Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.01.2016, Qupperneq 39
metra niður eftir götunni. Rétt eins og þetta væri
ekki nóg bætist illleysanlegur flóttamannavandi Evr-
ópu við, sem magnaðist um allan helming eftir að
Merkel, sem fram að því var kölluð kanslarinn
óskeikuli, fór út af í pólitískri lausamöl og endaði á
þakinu eftir ótal veltur.
Kvennakúgunin í Köln um síðustu áramót, sem
reynt var að þegja í hel, opnaði augu margra fyrir
þeim ógöngum sem Þjóðverjar eru komnir í.
Jean-Claude grætur sáran
Frétt mbl.is í fyrradag undirstrikar þetta enn: „Jean-
Claude Juncker, forseti framkvæmdastjórnar Evr-
ópusambandsins, segir að ríkjum ESB hafi mistekist
að takast á við flóttamannavandann. Hann varar við
hertu landamæraeftirliti og telur að það muni ganga
að innri markaðinum dauðum.
Juncker hefur einnig heitið því að hætta ekki við
áform sín um að flytja þúsundir hælisleitenda frá
Ítalíu og Grikklandi, en áformin voru samþykkt í
október eftir að þónokkrar austurevrópskar borgir
höfðu lýst yfir andstöðu við þau.
Til þessa hafa 272 flóttamenn verið fluttir til ann-
arra ríkja af þeim 160 þúsundum sem ríki ESB sam-
þykktu að flytja á annan stað.
„Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur
skilað sínu,“ sagði Juncker á blaðamannafundi. „En
fjöldi ríkja ESB hefur ekki náð að fullu að fram-
kvæma það sem við þurfum að gera og það sem þarf
að gera.““
Juncker kvartaði sáran yfir því, að
„ríki ESB hefðu hert landamæraeftirlit sitt. Það
myndi á endanum ógna Schengen-kerfinu um frjálsar
ferðir fólks án vegabréfa.
„Sá sem drepur Schengen mun á endanum ganga
að innri markaðinum dauðum,“ sagði hann.“
„Án Schengen, frjálsra ferða vinnufólks og án frels-
is evrópskra þegna til að ferðast, þá er engin þörf
fyrir evruna,“ sagði hann.
„ekki náð að fullu...“
Tölurnar sem Juncker nefndi til sögunnar væru
sprenghlægilegar væri ekki svo mikil alvara liggjandi
undir.
Í október s.l. ákváðu leiðtogar ESB að flytja 160
þúsund flóttamenn af rúmlega milljón á milli ríkja
sambandsins. Og þremur mánuðum síðar hafa 272
flutt. Það eru 90 flóttamenn á mánuði. Ef að taktur-
inn verður áfram þessi mun verkefninu ljúka eftir 148
ár. Þá verður Juncker orðinn eldri en Abraham eða
rúmlega 200 ára.
En það kaldranalega er, að þessa sömu þrjá mánuði
sem 272 flóttamenn voru færðir til, bættust tugir þús-
unda nýrra flóttamanna við þá sem fyrir voru í ESB-
löndunum.
Þessar tölur minna helst á yfirlýsingar Obama
um að Bandaríkin myndu verja 500 milljónum doll-
ara til að þjálfa viðurkennda sýrlenska uppreisn-
armenn til að berjast við einræðisherrann í Damas-
kus. Ári síðar kom í ljós að tekist hafði að þjálfa 5
menn!
Upphæðin, 500 milljónir dollara, er ekkert ómynd-
arleg. Í íslenskum krónum talið eru þetta 65 millj-
arðar, svo sem eins og einn Landspítali fullbyggður,
en án búnaðar.
Það verður ekki sagt að þess konar afköst helstu
valdamanna ýti undir bjartsýni í henni veröld, og það
um þær mundir þegar flest efnahagskerfi heims
hökta um með öfugum formerkjum.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
* Í október s.l. ákváðu leiðtogarESB að flytja 160 þúsundflóttamenn af rúmlega milljón á milli
ríkja sambandsins. Og þremur mán-
uðum síðar hafa 272 flutt. Það eru
90 flóttamenn á mánuði. Ef að takt-
urinn verður áfram þessi mun verk-
efninu ljúka eftir 148 ár.
17.1. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 39