Morgunblaðið - 10.12.2015, Side 4

Morgunblaðið - 10.12.2015, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 2015 Enginn varð fyrir áhrifum þegar salt- sýra lak úr keri við birgðageymslu Olís við Héðinsgötu í gær. Sýran var hreinsuð upp. Talið er að 200 til 300 lítrar af salt- sýru hafi lekið niður. Verið var að flytja þúsund lítra ker með saltsýru í gámi frá vörugeymslu. Bílstjórinn fann lykt sem honum þótti skrýtin og gerði starfsfólki Olís viðvart. Mikill viðbúnaður var hjá Slökkviliði höf- uðborgarsvæðisins sem stöðvaði út- breiðslu mengunarinnar og hreinsaði svæðið. Sýran var færð yfir í heilt ker. Lokað var fyrir umferð um Héðins- götu um skeið. Logn var og ekki talin hætta að mengunin bærist með vindi. Saltsýran er mjög ertandi. Guð- mundur Halldórsson, varðstjóri hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðsins, segir hættulegt að anda henni að sér. Menn geti fengið lungnabjúg og önd- unarvefur skemmst. Bílstjórinn fann ekki fyrir neinum óþægindum en var eigi að síður beð- inn um að líta inn á sjúkrahúsi, til vonar og vara. Starfsmenn Olís sem opnuðu gáminn voru með hlífðar- búnað. Saltsýra lak á Héðinsgötu Morgunblaðið/Eggert Eitur Slökkviliðsmenn með viðeigandi búnað tókust á við eiturefnalekann.  Lokað fyrir umferð  Enginn varð fyrir áhrifum Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Krónan, dótturfélag Festar hf., hef- ur að undanförnu kannað hag- kvæmni þess að opna einfaldar bens- ín- og dísilsölustöðvar á lóðum verslana sinna. Samkvæmt upplýs- ingum Morgunblaðsins hafa viðræð- ur við fulltrúa olíufélaganna um bensín- og olíukaup af félögunum enn ekki borið árangur, vegna þess að mikið ber á milli í verðhugmynd- um Krónunnar og olíufélaganna. Sömuleiðis hefur komið fram að erlenda verslunarkeðjan Costco, sem undirbýr opnun stórmarkaðar í Kauptúni í Garðabæ á næsta ári, hafi hug á að bjóða upp á eldsneyti við verslun sína. Vilja nýta lóðir betur Upphaf þess að Krónan hóf að skoða möguleika sem þennan var að eigendur Krónunnar vilja nýta sínar lóðir betur og töldu að hagkvæmt gæti verið að setja upp eldsneytis- dælur og hleðslustöðvar fyrir raf- magnsbíla á lóðunum, þar sem alltaf væri sama eldsneytisverð, engin af- sláttartilboð eða viðskiptakort væru í boði. Þannig yrði rekstur slíkra dælna eins hagkvæmur og hægt væri og Krónan gæti boðið upp á verulega lækkun á eldsneytisverði. Lóðir Krónunnar væru skilgreindar í deiliskipulagi fyrir verslun og þjón- ustu. Því væri Krónan, að mati for- svarsmannanna, einungis að bæta við tveimur vörunúmerum, bensíni og dísilolíu. Morgunblaðið hefur upplýsingar um að verðhugmyndir olíufélaganna, hvað varðar smásölu á eldsneyti til Krónunnar séu töluvert fjarri verð- hugmyndum Krónunnar. Vilja 12 til 13 króna álag Heimildir Morgunblaðsins herma að olíufélögin væru tilbúin til þess að selja Krónunni lítrann með 12 til 13 króna álagi á innkaupsverð, sem jafngildir því, að ef Krónan keypti 10 milljónir lítra á ári af olíufélögunum, fengju félögin 120 til 130 milljónir króna í sinn hlut fyrir viðskiptin. Krónan hefur aftur á móti bent á, að ef af viðskiptum yrði, væri Krón- an í hópi stórnotenda, rétt eins og út- gerðin og aðrir stórkaupendur. Því munu forsvarsmenn fyrirtækisins telja sanngirnismál að Krónan nyti sambærilegra kjara, eða að á bilinu 3 til 5 krónur bættust ofan á innkaups- verð hvers lítra. Jafnframt hafa þeir bent á að Krónan myndi staðgreiða sín eldsneytiskaup en öðru máli gegni með aðra stórnotendur, sem yfirleitt séu allir í reikningi hjá olíu- félögunum og hafi þar af leiðandi ákveðinn greiðslufrest. Hafa forsvarsmenn Krónunnar bent á að