Víkurfréttir


Víkurfréttir - 27.04.1989, Qupperneq 1

Víkurfréttir - 27.04.1989, Qupperneq 1
197 mkr. til Sandgerðis Samgöngumálaráðherra hefur lagt fyrir Alþingi drög að nýrri hafnarmálaáætlun en slík áætlun gerir grein fyrir hlutdeild ríkissjóðs til hafnarframkvæmda á næstu árum. Að þessu sinni er áætl- að að næst hæsta upphæðin fari til Sandgerðishafnar eða 197 milljónir. Eins og áður hefur komið fram hér í blaðinu veitir ekki af upphæð þessari, svo góð höfn verði í Sandgerði. Þó áætlunin hafi verið lögð fram er hún ekki enn orðin að lög- um og því geta orðið á henni breytingar áður en hún öðl- ast endanlegt samþykki. Eins ber að geta þess að ekki er gert ráð fyrir að þessi upp- hæð komi strax til fram- kvæmda. Innbrot og skemmdar- verk upp- lýst Rannsóknarlögreglunni í Keflavík hefur tekist að hafa hendur í hári afbrotamanna er hafa á samviskunni a.m.k. fjögur innbrot og skemmd- arverk sem verið hafa í frétt- um hér syðra. Um er að ræða innbrotið og skemmdarverkin í útibúi kaupfélagsins í Sandgerði, tvö innbrot í Ljósbogann í Keflavík og eitt í íþróttahús- ið í Sandgerði. Jafnframt hefur fundist viðbótarþýfi i fórum þeirra, en áður hafði fundist stór hluti þess þýfis er stolið var í Ljósboganum. Jón eða Olafur í stjórn- arformannssæti ÍAV? Aðalfundur Íslenskra að- alverktaka s.f. var haldinn í síðustu viku. Samkværrií lög- um skipar utanríkisráðherra stjórnarformann fyrirtækis- ins og hefur hann haft tvö at- kvæði en aðrir stjórnarmenn aðeins eitt atkvæði hver. Fyrir fundinn hafði heyrst að Jón Baldvin Hannibals- son myndi skipa Suðurnesja- mann í stöðu þessa. Var bú- ist við að það yrði annað hvort Ólafur Björnsson eða Jón Norðfjörð. Samkvæmt áreiðanlegum heimildum mótmæftu kratar úr Hafnar- firði og Reykjavík þessum áformum ráðherrans og kröfðust stöðunnar. Hefur Jón Baldvin því frest fram á næsta miðviku- dag til að ákveða hver verði næsti stjórnarformaður fyrirtækisins. Samkvæmt sömu heimildum er talinn möguleiki á að hann skipi nú tvo menn til að fara með þessi tvö atkvæði í stjórninni og yrði annar þeirra Suður- nesjamaður en hinn úr hópi innanaðmanna. Gæti því svo farið að stjórnarformaðurinn yrði af Stór-Reykjavíkursvæðinu, en þá er talið fullvíst að Suð- urnesjamaður fari með hitt atkvæði ríkissjóðs. Baráttu- fundur í Stapa Baráttu- og hátíðarfundur I. maí-nefndar verkalýðsfél- aga á Suðurnesjum fer að þessu sinni fram í Stapa í Njarðvík, en það eru sjö stéttarfélög sem standa að hátíðarhöldum dagsins hér syðra. Hefst fundurinn kl. 14 með setningarávarpi Guð- mundar Finnssonar, fram- kvæmdastjóra VSFK, en Jó- hanna Sigurðardóttir, fél- agsmálaráðherra, er ræðu- maður dagsins. Stutt ávörp flytja Hólmar Magnússon, formaður STKB, og Guðrún Ólafsdóttir, varaformaður VSFK. Margt verður til skemmt- unar á fundinum, s.s. kór- söngur, ljóðalestur og leik- sýning. Þá verða aldraðir baráttumenn heiðraðir. A sama tíma verður ókeypis kvikmyndasýning fyrir börn í Félagsbíói. Að undanförnu hefur mikið borið á stórum þorskum í afla bátanna. Birtist mynd í blaði einu af 37 kg þorski er barst á land í Keflavík og átti hann að vera einn sá stærsti sem borist hefði þar á land. Þeir hjá Isnesi í Keflavík hafa hér með slegið það met, því í síðustu viku kom inn á borð hjá þeim einn 47 kg þungur og hér sýnum við annan, sem vó 41 kíló, og hrognin alls 8+ kíló. Það ereinnstarfsmanna fyrir- tækisins, Sævar Matthíasson, sem heldur hér á þeim gula. Það var netabáturinn Guðrún KE-20 sem veiddi þennan og landaði honum sl. þriðjudag. Ljósm. epj. „HARKALEG AÐFÖR" „Mér finnst þetta mjög harkaleg aðför. Það er með þessu verið að veitast að ein- um vínveitingastað vegna staðsetningarinnar. Samt eru tveir aðrir staðir í Keflavík í íbúðahverfi" sagði Kristján Ingi Helgason, framkvæmda- stjóri Píanó-barsins við Tjarnargötu 31 í Keflavík, en opnunartími staðarins hefur verið styttur að kröfu yfir- valda í kjölfar kvartana er hafa borist vegna hans. Fyrir nokkru síðan lögðu sjö húseigendur fram undir- skriftalista og bréf, þar sem kvartað var yfir starfsemi Píanó-barsins. Kristján Ingi segir að bréfið hafi verið með mörgum ósannindum og þá eigi a.m.k. þrír húseigenda, sem skrifuðu undir listann, heima það langt frá staðnum að erfitt sé að skilja hvað liggi á bak við undirskrift þeirra. „Við höfum farið eftir öll- um settum reglum, höfum haft tvo dyraverði þó við þurfum aðeins að hafa einn, erum með mjög strangt ald- urstakmark (20 ára) og hleypum ölvuðu fólki ekki inn á staðinn. Mér finnst mjög hart þegar örfáir hús- eigendur geta allt að því heimtað að staðnum sé hreinlega lokað. Það er verið að mikla hlutina því hérhafa ekki verið neinar óspektir. Ég get hins vegar fallist á það að vínveitingastaðir eigi ekki að vera staðsettir inni í miðj- um íbúðahverfum en hér í Keflavík eru þeir þrír. Þess vegna finnst mér það rangt að taka einn úr og gera upp á milli þeirra með einhverjum aðgerðum." Opnunartími Píanó-bars- ins hefur verið styttur á með- an málið er í rannsókn hjá bæjarfógeta. Virka daga má ekki vera opið lengur en til 23:30 í stað 01:00 áður og um helgar til kl. 01:00 í stað 03:00 áður. - segir Kristján Ingi Helgason um styttan opnunartíma Píanóbarsins Eígendum Píanóbarsins finnst harkalega að þeim vegið. Ljósm.: cpj.

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.