Víkurfréttir


Víkurfréttir - 19.09.1991, Blaðsíða 17

Víkurfréttir - 19.09.1991, Blaðsíða 17
Grindavík Guðmundur Haraldsson, Staðarhrauni 7 fókk viðurkenningu fvrir sinn garð... _________17 \í kurfróttir 19. sept. 1991 ...sömuleiðis Alda Bogadóttir og Guðmundur Jónsson, Staðarhrauni 20. Ljósmvndir: hpé/Grindavík Fagrir garöar og umhverfi viöur- kennt Umhverfisnefnd Grindavíkur hefur veitt eigendum garða við fimm hús viðurkenningar fyrir fallega garða og snyrtimennsku. Er sagt frá þessu í Bæjarbót. Þar kemur ennfremur fram að Osk- ar Agústsson hafi fengið sér- staka viðurkenningu fyrir gott framtak við fegrun austur í Þór- kötlustaðahverfi, en hann hafði frumkvæði að umfangsmikilli hreinsun þar eystra. Garðurinn við Sólvelli 5 þótti einna fallegastur í sumar, en hann eiga og rækta Margrét Brynjólfsdóttir og Gísli Jóns- son. Guðmundur Haraldsson, Staðarhrauni 7 fékk við- urkenningu fyrir sinn garð. sömuleiðis Alda Bogadóttir og Guðmundur Jónsson að Stað- arhrauni 20. Ur hópi eldri borgara hlutu viðurkenningar þau Svavar Amason og Sigrún Högna- dóttir, Borgarhrauni 2 og Mar- grét Sveinsdóttir og Þórarinn Sigurbjörnsson, Víkurbraut 18. Næst verður viðurkenningum af þessu tagi úthlutað eftir tvö ár. en 1992 verður skoðað hjá fyrirtækjunum, segir ennfremur í Bæjarbót. Réttir um helgina Við Suðurnesjamenn fáum að berja réttir augum nú um helgina. A sunnudag rétta Grindvíkingar í Þór- kötlustaðarétt og Vatns- leysustrandarmenn í Vogarétt á mánudag. Nú eru miklar líkur á að þetta verði síðustu réttimar á Strönd- inni þar sem búskapur þar er að leggjast niður í framhaldi af því að lögbýlin á svæðinu eru búin að selja kvóta sinn. 150.000 kr. Einn styrkur á önn kr. 50.000 til námsmanns er út- skrifast frá 'Fjölbrautaskólanum og stendur sig vel í námi 300.000 kr. Tveir 150.000 kr. styrkir á ári. Námsmenn er lokið hafa námi í Mennta- eða Fjöl- brautaskóla eða sambærilegum skóla og em að ljúka fram- haldsnámi sem er á háskóla- eða tækniskólastigi geta sótt um styrkinn. Einu skilyrðin eru að viðkomandi aðili þarf að vera fé- lagi í Liðveislu Sparisjóðsins. 50% afsláttur á allar sýningar í Félagsbíói Frímiði einu sinni í mánuði á sér- staka úrvalsmynd - > Bíóveisla Yfirdráttarheimildð allt að kr. 150.000. Visa eða Eurocard greiðslukort strax og þú gengur í liðið Skólaferðalán - fyrir námshópa sem ætla til útlanda. Launalán - allt að kr. 350.000 fyrir þá sem leggja námslánin og/ eða aðrar greiðslur inn á reikning í Sparisjóðnum. Námslokalán fyrir þá sem eru að Ijúka framhaldsnámi og vilja kom sér þaki fyrir höfuðið. Sendum námslánin til náms- ntanna erlendis. Útskrift á greiðslubyrði skulda- bréfa. Fyrsta árs nemar sem rétt eiga á láni frá LÍN fá lán frant að fyrstu útborgun LIN. SSSPRRISJÓOURIHH l' KEFLAVÍK - sér um sitt námsfólk! Liðveisla er ný þjónusta Spari- sjóðsins í Keflavík sem er sér- staklega ætluð námsmönnum 16 ára og eldri

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.