Morgunblaðið - 10.12.2015, Síða 13
FRÉTTIR 13Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 2015
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is
AUDI A6 2.0 TDI S-line
Nýskr. 08/2014, ekinn 16 Þ.km, diesel, sjálfskiptur. S-line innrétting og útlit, led-ljósapakki, dökkt gler í afturrúðum,
18“ S-line felgur. Fjögurrasvæða digitalmiðstöð, bakkmyndavél, stór upplýsingaskjár m.MMI touch plus.
OKKAR BESTA VERÐ 7.980.000 kr. Raðnr. 254356Mjög vel útbúinn, stórglæsilegur bíll!
Þú finnur bílinn á bilo.is Auglýstir bílar eru á staðnum Skráðu bílinn á bilo.is
Þú getur hjálpað núna með því að greiða valgreiðslu í heimabanka.
Einnig:
• Frjálst framlag á framlag.is
• Gjafabréf á gjofsemgefur.is
• Styrktarsími: 907 2003 (2.500 kr.)
• Söfnunarreikningur:
0334–26–50886, kt. 450670-0499
Þinn stuðningur gerir kraftaverk
Skortur á drykkjarhæfu vatni og hreinlætisaðstöðu veldur banvænum sjúkdómum
en með aðgangi að hreinu vatni hefur allt líf möguleika á að vaxa og dafna.
Hjálparstarf kirkjunnar tryggir fólki aðgang að hreinu vatni í Úganda og Eþíópíu
– og þitt framlag skiptir sköpum.
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Ingvi Hrafn Jónsson, eigandi og sjón-
varpsstjóri ÍNN, hefur staðið í
ströngu við að fá fjölmiðlanefnd til
þess að endurnýja útsendingarleyfi
stöðvarinnar, sem hann sækir um til
eins árs í senn og greiðir hverju sinni
54 þúsund krónur
fyrir. Hann gagn-
rýnir harðlega að
ár hvert þurfi
hann að sækja
vottorð á fjóra
mismunandi staði,
til þess að fá end-
urnýjun leyfis.
„Þetta er það
sem veldur mér
daglangri angran,
vegna þess að ef
ég þyrfti á hverju ári að fara og sækja
þessi fylgigögn, þá tekur það mig
heilan dag,“ sagði Ingvi Hrafn í sam-
tali við Morgunblaðið í gær.
„Þessi fjölmiðlanefnd, sem ég kalla
kommúnistíska eftirlitsstofnun, segir
bara hreint og klárt: Þetta skal vera
svona, annars slökkvum við á þér,“
segir Ingvi Hrafn og bætir við að
hann geri sér fulla grein fyrir því að
starfsmenn fjölmiðlanefndar séu að
framfylgja lögum.
Hin kalda hönd nefndarinnar
„En þetta eru óþarfa lög og það er
svo einfalt fyrir fjölmiðlanefnd að
sækja umbeðnar upplýsingar og
senda svo bara gíróseðli. Ég held það
séu þrjár konur hjá fjölmiðlanefnd,
sem eru að reyna að hafa eitthvað að
gera, fyrir þær fimmtíu milljónir á
ári, sem kostar að reka nefndina og
þetta fer óumræðilega í taugarnar á
mér,“ segir Ingvi Hrafn. Hann segir
að hann hafi enn ekki fundið tíma til
að fara á þessa fjóra staði til að sækja
vottorðin. „Ef það slokknar á ÍNN,
þá er það sennilega hin kalda hönd
fjölmiðlanefndar, sem einhvers stað-
ar hefur ýtt á takka,“ sagði Ingvi
Hrafn.
