5, íb. 0201, Keflavík, þingl. eigandi Bjarni Kristjánsson. Uppboðsbeið- andi er Veðdeild Landsbanka Islands. Hraunholt 8, Garði, þingl. eig- andi Jóhann Þorsteinsson. Uppboðsbeiðendur eru: Landsbanki Islands, Vilhjálm- ur H. Vilhjálmsson hrl. og Veð- deild Landsbanka íslands. Óbyggt land, svokallað Þrætu- land, þingl. eigandi Keflavík hf. Uppboðsbeiðandi er Bæjar- sjóður Keflavíkur. Selsvellir 13, Grindavík, þingl. eigandi Brynjólfur Óskarsson. Uppboðsbeiðandi er Jón G. Briem hdl. Túngata 12, n.h. Grindavík, þingl. eigandi Ásgerður Andr- easen. Uppboðsbeiðandi er Jón G. Briem hdl. Vallargata 26, kjallari, Kefla- vík, þingl. eigandi Aðalsteinn Aðalsteinsson, talinn eigandi Sólrún Grétarsdóttir. Upp- boðsbeiðendur eru: Ingi H. Sigurðsson hdl. og Veðdeild Landsbanka íslands. Vallargata 33, Keflavík, þingl. eigandi Dánarbú Gunnlaugs Þorgilssonar. Uppboðsbeið- andi er Vilhjálmur H. Vil- hjálmsson hrl. Vogagerði 9, e.h., Vogum, þingl. eigandi Hanna S. Helga- dóttir og Örlygur Kvaran. Uppboðsbeiðandi er Búnaðar- banki Islands. Þórustígur 3, e.h., Njarðvík, þingl. eigandi Ingólfur Vil- hjálmsson og Ásta Jónsdóttir. Uppboðsbeiðendur eru: Ingi H. Sigurðsson hdl., Lands- banki Islands, Vilhjálmur H. Vilhjálmsson hrl. og Veðdeild Landsbanka Islands. Bæjarfógetinn í Keflavík, Grindavík og Njarðvík. Sýslumaðurinn í Gullbringusýslu. Nauðungaruppboð annað og síðasta á m/b Jó- hannesi Jónssyni KE-79, þingl. eigandi Jóhannes Jóhannes- son, fer fram í skrifstofu em- bættisins, Vatnsnesvegi 33, fimmtudaginn 22. september 1988 kl. 10:00. Uppboðsbeið- endur eru: Vilhjálmur H. Vil- hjálmsson hrl., Hákon Árna- son hrl„ Tryggingastofnun Ríkisins og Sigurmar Alberts- son hdl. annað og síðasta á v/s Mumma GK-120, þingl. eigandi Rafn h.f„ fer fram i skrifstofu em- bættisins, Vatnsnesvegi 33, fimmtudaginn 22. september 1988 kl. 10:00. Uppboðsbeið- endur eru: Vilhjálmur H. Vil- hjálmsson hrl. og Trygginga- stofnun Ríkisins. Bæjarfógetinn í Keflavík, Grindavík og Njarðvík. Sýslumaðurinn í Gullbringusýslu.

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.