Morgunblaðið - 10.12.2015, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 10.12.2015, Blaðsíða 15
FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 2015 Menntun í fjölmenningarsamfélagi er viðfangsefni annars fundar í nýrri fundaröð Háskóla Íslands sem ber yfirskriftina Fræði og fjöl- menning. Fundurinn verður haldinn á Al- þjóðlega mannréttindadaginn, fimmtudaginn 10. desember kl. 12.00 til 13.15, í fundarsal Þjóð- minjasafns Íslands og er öllum op- inn. Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, setur fundinn og ræðumenn verða Hanna Ragn- arsdóttir, prófessor í fjölmenning- arfræði við menntavísindasvið Há- skóla Íslands, Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Kristrún Sigurjóns- dóttir, deildarstjóri móttökudeildar Lækjarskóla í Hafnarfirði. Að fundi loknum verður boðið upp á hressingu. Ræða menntun í fjölmenningar- samfélagi Halldór Bjarkar Lúðvíksson mætti sem vitni fyrir héraðsdóm í gær í Chesterfield-málinu sem beinist gegn fyrrverandi stjórnendum Kaupþings. Hann starfaði sem lána- stjóri hjá Kaupþingi og sá því um 250 milljóna evra lánveitingu Kaup- þings til aflandsfélaga 2008. Halldór sagði fyrir dómi í gær að hann hefði verið kallaður á fund Hreiðars Más Sigurðssonar, fyrrver- andi forstjóra bankans og eins ákærðu í málinu, í ágúst 2008 þar sem Hreiðar hefði lýst því yfir að bankinn hefði ákveðið að hafa áhrif á skuldatryggingaálag sitt, eftir ráð- gjöf frá Deutsche Bank, með kaup- um á CDS skuldabréfum. Sagði Halldór fyrirmæli Hreiðars hafa verið nokkuð skýr. Hann hefði beðið sig um að vinna lán upp á sam- tals 250 milljón evra. Búið hefði ver- ið að greiða peningana út í Kaup- þingi í Lúxemborg, en útlánið gæti ekki setið lengi þar og því þyrfti að klára þetta fyrir mánaðamótin ágúst-september. Ætti hann að ganga frá greiðslunni fyrst og svo að klára formsatriði eins og sam- þykktir lánanefndar og pappírs- vinnu. Verjandi í málinu spurði Halldór af hverju hann hefði orðið við þess- um beiðnum án skriflegs samþykkis í ljósi þess að hann þekkti lánaferla bankans. Halldór sagði að fyrirmæli Hreiðars hefðu í fyrsta lagi verið mjög skýr og þá hefði tíminn verið knappur, hann ekki þekkt málið og því tímafrekt að útbúa skjölin. Einn- ig hefði Hreiðar sjálfur átt sæti í lánanefndum og hefði vera hans þar talist trygging fyrir að heimild væri fyrir lánunum. „Taldi það nóg, datt ekki í hug að hann myndi hlaupast undan ábyrgð,“ sagði Halldór. Verjendur málsins hafa gert því skóna að Halldór hafi einn tekið ákvörðun um útlánin og að engin merki séu um að fyrirmæli hafi bor- ist frá Hreiðari í þeim fjölmörgu skjölum sem lögð voru fram í málinu. Fyrirmæli Hreiðars um lánveitingu voru skýr Morgunblaðið/Styrmir Kári Vitni Halldór Bjarkar Lúðvíksson.  Halldór bar vitni í Chesterfield-málinu  „Datt ekki í hug að hann myndi hlaupast undan ábyrgð“ Landspítalinn, þjóðkirkjan og Ný dögun efna til árlegrar sam- veru á aðventu fyrir syrgjendur. Samveran verð- ur að þessu sinni í Grafarvogs- kirkju í kvöld, fimmtudaginn 10. desember, kl. 20:00. „Oft er erfitt að horfa fram til jóla þegar ástvinur hefur fallið frá. Samveran er sérstaklega hugsuð til að styðja fólk í þeim að- stæðum,“ segir í tilkynningu. Hamrahlíðarkórinn syngur jóla- sálma, sr. Sigurður Grétar Helga- son les ritningartexta og K. Hulda Guðmundsdóttir, Nýrri dögun, flytur hugvekju. Síðan verður minningarstund þar sem kirkju- gestir geta tendrað ljós og minnst þannig látinna ástvina sinna. Sam- veran verður túlkuð á táknmáli. Léttar veitingar og spjall í lokin. Samvera fyrir syrgjendur á aðventunni Grafarvogskirkja. Tumi Tómasson, forstöðumaður Sjávarútvegs- skólans, flytur í dag erindi sem nefnist: Sjávar- útvegsskólinn og bætt nýting auðlinda hafs- ins. Erindið verð- ur flutt kl. 12.30 í fyrirlestrarsal á fyrstu hæð á Skúlagötu 4, Reykjavík. Sjávarútvegsskóli Há- skóla Sameinuðu þjóðanna hefur starfað í 18 ár og hafa um 330 sérfræðingar frá meira en 50 löndum farið í gegnum þjálf- unarnámið á Íslandi. Allir eru velkomnir. Kynning á Sjávar- útvegsskóla SÞ Tumi Tómasson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.