Víkurfréttir - 27.04.1989, Page 8
8 Fimmtudagur 27. apríl 1989
mim
jUttit
molar
Grín - Gagnrýni - Vangaveltur
Umsjón: Emil Páll
Lúðrasveit T.K.
lék í BláfjöIIum
Það að fara á íjöll til að
leika tónlist dettur ekki
nokkrum manni í hug að
gera, nema hljómlistarfólk-
inu í Lúðrasveit Tónlistar-
skólans í Keflavík, en um þar
síðustu helgi fjölmennti
hljómlistarfólkið í Bláfjöll
og voru hljóðfærin tekin með
og leikið í blíðskaparveðri
fyrir mörg þúsundir manna,
sem svo sannarlega „komu
af fjöllum“ við að heyra
lúðrasveitina leika létta tón-
list, öllum að óvörum. Þetta
mun vera í fyrsta skipti sem
þetta er gert í Bláfjöllum og
vakti þessi uppákoma því
mikla athygli viðstaddra.
Það var Siguróli Geirsson
sem stjórnaði lúðrasveitinni.
Urgur út í Stöð 2
Mikill urgur er í mörgum
Suðurnesjabúum út í Stöð 2
vegna þess hve litla virðingu
þeir sýna Suðurnesjum. En
einmitt sá landshluti tók
einna best við sér til stuðn-
ings stöðinni þegar hún hóf
starfsemi sína. Eru fréttir af
Suðurnesjum þó mjög sjald-
gæfar hjá stöðinni, á sama
tíma og allt sem gerist í
heimabæ fréttastjórans er tí-
undað út í ystu æsar og álíka
með það sem gerist norðan
heiða. Þætti því mikillfengur
fyrir Suðurnesjamenn þó
ekki fengjust fluttar fréttir
héðan nema sem svaraði tí-
unda hluta fréttanna frá
Vestmannaeyjum.
Yfirkokkurinn
hættur........
Þegar allri óunninni yfir-
vinnu var hætt í kjölfar
starfsmats fyrirtækja og
stofnana á vegum Sambands
sveitarfélaga á Suðurnesjum
kom upp mikil óánægja á
sjúkrahúsinu, svo sem menn
muna. Gekk óánægjan jafn-
vel svo langt að fólk mætti
ekki í vinnu og tilkynnti sig
veikt í mótmælaskyni. Þá
kom einnig fram mikil
óánægja með að yfirmat-
reiðslumaður SK héldi sínu
þrátt fyrir starfsmatið á með-
an skorið var af öðru. í fram-
haldi af því var viðkomandi
kaupauki skorinn af nefnd-
um yfirmanni. Hefur Molum
borist það til eyrna að við-
brögð hans hafi orðið þau að
hann hafi sagt upp starfi sínu
og sé því á förum frá stofn-
uninni.
....og lækna-
ritararnir segja upp
Það er ekki aðeins kokkur-
inn sem segir upp á sjúkra-
húsinu, það hafa læknaritar-
ar nú einnig gert. Munu þeir
hafa komist að því að stjórn-
in eða hluti stjórnar hafi
samið við einhverja útvalda
um að þeir haldi óunninni
yfirtíð þrátt fyrir að svo ætti
ekki að vera.
Vífill með krá?
Fréttir berast nú af því að
Björn Vífill Þorleifsson, veit-
ingastjóri Flug Hótels og
fyrrum barþjónn m.a. í Leik-
húskjallaranum, sé nú búinn
að kaupa húsnæði það sem
Smurbrauðsstofan hafði að
Hafnargötu 19 í Keflavík.
Hyggst hann setja þar upp
bjórkrá.
Haukur Ingi af stað
Samkvæmt heimildum
Mola hefur Haukur Ingi
Hauksson ljósmyndari unn-
ið að því að undanförnu að
opna nýja ljósmyndastofu í
Keflavík. Heyrast fregnir af
því að hann stefni að opnun í
ákveðnu húsnæði við Hafn-
argötu hið fyrsta. Yrðu ljós-
myndastofur í Keflavík þar
með þrjár, Ljósmyndastofa
Suðurnesja (Heimir Stígs-
son), Nýmynd (Sólveig
Þórðardóttir) og stofa
Hauks. Eigendur þeirra
tveggja síðastnefndu eiga
það sameiginlegt að vera
fyrrum nemar Heimis í fag-
inu.
Ósætti með
stjórnarformanninn
Nú er talið nokkuð öruggt
að frekjugangur Stór-
Reykjavíkurkrata muni
valda því að stjórnarformað-
ur IAV fari sem fyrr inn fyrir
Straum. Aður en innanað-
kratarnir létu í sér heyra var
talið fullvíst að þessi staða í
stjórn Islenskra aðalverk-
Viltu losna við auka-
kílóin eða bara lagast
í vextinum?
Erum komin með lóð fyrir hendurnar.