sambærilegar tölur í Dan- mörku þegar um stórnotendur sé að ræða séu 3 til 4 krónur ofan á hvern lítra. Morgunblaðið/Styrmir Kári Krónan Eigendur Krónunnar vilja nýta sínar lóðir betur og kanna hagkvæmni þess að selja bensín og dísilolíu. Mjög mikill munur er á verðhugmyndum  10 kr. munur á lítra á milli Krónunnar og olíufélaganna Í frummatsskýrslu Samkeppnis- eftirlitsins um eldsneytismark- aðinn kemur fram ákveðin hvatning til sveitarfélaga um að þau liðki til fyrir því að nýir að- ilar geti opnað eldsneytis- stöðvar, og bent sérstaklega á matvöruverslanir. Um það sagði Jón Ólafur Hall- dórsson, forstjóri Olís, m.a. hér í Morgunblaðinu hinn 1. desember sl.: „Mér finnst mjög sérstakt að í skýrslu Samkeppniseftirlitsins kemur fram að þeir telji mat- vörumarkaðina besta til þess að koma inn á þennan markað. Hvers vegna taka þeir eina grein í smásölu umfram aðrar? Af hverju nefna þeir ekki bygging- arvöruverslanir eða apótek eða einhverja aðra sem hefðu kannski áhuga?“ Olíufélögin hafa frest fram í febrúar á næsta ári til þess að gera athugasemdir við frum- matsskýrslu Samkeppniseft- irlitsins og verður lokaútgáfa skýrslunnar gerð opinber fljót- lega í kjölfar þess. Hvatning til sveitarfélaga FRUMMATSSKÝRSLA SKE Viðgerð lauk í gær á byggðalínu- hringnum hjá Landsneti en hann fór í sundur á tveimur stöðum í óveðrinu á mánudagskvöld og aðfaranótt þriðjudags. Viðgerðaflokkar Lands- nets og Rarik vinna að viðgerðum og er rafmagn víðast komið á, ýmist með viðgerðum á skemmdum línum eða með keyrslu dísilvéla. Flokkur Landsnets var í gær- kvöldi að ljúka viðgerð á Kópa- skerslínu. Þá var hafin viðgerð á Breiðadalslínu 1. Þar höfðu 17 möst- ur brotnað í Dýrafirði vegna ísingar og vindálags. Um 40 manns með tæki og tól hafa unnið að viðgerð- unum hjá Landsneti. Byggðalínan fór í sundur í Blönduhlíð í Skagafirði og einnig á mili Hryggstekks í Skriðdal og Teig- arhorns í Berufirði. Viðgerðum lauk á báðum stöðum í gær og er byggða- línuhringurinn því samtengdur að nýju. Rafmagnslaust í Öxarfirði Flestir viðskiptavinir Rarik voru í gær komnir með rafmagn. Vinnu lauk í gærkvöldi við bráðabirgða- viðgerð í Blönduhlíð og með því átti að koma rafmagn á alla bæi þar í sveit. Rafmagn var einnig komið á í Kelduhverfi. Í gær var verið að lag- færa línu norðan við Lund í Öx- arfirði en þar voru 8 staurar brotnir. Síðdegis var ennþá rafmagnslaust í Öxarfirði að Kópaskeri og á Sléttu. Unnið var að því að tengja dísilvél. Rafmagn er skammtað á Raufar- höfn. Miklar skemmdir urðu á Suðurlandi. Viðgerðarmenn voru í gær að gera við raflínur til að koma rafmagni á bæi í Vallakrók við Hvolsvöll. helgi@mbl.is Ljósmynd/Landsnet Breiðadalslína Sautján möstur brotnuðu við bæinn Gemlufall í Dýrafirði. Byggðalínan er komin í lag  Flestir bæir komnir með rafmagn Mikill meirihluti íbúa á Suð- urnesjum er hlynntur iðnaðar- uppbyggingu í Helguvík, sam- kvæmt viðhorfskönnun sem áhugahópur um atvinnuuppbygg- ingu á Reykjanesi fékk MMR til að gera. Þannig sögðust 72% þeirra sem svöruðu vera frekar eða mjög hlynntir iðnaðaruppbyggingu en 28% mjög eða frekar andvígir. Svipað hlutfall svarenda, eða 72,3%, sagðist frekar eða mjög hlynnt því að annars konar orku- frekur iðnaður yrði settur á fót í Helguvík ef í ljós kæmi að þar mundi ekki rísa álver. Mjög eða frekar andvígir sögðust 27,7%. Könnunin var gerð í síma og á netinu fyrstu dagana í desember. 1201 einstaklingur var í úrtaki og svöruðu rúm 45%. helgi@mbl.is 72% segjast hlynnt iðnaði í Helguvík Ljósmynd/Hilmar Bragi Helguvík Unnið er að byggingu mannvirkja á iðnaðarsvæðinu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.