Morgunblaðið - 10.12.2015, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 10.12.2015, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 2015 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Ekki er hægt að treysta fullkomlega á, þegar bíll er tek- inn af sumardekkjum og settur á vetrardekk, að dekkja- verkstæði herði bolta við felgur bílsins nægilega vel. Er gott ráð að fara yfir hersluna skömmu eftir skiptin. Mælt er með að gera slíkt á fyrstu tveimur dögunum eða þegar búið er að aka 60 kílómetra. N1 hefur haft þann vana á að setja miða á stýri bíla þegar skipt er um dekk hjá fyrirtækinu og hefur slíkt verið gert í nokkur ár. Ekki er það þó gert á öllum dekkjaverkstæðum. FÍB fær þónokkrar kvartanir, þeg- ar landsmenn skipta yfir í vetrardekk, vegna óvandaðra vinnubragða dekkjaverkstæða. Dæmi eru um töluverð tjón á farartækjum þegar dekk losnar af eða verður loft- laust skömmu eftir að vetrardekk hafa verið sett á. Að- stæður, eins og nú eru á landinu, hjálpa ekki. Litlu munaði að slys yrði á fólki Í byrjun desember datt hjól af bíl á Kringlumýrar- braut á um 70-80 km hraða. Stuðari losnaði þegar bíllinn skall í götuna og boddíið skekktist að framanverðu. Slembilukka var að ekki skyldu verða nein slys á fólki, litlu munaði að keyrt yrði aftan á hann og bíllinn stöðv- aðist skammt frá ljósastaur. Slæmt skyggni og slæm færð var á þessum tíma og hefði þetta hæglega getað endað í marga bíla árekstri. Bíllinn hafði verið í dekkja- skiptum hjá N1. Dagur Benónýsson, rekstrarstjóri hjá N1, segir að miðinn sem festur er á stýri ökumanna þegar þeir fara, sé þörf áminning. „Við herðum felgur að með loftlykli og förum síðan yfir með átaksmæli. Í kjölfarið er settur lím- miði á stýri ökutækis, þar sem stendur að áríðandi sé að herða á felguróm innan 2 daga eða 60 km.“ Við- skiptavinum sé svo velkomið að koma á ný og láta end- urherða sér að kostnaðarlausu. „Samkvæmt stöðlum sem við vinnum eftir er mælt með því að setja miða á stýrið til að minna ökumenn á að endurherða og við för- um eftir því. Okkur þykir miður að þetta atvik hafi átt sér stað, en það sýnir auðvitað mikilvægi þess að farið sé eftir fyrrgreindum tilmælum.“ Runólfur Ólafsson, framkvæmdarstjóri FÍB, segist þekkja til svona tilvika í umferðinni. „Við verðum vör við það hér í gegnum FÍB-aðstoðina að það kemur mikið af aðstoðarbeiðnum í kjölfar þess þegar landsmenn skipta yfir í vetrardekk. Það er hægt að snúa þeim beint að vinnubrögðum sem eru ekki nógu góð. Dekkjaskipti eru eins og með alla aðra vinnu það þarf að gera þau af vand- virkni.“ benedikt@mbl.is Slembilukka að ekki fór verr Heppinn Ökumaður þessa bíls mátti teljast sleppa vel þegar dekk datt undan bílnum í upphafi mánaðarins.  Dekk losnaði af bíl skömmu eftir að vetrardekk fóru undir Norska jólatréð sem var gjöf frá Óslóarbúum og sett að vanda upp á Austurvelli er ónýtt. Það var tekið niður á mánudag vegna óveðursins sem þá gekk yfir borgina. Var því ákveðið að ná í nýtt tré í Heiðmörk. Fyrir valinu varð sitkagrenitré. Dagur B. Egg- ertsson borgarstjóri og Khamshaj- iny Gunaratnam, varaborgarstjóri Óslóar, höfðu valið það tré fyrir næsta ár. Nýtt Óslóarjólatré sótt í Heiðmörk „Það vantaði örlítið upp á gögn sem við erum að afla okkur fyrir fundinn frá fjármálaráðuneytinu,“ segir Vigdís Hauksdóttir, formaður fjárlaganefndar, um tæknilega frestun opins fundar í nefndinni sem átti að vera í gærkvöldi. Til stóð að ræða við fulltrúa Landsam- bands eldri borgara og Öryrkjabandalagsins ásamt fulltrúum velferðarráðuneytis og fjármálaráðuneytis. Áætlað er að fundurinn fari fram í dag, kl. 13. Stjórnarandstaðan