Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.01.2016, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.01.2016, Blaðsíða 41
17.1. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 41 brottflutningur hluti af þessum slitum? „Ég fattaði það kannski ekki þá, en eftir á sé ég að það hefur líklega verið þannig, ákveðinn flótti. GusGus hafði verið mitt líf frá 15-19 ára aldri og ég stóð þarna uppi og spurði mig hvað ég ætti eiginlega að gera núna. Ég hafði ekki náð að tengjast öðrum í íslensku tónlistarlífi, strákarnir voru þeir einu sem ég þekkti. Ég sá ekki fyrir mér að ég gæti haldið áfram í tónlist hér heima og missti hálfpartinn trúna á sjálfri mér. Fór að trúa því sem við mig var sagt; að ég hefði hálfpartinn verið þarna upp á punt. Það tók mig nokkur ár að safna krafti og sækja um í London Central Contemporary Music.“ Hafdís komst inn í þann skóla í tónsmíða- nám en skólinn tekur aðeins inn 12 nemend- ur á ári. Hún útskrifaðist með hæstu mögu- legu einkunn frá skólanum bæði í söng og tónsmíðum. „Skólinn varð upphaf að nýrri og bættri sjálfmynd minni. Ég var kannski ekki svona glötuð eftir allt saman. Það tók mig dálítinn tíma að vinna úr kvíða og áfallastreituröskun eftir GusGus. Þegar maður er svona ungur og margir á móti einum upplifirðu þetta eins og einelti.“ Áður en kom að því að Hafdís Huld hóf nám sitt vann hún þó að fjölbreytilegum verkefnum úti. Strax eftir GusGus bauðst henni að koma til Bandaríkjanna og vinna fyrir DreamWorks, komst á svokallaðan þró- unarsamning. „Ég bjó á hóteli í Hollywood Boulevard og var sótt á morgnana til að fara í stúdíó að semja popptónlist. Ég fann smám saman að ég var ekki tilbúin að fara þessa leið. Þetta var á þeim tíma sem Britney Spears og Christina Aguilera voru aðalmálið. “ Þær voru tvær á þróunarsamningi hjá DreamWorks á þessum tíma, Hafdís Huld og Nelly Furtado sem kom svo með smellinn „Im like a Bird, I only fly away“ og hefur selt um 20 milljónir breiðskífa. „Ég var þarna í magabolnum, gat sungið og samið tónlist, og þeim hjá DreamWorks þótti ég tilvalin í þetta. Þetta var mögnuð lífsreynsla út af fyrir sig og úr þessari vinnu á ég heila poppplötu sem er tilbúin. Ég geri kannski eitthvað skemmtilegt við hana einn daginn.“ Um svipað leyti kynntist Hafdís Huld þá- verandi umboðsmanni Sigur Rósar sem setti sig í samband við hana þegar hann frétti að hún væri hætt í GusGus. Fyrir tilstilli hans fór hún til London og byrjaði að vinna með umboðsfyrirtækinu Big Dipper. Þar kynnist hún lagahöfundinum og tón- listarmanninum Boo Hewerdine og fór að semja tónlist með honum. Hewerdine er tal- inn einn afkastamesti lagahöfundur Bret- lands og auk þess að semja tónlist fyrir sjálfan sig hefur hann samið lög fyrir heims- þekkta listamenn á borð við Robbie Willi- ams, Sia, Natalie Imbruglia, Paul Young, Mel C og fleiri. Hewerdine hefur reynst Hafdísi Huld mikill vinur sem við komum síðar að. „Sjálfur er hann þjóðlagasöngvari og þeg- ar ég fer að semja með honum dett ég niður á það að lagatextar mínir virka ótrúlega vel við þessa gerð tónlistar. Við sömdum lög sem urðu svo uppistaðan að Dirty Paper Cup og þá opnaðist fyrir mér hvernig lista- maður ég vildi vera. En inn í þetta tímabil blandast ýmislegt. Ég fer að syngja með FC Kahuna hjá Min- istry of Sound. Ég vinn fyrir mér í þessum elektróníska danstónlistarheimi og er svo meðfram því að semja einhvers konar kassa- gítars-þjóðlagaplötu. Þetta voru tveir ólíkir heimar en virkaði samt vel.“ Í tónlistarnáminu kynntist Hafdís Huld unnusta sínum, Alisdair Wright, og lokaverk- efni sín unnu þau saman og hlutu verðlaun fyrir. „Þegar ég útskrifast 26 ára gömul og átta mig á því að ég er farin að semja kvik- myndatónlist, útsetja verk fyrir strengja- sveitir og semja eigin verk ákveð ég með sjálfri mér að byrja á því af fullum krafti að gera mína eigin tónlist og leggja áherslu á það.“ Strax frábærir dómar Fyrsta sólóplata Hafdísar Huldar, Dirty Pa- per Cup, kom út stuttu eftir útskriftina úr skólanum og hlaut meðal annars Íslensku tónlistarverðlaunin árið 2007. Sömuleiðis náði hún eyrum tónlistarpressunnar ytra, fékk lofsamlega dóma og góða spilun. Umfjöllun um hana birtist í fjölmiðlum Bretlands og fékk 4-5 stjörnur í blöðum á borð við The Guardian. „Okkur var boðið að koma á tónleika- ferðalag með Paolo Nutini og við ferðuðumst með honum um Bretland, Skotland og þarna voru veinandi 3-4.000 áhorfendur á öllum tónleikum. Þá fattaði ég allt í einu að það gat í raun og veru verið gaman á tónleika- ferðalögum. Í hljómsveitinni minni voru auk Alisdair vinir mínir Steve Lind og Sarah Croft og við fjögur mynduðum sveit sem spilaði afslapp- aða tónlist, sem var algjörlega á mínum for- sendum og það var góð tilfinning að ferðast með bandi sem var lítið gefið fyrir drama- tík.“ Næstu 2-3 árin voru undirlögð af tónleika- ferðalögum og Hafdís Huld spilaði nú aftur á „Þegar ég útskrifast 26 ára gömul og átta mig á því að ég er farin að semja kvikmyndatónlist, útsetja verk fyr- ir strengjasveitir og semja eigin verk ákveð ég með sjálfri mér að byrja á því af fullum krafti að gera mína eigin tónlist og leggja áherslu á það,“ segir Hafdís Huld Þrastardóttir tónlistarkona en hún útskrifaðist úr London Central Contemporary Music í tónsmíðum og söng. Skólinn tekur aðeins 12 nemendur á ári. Morgunblaðið/Eggert * Mér skilst að ég sé yngsti Íslendingurinn til aðskrifa undir útgáfusamning sem þennan erlend-is og ég veit að foreldrar mínir hefðu aldrei leyft mér að vera á tónleikaferðalögum svona ungri nema af því að þau voru viss á því að ég var með allt mitt á hreinu. Og hafði engan áhuga á eftirpartíunum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.