Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.01.2016, Blaðsíða 34
Tíska *Fatahönnuðurinn og húmoristinn Marc Ja-cobs birti í vikunni myndband af sér á In-stagram þar sem hann hermdi eftir einufrægasta atriði kvikmyndarinnar Zoolander,en í kvikmyndinni er óspart gert grín aðtískuheiminum. Þar endurgera Jacobs og fé-lagar hið sprenghlægilega „orange mocha
frappuccino“-atriði sem allir aðdáendur
kvikmyndarinnar eiga að kannast við.
Marc Jacobs hermir eftir Zoolander
H
vað heillar þig við tísku?
Tíska er náttúrlega bara eitt form tján-
ingar og það er kannski helst það sem
heillar mig við hana.
Hvernig myndir þú lýsa stílnum þínum?
Ég er ekki viss um að ég hafi neinn sérstakan
stíl. Hann getur allavega verið mjög fjölbreyti-
legur en dags daglega
er hann frekar afslapp-
aður. Ég er voða lítið
gefin fyrir að klæða
mig í liti svo honum
yrði kannski best
lýst sem dökkum.
Áttu þér uppáhalds
flík eða -fylgihlut?
Úlfsskinnshúfan
mín er í miklu
uppáhaldi, sér-
staklega á veturna!
Hún er bæði hrikalega flott
og hlý en mér þykir ein-
staklega vænt um hana vegna
þess að móðir mín gaf föð-
ur mínum hana áður en
ég fæddist en nýlega arf-
leiddi pabbi mig að húf-
unni. Svo hún hefur líka
persónulegt gildi.
Hvaða þekkta andlit
finnst þér með flottan
stíl?
Kannski pínu klisja en mér
finnst Rihanna alltaf heit. Daphne
Guinness stígur heldur aldrei
feilspor.
Hvaðan sækir þú innblástur að klæðnaði?
Víðsvegar. Til dæmis úr tímaritum, instagram og
frá vinum.
Áttu þér eitthvert gott stef, ráð eða mottó,
þegar kemur að fatakaupum?
Svart, svart, svart. Og gamla góða: Kaupa frekar
færri vandaðri flíkur en að fara hamförum í H&M.
Áttu þér einhvern uppáhaldsfatahönnuð?
Olivier Rousteing fyrir Balmain finnst mér tryllt-
ur.
Skipuleggur þú fatnað dagsins kvöldið áður eða
finnurðu fötin til á morgnana?
Ég er sennilega óskipulagðasta manneskja sem ég
veit um. Þannig að fötin eru fundin í flýti á morgnana.
Hvað er nauðsynlegt í snyrtitöskuna?
Góður hyljari, svartur liquid liner og rauður varalit-
ur er must.
Hver hafa verið bestu kaupin þín
fatakyns?
Nýlega væri það sennilega sam-
festingur sem ég keypti í London
fyrir rúmu ári og hefur verið not-
aður við öll tilefni síðan.
ÚLFSSKINNSHÚFAN Í MIKLU UPPÁHALDI
Sara Regal segist voða
lítið gefin fyrir að
klæða sig í liti og kaup-
ir yfirleitt svört föt.
Morgunblaðið/Golli
Fjölbreyttur
og afslappaður
fatastíll
Sara heldur upp á
hönnun Oliviers
Rousteings, yfir-
hönnuðar tísku-
hússins Balmain.
Rauður varalitur
er nauðsynlegur í
snyrtiveskið.
Sara heldur upp
á stíl söngkon-
unnar Rihönnu.
SARA REGAL, NEMANDI VIÐ HÁSKÓLA ÍSLANDS,
HELDUR UPP Á DÖKKA LITI Í FATNAÐI EN HÚN SÆKIR
INNBLÁSTUR Í TÍMARIT, INSTAGRAM OG VINI. SARA
SEGIST JAFNFRAMT KAUPA FREKAR FÆRRI VANDAÐRI
FLÍKUR EN AÐ FARA HAMFÖRUM Í H&M.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
Daphne Guinness er
alltaf flott.