óskaði eftir opna fundinum og orð- ið var við þeirri beiðni, að sögn Vigdísar. Vigdís Hauksdóttir Tæknileg frestun á opnum fundi Bátur Rannsóknarseturs Háskóla Íslands í Sand- gerði, Sæmundur fróði, var hífður upp úr gömlu höfninni í Reykjavík í gær. Hinn báturinn sem sökk í Suðurbugtinni í óveðrinu aðfaranótt þriðjudags, Glaður, var hífður upp á bryggju í fyrradag. Báðir bátarnir eru mikið skemmdir. Sæmundur fróði hífður upp úr höfninni Morgunblaðið/Golli Aðrir þættir en hjúkrunarfræðingur var ákærður fyrir vegna andláts sjúklings á gjörgæsludeild Landspít- alans síðla árs 2012 kunna að skýra andlátið, að mati Héraðsdóms Reykjavíkur. Þessir þættir voru ekki rannsakaðir. Hjúkrunarfræðingur- inn sem annaðist sjúklinginn og ákærður var fyrir manndráp af gá- leysi vegna mistaka í starfi var sýkn- aður. „Það er mikið spennufall og mikill léttir,“ sagði hjúkrunarfræðingur- inn, Ásta Kristín Andrésdóttir, þeg- ar sýknudómurinn hafði verið kveð- inn upp. „Ég ætla að halda áfram með líf mitt og byrja að baka fyrir jólin,“ sagði hún í samtali við mbl.is. Hún segist byrja fljótlega að vinna á spítalanum á nýjan leik. Niðurstöðunni fagnað Fjöldi fólks var við uppkvaðningu dómsins, meðal annars hjúkrunar- fræðingar sem vildu sýna Ástu Kristínu samstöðu. Var fagnað í dómsalnum þegar niðurstaðan lá fyrir. „Þetta er eins góð niðurstaða og gat orðið, að okkar mati,“ sagði Ólafur G. Skúlason, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, í sam- tali við mbl.is. Hann sagði það ekki rétta leið að fara með slík mál fyrir dómstóla og nú þyrfti að læra af þeim mistökum. Réttara væri að skipa rannsóknar- nefnd til að fara yfir alvarleg atvik í heilbrigðiskerfinu með það að mark- miði að fólk lærði af mistökum. Ásta Kristín og Landspítalinn voru ákærð fyrir manndráp af gá- leysi og Ásta Kristín að auki fyrir brot á hjúkrunarlögum. Henni var gefið að sök að hafa láðst að tæma loft úr kraga bakraufarrennu þegar hún tók sjúklinginn úr öndunarvél og setti talventil á rennuna. Hann hefði þá ekki getað andað frá sér. Ásta Kristín neitaði sök. Hún kvaðst ekki muna hvort sér hefði láðst að tæma loft úr kraganum. Dómurinn metur það svo að í þeirri hröðu atburðarás sem varð þegar farið var yfir málið á spítalan- um morguninn eftir að sjúklingurinn lést sýnist hafa verið hrapað að nið- urstöðu um það hver hefði verið meginorsök andláts mannsins. Aðrir þættir hafi ekki verið rannsakaðir. Dómurinn vitnar til vitnisburðar samstarfsfólks þar sem fram kemur að ekki hafi verið loku fyrir það skot- ið að einhver sem kom að endurlífg- un sjúklingsins hafi blásið lofti í belg- inn. Þá kunni aðrir þættir að skýra andlátið, að minnsta kosti að hluta. Ásta Kristín var sýknuð af öllum kröfum ákæruvaldsins. Það varð til þess að spítalinn var einnig sýknað- ur. Saksóknari hafði krafist þess að hún yrði dæmd í fjögurra til sex mánaða skilorðsbundið fangelsi. Bótakröfum ekkju og barna sjúk- lingsins var vísað frá dómi. helgi@mbl.is Aðrir þættir kunna að skýra andlátið  Hjúkrunarfræðingur sýknaður af ákæru um manndráp af gáleysi Morgunblaðið/Jón Pétur Jónsson Sýknuð Ástu Kristínu Andrés- dóttur var fagnað vel. Norðlæg átt verður ríkjandi næstu daga með éljum norðanlands. Sunn- an heiða verður úrkomulaust og sól- in lætur sjá sig. Kalt verður í veðri, frost um allt land. Í logni og heið- ríkju getur frostið náð sér á strik, til dæmis í uppsveitum á Suðurlandi. Um helgina lítur út fyrir að snúist í suðlæga átt, með hægum vindi og snjómuggu sunnanlands og vestan. Norðanátt og kalt í veðri næstu daga

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.