Þú færð 10% afslátt í Sport-
búð ðskars og barnafata-
versluninni ANDREU, ef þú átt
tíu tíma kort í líkamsræktinni
0 Mánud. kl. 15-22. - Þriðjud. kl. 10-17.
P Miðvikud. kl. 15-22. - Fimmtud. kl. 15-22.
I Föstud. kl. 10-17.
Ð
FL0TT FORM
Lfkamsrækt Öskars
Hafnargötu 23-2. hæð - Sími 15955
- fyrir ofan sportbúðina
taka félli í skaut Suðurnesja-
kratanum Olafi Björnssyni
eða jafnvel Jóni Norðfjörð.
Hafa kratarnir á Suðurnesj-
um verið fastir á því að stöðu
þessa ætti Suðurnesjamaður
að hafa en ekki maður af
Stór-Reykjavíkursvæðinu.
Þeim innfrá finnst hins vegar
að kratar hér syðra hafi þeg-
ar fengið nógu margar stöð-
ur út á flokkinn nú um sinn
og nefna þar með tvo fulltrúa
í varnarmálanefnd. Suður-
nesjamenn benda aftur á að
staða þessi eigi ekki að vera
annað en Suðurnesjastaða
því þeim innfrá komi ekkert
við það sem gerist hér syðra.
Svo er nú það.
Sviku lit?
Anna Lea og Brói aug-
lýstu árshátíð í Glaumbergi
um síðustu helgi. Af þessu
höfðu gárungarnir gaman
því Brói er jú einn af fulltrú-
um þeirra Njarðvíkinga sem
eiga Stapann, en heldur nú
skemmtun í Keflavík. Að
vísu er þetta ekkert einsdæmi
því í vetur ákvað Starfs-
mannafélag Keflavíkurbæj-
ar að halda árshátíð sína í
Stapa en ekki í húsi Kefla-
víkurbæjar, Glaumbergi. Er
því spurning hvort viðkom-
andi aðilar hafi ekki verið að
svíkja með þessu lit?
Þarma-gustur
Frændur okkar Færeying-
ar dvöldu fyrir stuttu í viku
heimsókn hjá vinabæ sínum
Keflavík. Að sjálfsögðu
mætti ljósmyndari blaðsins
þegar kveðjuhófið stóð sem
hæst. Er hann gekk í salinn
var hann kynntur sem ljós-
myndari staðarblaðsins,
Víkurfrétta. Er stjórnandinn
nefndi „fréttir" gall við mik-
ið hláturskast viðstaddra
Færeyinga. Astæðan var sú
að þetta orð þýðir hjá þeim
,,þarma-gustur“ á fínni ís-
lensku, eða viðrekstur á
venjulegu máli.
Enn framlengt
Ákveðið hefur verið að
framlengja enn sýningu
Leikfélags Keflavíkur á reví-
unni „Við kynntumst fyrst í
Keflavík" eftir Ómar Jó-
hannsson. Hafa undirtektir
verið með eindæmum og því
hefur stjórn L.K. ákveðið að
viðhafa tvær sýningar nú um
helgina, en áður hafði allra
síðasta sýning verið ákveðin í
síðustu viku en mun færri
komust að en vildu. Ergam-
an til þess að vita að verk
þetta skuli hafa slegið svona
rækilega í gegn.
Orðhvatur:
KennararI
hefðbundnu
verkfalli
Nú er sumarið komið og
Mási búinn að vinna þá í
Reykjavík í árlegu víðavangs-
hlaupi á sumardaginn fyrsta.
Dagurinn er nú þegar orðinn
nokkuð langur og götufyllerí
á Hafnargötunni geta nú far-
ið að taka á sig léttklæddari
mynd.
Ástráður tuktar fótbolta-
mennina úr bítlabænum til og
í fyrsta skipti í mörg ár má bú-
ast við einhverjum árangri af
ÍBK liðinu.
Af hverju segir Orðhvatur
það?
Jú, þetta er fyrsta vorið í
langan tíma sem ekki er búið
að krýna Keflavíkurliðið
meistara í upphafí sumars
manna á meðal og á síðum
Víkurfrétta.
En sumarkoman sést í
fleiru, kennarar i Fjölbraut
eru í hefðbundnu verkfalli og
kylfíngar eru farnir að berja
blautan svörðinn úti í Leiru.
I Vogunum hafa grásleppu-
karlar brett upp ermar og búa
sig undir vertíðina og pattara-
legir rauðmagar eru farnir að
flækja sig i.netunum hjá Þórði
Vormsyni, grásleppukóngi og
altmuligtmanni í því plássinu.
Já, sumarið er komið og
farfuglarnir koma hver af
öðrum, ýmist tii að verpa eða
til að stuðla að varpi og enn
aðrir einvörðungu til að drita
á nýbónaða BMWa og Porsa,
eigendunum til minnkunar á
rúntinum.
Það er sæla sem hríslast um
menn á vorin. Hún nær al-
gleymingi þá er blessaður
Ameríkaninn fer að æfa flug-
kúnstir á sólríkum júlídegi og
drunurnar yfirgnæfa dirrindí
lóunnar fyrir utan stofuglugg-
ana.