Honum barst í lok nóvember tölvu-
bréf frá fjölmiðlanefnd, undirritað af
Heiðdísi Lilju Magnúsdóttur, lög-
fræðingi, þar sem sagði m.a: „Ítreka
hér með nauðsyn þess að ÍNN sæki
um endurnýjun myndmiðlunarleyfis
hið fyrsta sé ætlunin að halda útsend-
ingum áfram. Gögn þurfa að berast
fyrir næsta fund fjölmiðlanefndar
sem haldinn verður fimmtudaginn, 3.
desember.“
Í svari Ingva Hrafns við bréfi
Heiðdísar Lilju kemur fram að hann
hafi sent umsóknina til fjölmiðla-
nefndar 30. nóvember. Þar sagði
Ingvi Hrafn m.a.: „Þið eigið bara að
senda árlega reikninga, ekki þvinga
fólk til að standa í svona gersamlega
óþarfa pappírsvinnu. Handónýt
nefnd með engan tilgang og kostar
tugmilljónir.“
Samdægurs svarar Heiðdís Lilja:
„Umsóknin er móttekin en tilskilin
fylgigögn vantar. Ekki er hægt að af-
greiða umsóknina fyrr en þau hafa
borist. Bendi á að leyfi ÍNN rann út í
lok apríl og því mun leyfi það sem nú
er sótt um einungis gilda til 1. maí
2016. Hægt er að sækja um leyfi til
allt að 7 ára í senn og þannig koma í
veg fyrir „óþarfa pappírsvinnu“.“
Morgunblaðið/Golli
ÍNN Fyrsta útsending ÍNN var í febrúar árið 2007. Sent var út frá Flórída.
Er ósáttur við
fjölmiðlanefnd
„Kommúnistísk eftirlitsstofnun“
Ingvi Hrafn
Jónsson
Fylgiskjölin sem Ingvi Hrafn
þarf árlega að senda með um-
sókninni eru: Vottorð héraðs-
dóms um búsetuforræði
ábyrgðarmanns; vottorð Þjóð-
skrár um heimilisfesti ábyrgð-
armanns; vottorð innanríkis-
ráðuneytisins um lögræði
ábyrgðarmanns og vottorð Fyr-
irtækjaskrár um stofnun og til-
vist félagsins.
Lögræði
og tilvist
ÁRLEG TILSKILIN VOTTORÐ
Regluleg laun í landinu voru að
meðaltali 3,5% hærri á þriðja fjórð-
ungi ársins þ.e. í júní, júlí og sept-
ember, en á ársfjórðungnum þar á
undan, skv. upplýsingum Hagstof-
unnar um þróun launavísitölunnar
að undanförnu. Nýir kjarasamn-
ingar sem undirritaðir voru í maí
og júní höfðu tekið gildi á þriðja
ársfjórðungi og gætir áhrifa þeirra
því í þessum tölum. Árshækkunin
ef miðað er við þriðja ársfjórðung á
seinasta ári var að meðaltali 7,9%.
Á almenna vinnumarkaðinum var
hækkunin 8,3% og 6,7% hjá op-
inberum starfsmönnum. Þar af
hækkuðu laun ríkisstarfsmanna um
6,0% og laun starfsmanna sveitarfé-
laga um 7,4%, skv. frétt Hagstof-
unnar.
Laun verkafólks
hækkuðu mest
„Frá fyrri ársfjórðungi var
hækkun reglulegra launa eftir
starfsstétt á bilinu 1,7% til 6,0%.
Laun verkafólks hækkuðu mest en
sérfræðinga minnst milli ársfjórð-
unga. Árshækkun frá þriðja árs-
fjórðungi 2014 var einnig mest hjá
verkafólki eða um 11,0% en minnst
hjá stjórnendum og sérfræðingum
eða um 5,3%. Á sama tíma hækk-
uðu regluleg laun þjónustu-, sölu-
og afgreiðslufólks um 10,3%, sér-
menntaðs starfsfólks um 7,7% og
iðnaðarmanna um 7,3%,“ segir í
umfjöllun Hagstofunnar.
Frá fyrri ársfjórðungi mældist
hækkun reglulegra launa mest í
byggingarstarfsemi eða um 5,2%.
Þá hækkuðu laun á milli ársfjórð-
unga um 4,5% í iðnaði, 4,0% í sam-
göngum, 3,7% í verslun og 2,0% í
fjármálaþjónustu. Árshækkun frá
þriðja ársfjórðungi 2014 var mest í
samgöngum eða um 9,4% en minnst
í fjármálaþjónustu eða um 4,7%.
3,5% hækkun á 3 mánuðum
Mest launahækkun í byggingarstarfsemi eða 5,2%