Víkurfréttir - 27.04.1989, Qupperneq 2
MlKUn
2 Fimmtudagur 27. april 1989
| jútíit
MESSUR
Keflavíkurkirkja
Kxnadagur að vori:
Messa kl. 14 (altarisgangá). Eldri
borgarar boðnir sérstaklega vel-
komnir. Sverrir Guðmundsson
syngur einsöng. Sóknarnefndin
býður til kaffídrykkju í Kirkju-
lundi að lokinni messu.
Sóknarprestur
Grindavíkurkirkja
Hænadagur kirkjunnar:
Bænasamkoma kl. 11:00. Börn
úr Langholtskirkju og Neskirkju
koma í heimsókn.
Messa kl. 14:00.
Bænasamkomur alla þriðjudaga
kl. 20:30.
Sóknarprestur
Útfararþjónusta
Lionsklúbbsins Garði.
SÍMSVARI 27960.
Grindavík:
Bifreiö stolið
við lögreglu-
stöðina ,
Sendibifreið í eigu Kaup-
félags Suðurnesja í Grinda-
vík var stolið fyrir utan lög-
reglustöðina í Grindavík á
þriðjudagskvöld í síðustu
viku.
Hafði ökumaður sendibif-
reiðarinnar brugðið sér inn á
lögreglustöðina, en skilið
lykla eftir í bílnum. Þegar
ökumaðurinn hafði lokið er-
indi sínu á stöðinni og hugð-
ist halda heim á leið, kom í
ljós að bifreiðin var horfin.
Eftir nokkra leit fannst
sendibifreiðin austan við bæ-
inn Hraun, á ísólfsskálavegi.
Er þjófnaðurinn upplýstur
en þjófurinn rnun hafa verið
drukkinn.
Ösóttir
ferða-
vinningar
Annar ferðavinningur í
jólahappdrætti Lions-
klúbbsins Óðins er ósóttur
en hann kont á miða númcr
716. Eigandi miðans getur
vitjað vinningsins hjá Þórði
Ingimarssyni í síma 14052.
PLASTRIMLA-
GLUGGATJÖLDIN
nú líka fáanleg í
170 cm og 180 cm
Fjcbopinn
HAFNARGÖTU 90
230 KEFLAVÍK
SÍMI 14790
Góð auglýsing gefur góðan arð.
Auglýsingasímarnir eru: 14717 og 15717.
Sigurður Ágústsson, aðalvarðstjóri, með riffilinn sem börnin fundu utan við Eyjabyggð í Grindavík.
Liósm.: hbb
Grindavík:
Börn fundu riffil
Lögreglunni í Grindavík
barst í síðustu viku riffill,
sem ung börn að leik fundu
vestan við Eyjabyggðina í
Grindavík. Var hér um að
ræða 22 kalíbera Bruno riff-
il.
Sigurður Ágústsson, aðal-
varðstjóri hjá lögreglunni í
Grindavík, sagði að ekki
væri vitað hver eigandi
vopnsins væri, þar sem engin
tilkynning lægi fyrir um stol-
inn riffil. Er riffillinn farinn
að ryðga, en þó sést á vopn-
inu að það hefur ekki legið
lengi úti, þar sem gormar og
fjaðrir eru enn í góðu
ástandi. Vill lögreglan í
Grindavík því hér með koma
því á framfæri að ef einhver
kannast við að hafa tapað
riffli, þá hafi sá hinn sami
samband við lögregluna.
TIL SÖLU
2 tonna diesel-lyftari í
góðu standi. Allar nánari
upplýsingar í síma 13773
eða á staðnum.
WSKIPTINGr
___GRÓFIN 19. 230 KEFLAVÍK, SÍMI 92-13773-
Ljósm.: Heimir
Húsanes áfram með
Sundmiðstöðina
Útilaugin verður tilbúin 15. nóv. n.k.
Keflavíkurbær er þessa
dagana að Ijúka samningi við
verktakafyrirtækið Húsanes
um áframhaldandi fram-
kvæmdir við sundmiðstöðina.
Mun fyrirtækið taka verkið að
sér samkvæmt kostnaðaráætl-
un. Hafsteinn Guðmundsson,
formaður íþróttaráðs Kefla-
víkur, sagði í samtali við blað-
ið að stefnt væri að því að
opna útilaugina ásamt bún-
ingsaðstöðu, Ijórum heitum
pottum og afgreiðslu þann 15.
nóvember nk.
„Þetta verður aðstaða eins
og hún gerist best og nýtist vel
almenningi og skólunum.
Þarna verður einnig góð sól-
baðsaðstaða. Næsta skref
verður kjallari hússins, sem
mun geyma sex búningsklefa
fyrir íþróttavellina á svæðinu í
kring svo og gufubað, þrek-
herbergi, Ijósaböð og fleira“
sagði Hafsteinn.
Kostnaður við sundmið-
stöðina er orðinn um 50 millj-
ónir króna.