Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.01.2016, Page 20
Ferðaapp The Telegraph inniheldur leiðbeiningar og fróðleik um stórar
ferðamannaborgir og einstök lönd, 29 áfangastaði eins og stendur.
Apple valdi ferðaappið besta nýja appið eftir að það var gefið út fyrir um
einu og hálfu ári en núna er það aðgengilegt fyrir bæði iPhone og iPad.
Ferðapennar Telegraph búa allir á þeim stöðum sem þeir fjalla um og
hafa gefið nær hverju einasta hóteli, safni, veitingastað, bar, strönd og
verslun áfangastaðarins umsögn. Í appinu eru þá gagnvirk kort. Ýmis
„leyndarmál“ fylgja með, svo sem hvað íbúar ákveðins hverfis í borginni
panta sér alltaf á aðalhverfispöbbnum og hvaða bar þeir fara á eftir vinnu
og jafnframt hvert er besta borðið á staðnum.
Hægt er að nota stóran hluta appsins án þess að vera nettengdur.
TELEGRAPH TRAVEL GUIDES-APPIÐ
Róm er meðal þeirra borga sem Telegraph appið fjallar ítarlega um.
20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.1. 2016
Ferðalög og flakk
NÚTÍMAMAÐURINN FERÐAST
Snjallari og
þægilegri
ferðalög
SMÁFORRIT FYRIR SNJALLSÍMA OG SPJALDTÖLVUR SEM
ERU SÉRSNIÐIN AÐ ÞÖRFUM FERÐALANGSINS ERU
ÓTALMÖRG. SNIÐUGT ER AÐ SKOÐA ÖPPIN TIL DÆM-
IS Á HÓTELINU ÁÐUR EN LAGT ER AF STAÐ SVO
SÍMREIKNINGURINN SÉ EKKI OF HÁR, NÝTA NETTENGD
KAFFIHÚS OG SVO ERU SUM ÞEIRRA ÞANNIG AÐ ÞAU
MÁ NOTA ÁN NETTENGINGAR.
Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is
Það kemur sér vel þegar verslað er er-
lendis, hvort sem er í verslunarmið-
stöðinni í Glasgow eða á götumark-
aðnum í Marokkó, að geta umreiknað
verðið í erlenda gjaldmiðlinum í ís-
lenskar krónur og átta sig þannig bet-
ur á verði hlutanna og eyðslu sinni.
Converter Plus-appið gerir þetta á
augabragði en gagnast líka á ótal fleiri
vegu. Til dæmis umreiknar það hita-
stigið úr Fahrenheit í Celcius á strönd-
inni, snýr pundum í kíló á ávaxtamark-
aðnum og alls kyns öðrum
mælieiningum sem verða á vegi ferða-
langanna og þeir vilja átta sig betur á.
Aðgengilegt fyrir iOS.
UMREIKNAÐU ALLT
Converter Plus-appinu ætti að hlaða niður fyrir verslunarferðina.
Expedia er ein þekktasta og vinsæl-
asta bókunarsíða heims og óþarfi
að kynna hana fyrir ferðafólki.
Hins vegar er appið þeirra eitt-
hvað sem er vert að minnast á en í
gegnum það detta inn einstök hót-
el-, bílaleigu- og flugtilboð á allra
síðustu mínútum sem koma ekki í
gegnum vefsíðuna sjálfa. Þess má
geta að Expedia á alltaf að geta
fundið besta verðið og þeir ábyrgj-
ast að millifæra mismuninn ef þú
finnur ódýrara verð á flugi, bíla-
leigubíl eða hótel innan 24 klst. frá
bókun. Með hótel gilda tveir dagar.
Hægt er að fá appið fyrir iOS,
Windows síma og Android.
FINNA OG
ÁBYRGJAST BESTU
TILBOÐIN
Expdia appið er gott til að bóka hótelherbergi á síðustu stundu.
Margir nýta sér Google Trans-
late á vefnum en appið þeirra
fyrir Android og iOS nær nýj-
um hæðum og gagnast ferða-
löngum frábærlega. World
Lens-appið er innbyggt í smá-
forritið sem þýðir texta sem
það les, meðal annars rúss-
nesku, frönsku og ítölsku.
Þannig má beina myndavél-
arlinsu snjallsímans að text-
anum og appið þýðir um leið.
Einnig er hægt að láta forritið
þýða talað tungumál, sex tals-
ins, yfir á ensku og hægt er að
nýta sér þessa viðbót án þess
að vera nettengdur. Þessi síð-
asta viðbót virkar þó aðeins
fyrir Android en iPhone-
notendum er bent á Yandex
Translate-appið til þessa sem
þýðir rússnesku, frönsku,
þýsku, ítölsku og spænsku.
SPJALLAÐU OG
SKILDU MEÐ APPI
Með Google translate-appinu þarf
ekki lengur að fá matseðil á tungumáli
sem maður skilur.