Morgunblaðið - 10.12.2015, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 10.12.2015, Blaðsíða 26
26 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 2015 Almond Gjafakassi 8.990 kr. Almond Gjafakassi - 8.990 kr.: Almond Líkamskrem 100ml, Almond Handkrem 30ml, Almond Sturtuolía 250ml, Almond Sturtuskrúbbur 200ml. Kringlan 4-12 | s. 577-7040 • loccitane.com L’Occitane en Provence - Ísland Ólafur Ásgrímsson hefur verið skákdómari í nær 40 ár. Hannvar skákdómari á Evrópumóti landsliða sem lauk nýverið enþað var haldið í Laugardalshöll. „Það var alveg stórkostlegt mót og ekki hægt að neita því að þetta er stærsti skákviðburður sem haldinn hefur verið hérna fyrir utan heimsmeistaraeinvígið 1972, en það var sér á báti og allt öðruvísi, náttúrlega bara tveir keppendur þá. Stærsta mót sem ég hafði áður komið nálægt var heimsbikarmótið ár- ið 1988 sem var fyrsti viðburður sem var haldinn í Borgarleikhúsinu. Þar kepptu 15 af 24 bestu skákmönnum heims með heimsmeistarann, Garrí Kasparov, í broddi fylkingar og vann hann mótið.“ Af öðrum mótum sem Ólafur hefur komið nálægt eru Reykjavíkur- skákmótin, Íslandsmótin og Íslandsmót taflfélaga, sem er fjölmenn- asti skákviðburðurinn hér á landi. Aðspurður segir Ólafur alltaf ein- hverjar breytingar verða í dómgæslunni. „Það má segja að Evrópu- mótið hafi verið mun strangara en verið hefur en hver dómari hafði eftirlit með einni til tveim viðureignum og fylgdist vel með skák- klukkunum. Einnig eru komin leitartæki til skjalanna, en það hefur sýnt sig í örfáum tilfellum að menn hafa reynt að svindla á mótum. Ég fylgist með í skákheiminum, en tefli næstum ekkert. En ég hef gaman af því að grípa í golf.“ Ólafur er búfræðingur að mennt og vann í 28 ár í Landsbankanum. „Ég er einnig þungavinnuvélamaður og hef verið að vinna fyrir Björgun, nú síðast á laugardaginn.“ Eiginkona Ólafs er Birna Halldórsdóttir, fyrrverandi skólaliði. Stjúpbörn Ólafs eru tvö, Sylvía og Geir. Í tilefni afmælisins ætlar Ólafur með nánustu fjölskyldu í jólahlað- borð. Morgunblaðið/Ómar Við taflið Ólafur fylgist vel með í skákheiminum en teflir lítið sjálfur. Skákdómari í 40 ár Ólafur Ásgrímsson er 70 ára í dag E inar fæddist í Reykja- vík, að Háteigsvegi 19, hinn 10.12. 1945, á þrí- tugsafmælisdegi móð- ur sinnar, og ólst þar upp til 15 ára aldurs: „Við vorum „Holtarar“ en það voru þeir nefndir sem bjuggu á Háteigsveginum, í Meðalholtinu, Stórholtinu, Einholti og Þverholti. Þá var sveitabærinn Sunnuhvoll neðst á Háteigsveginum og við krakkarnir fengum að fara með kýr og hesta þaðan í beitarhólf á Klambratúni, sem einnig var skipu- lagt fyrir skólagarða. Kúaskít frá Sunnuhvoli var dreift í flesta húsagarða hverfisins á vorin og þá „ilmaði“ vorið í hverfinu.“ Einar gekk í Austurbæjarskóla, Gagnfræðaskólann við Lindargötu og Gagnfræðaskóla Austurbæjar. „Ég var mikill sveitastrákur, beið með óþreyju eftir því á hverju vori að skóla lyki, fór fyrst átta ára í sveit í Stardal á Kjalarnesi, síðan í Gesthús á Álftanesi, þá á Einarsstaði í Reykjadal og loks að Móeiðarhvoli í Rangárvallasýslu, þar sem ég kynnt- ist verðandi eiginkonu minni fyrir 55 árum.“ Einar lauk kennaraprófi 1967, sér- kennaraprófi frá KÍ 1969 og stundaði nám í sérkennslu í Noregi 1973-74. Einar hóf kennslu á Kópavogshæli 1967, kenndi síðan við Höfðaskóla í Einar Hólm Ólafsson, fyrrv. skólastj. Öskjuhlíðarskóla – 70 ára Jólastemming Einar og Vilborg heima í stofu með börnunum, Ólafi og Ingibjörgu, og fimm af barnabörnunum. Þrjár kynslóðir trommara Trommarinn og skvísan Ólafur og Vilborg Árný gantast á bítlaárunum. Kópavogur Dísella Al- bertsdóttir fæddist 15. nóvember 2014 kl. 8.22. Hún vó 2.412 g og var 43 cm löng. Foreldrar hennar eru Ásdís Geirsdóttir og Albert Gissurarson. Nýir borgarar Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.