Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.01.2016, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.01.2016, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.1. 2016 N ýja árið er orðið tveggja vikna. Það hefur satt best að segja ekki farið vel af stað. Gang- verkið hikstar og hnökrar þess virðast ekki bundnir við einn stað eða einn vanda. Aðvör- unarljósin sem blikka láta eins og þau komi úr öllum áttum. Tími reddaranna liðinn Það er fremur stutt síðan að venjulegt dauðlegt fólk hætti að geta gert við bifreiðar. Menn á miðjum aldri muna þann tíma þegar rennireiðin rann í stans „langt upp í sveit“ og glaðbeittum borgarbílstjóra var brugðið. En á næsta bæ, eða í mesta lagi á þar næsta var laginn og liðtækur maður sem kastaði öllu frá sér og gat gert við nánast allt eða í það minnsta „mixað“ þetta svo, að dygði á næsta verkstæði. Nú er það liðin tíð að keyrt sé fram á bíl þar sem húddið er gapandi opið og sitjandi manns og annars, stendur út úr því. Nú blikka ljós um mælaborðið og stundum mörg í einu. Bíllinn sjálfur lætur eins og allt sé enn í sæld- inni en það skiptir engu. Blikki gul ljós er voðinn ekki vís. En blikki rauð er hann það. Af 500 síðna handbók má ráða að við þetta rauða ljós verði ekki deilt. Sveigja skuli út í kant og leggja þar bílnum, drepa á vél og hringja eftir trukk með aftanívagn. Því næst er rétt að reyna að útskýra fyrir frúnni (ef karlrembusvín, sem er viðurkennt samheiti yfir 99% karlkynsins, á í hlut) og fjórum börnum, af hverju sumarleyfistúrinn er að taka óvænta stefnu og úr þessu verði bætt næsta sumar. Þegar bifreiðin kemst að á verkstæði er hún tengd tölvu. Ef ólánið endar þarna úrskurðar tölvan að pera sé ónýt í mælaborðinu. Flest önnur tiltæk svör þýða að viðkomandi sé í vondum málum. Vísitölur lausari í sér en aðrir hnappar? Það má auðvitað halda í þá von að blikkandi perur á milljón mælaborðum alþjóðastjórnmála og heimsbú- skapar séu að gefa sig en allt annað sé í himnalagi. En samlíkingarnefnan, nær ekki lengra en þetta. Enn er ekki sú tölva til sem á augabragði getur lesið úr æpandi öryggisperum alþjóðamálanna. Og þær perur hafa nú blikkað í hálfan mánuð. Sú samfella gerir bæði spekúlanta og fróðleiks- menn í þessum fræðum órólega. Nær er að segja að þeir séu allir á nálum. Því er slegið upp í stórblöðum, að FTSE-vísitalan, sem kölluð er flaggskip breskra vísitalna sýni að á markaðnum sem hún mælir hafi 110 milljarðar punda þurrkast út á 10 dögum. (Margfalda má með 200 til að heyra hvernig talan hljómar í íslenskum krónum.) FTSE-vísitalan hefur ekki verið lægri í þrjú ár. Aðr- ar evrópskar vísitölur segja áþekka sögu. Þetta fall kemur í kjölfar enn eins afhroðs á kín- verska hlutabréfamarkaðnum, en Shanghai-vísitalan lækkaði í fyrri nótt, sem var föstudagurinn þeirra, um 4% og hefur vísitalan fallið um tæp 21% á aðeins þremur vikum. Kínversk bréf hafa ekki legið neðar í rúmt ár. Og þegar þetta er skrifað, síðdegis á föstu- dag, virðist bandaríska Dow-vísitalan vera í frjálsu falli, eins og það er stundum kallað. Ekki er útilokað að hún rétti aðeins úr kút þegar á dag líður. Brestir og brak Áður hefur verið rakið á þessum vettvangi hversu óvenjuleg og brothætt staðan er á alþjóðavettvangi um þessar mundir. Eftir miklar fórnir er Afganistan að hverfa í eitraðan faðm talibana á ný. Kjarnorku- veldið Pakistan er eins og púðurtunna og vestan við það er annað stórveldið til á þessum slóðum. Írönum eru að bætast liðlega 100 milljarðar dollara, sem áður voru frystir fyrir þeim í erlendum bönkum. Þetta eru verðlaun til þeirra fyrir að gera samning um framleiðslu kjarnorkuvopna. Bandaríkjaforseti hampar þessum samningi eins og hverju öðru sigur- tákni. Í honum felst þó óneitanlega að eftir aðeins 8 ár verður Íran orðið lögmætt kjarnorkuveldi sem lýt- ur stjórn klerkaveldis af verri kantinum. Og það ræð- ur þegar yfir flugskeytum sem geta flutt slíkar sprengjur um óravegu. Skýring Obama á því, hvers vegna hann sé sigri hrósandi í svo veikri stöðu, er sú, að Íran hafi, hvað sem menn reyndu, verið þess umkomið að framleiða kjarnorkuvopn innan tveggja mánuða. Því hafi nú verið frestað a.m.k. um 8 ár. Er það nú víst? Aðeins eru fáeinar vikur þar til íranskar fjárhirslur verða fylltar af fé. Sameinuðu þjóðirnar munu aldrei fást við að skella viðskiptaþvingunum á Íran á nýjan leik, hvernig svo sem klerkarnir munu umgangast samn- inginn. Hingað til hefur verið lítið hald í yfirlýsingum og loforðum Írans og ólíklegt að það hafi breyst. Engum ætti því að koma á óvart þótt Íran ætti margar kjarnorkusprengjur í vopnabúri sínu innan árs. Saudi-Arabar leyna því lítt, að þeir treysta Banda- ríkjunum, sínum helsta bandamanni í 80 ár, verr en áður. Egyptum er eins farið eftir að Obama skildi Mubarak eftir á köldum klaka og virtist leggja blessun sína yfir Bræðralag múslíma undir forystu Morsis. Og svo ólíklega sem það hljómar er andinn í yfir- völdum Ísraels ekki mjög ólíkur. Eitt eilífðar vandræðaástand og titrandi toppar Og enn er evru-vandinn í Evrópu óleystur og hefur stórlega versnað síðustu misserin. Spánn er stjórnlítill um þessar mundir eftir sundr- andi kosningaúrslit og ekki er ástandið burðugra í Portúgal. Við bætast vaxandi líkur á því að Katalónía brjótist undan valdi stjórnarinnar í Madrid. Vandi Grikklands er enn óleystur. Fréttaskýrend- ur halda sig við þann frasann að hinni beygluðu grísku bjórdós hafi einungis verið sparkað fáeina Haukur treysti því, að hvað sem verðbólgu liði yrðu alltaf fjórir 25-eyringar í krónunni. Önnur efnahagslögmál eru ótryggari Reykjavíkurbréf 15.01.16
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.