Morgunblaðið - 03.02.2016, Side 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. FEBRÚAR 2016
Laufey Rún Ketilsdóttir
laufey@mbl.is
Ég kom hingað fyrst fyrirsextán árum með krakkaúr skólanum mínum og þávarð ég fyrst ástfangin af
Íslandi,“ segir Julia Jones, jarð-
fræðikennari og eigandi ferðaskrif-
stofunnar Iceland Traveller, en hún
hefur í gegnum árin komið með
bresk skólabörn til landsins þar sem
hún kynnir þau fyrir landinu.
Fljótlega áttaði hún sig á því að
hún vildi setja á laggirnar ferðaskrif-
stofu sem myndi gera henni kleift að
vinna við það sem hún elskaði hvað
mest; að miðla þekkingu sinni á Ís-
landi og kynna landið fyrir sam-
löndum sínum í Bretlandi. „Ég hætti
því í kennslunni og setti á laggirnar
ferðaskrifstofuna Iceland Traveller
árið 2009,“ segir Julia glöð í bragði.
Stækkar jafnt og þétt
Julia bar hitann og þungann af
starfseminni fyrst um sinn en hefur
nú fengið til liðs við sig tvo starfs-
menn enda hefur starfsemin
blómstrað og vaxið jafnt og þétt í
gegnum árin. Til hennar sækja nú
aðallega Bretar, Bandaríkjamenn og
Ástralir en það segir hún vera mátt
netsins. „Ég setti upp vefsíðu fyrir
þjónustuna þar sem ég bauð upp á
skipulagðar ferðir um Ísland.“ Ferð-
irnar byggjast á þekkingu hennar á
landi og þjóð ásamt sögu þess og
menningu.
„Ferðirnar verða þó oft sér-
sniðnar að hverjum og einum því það
kemur í ljós þegar við förum að tala
við viðskiptavinina að þeir hafa sínar
hugmyndir um hvað þeir vilja gera á
Íslandi,“ segir Julia. Til dæmis sé af-
ar algengt að Bretar sæki hingað til
Smitar aðra af ást
sinni á landi og þjóð
Julia Jones varð ástfangin af Íslandi fyrir rúmum sextán árum. Þá starfaði hún
sem jarðfræðikennari í Bretlandi en söðlaði fljótlega um og setti á laggirnar
ferðaskrifstofuna Iceland Traveller sem býður upp á skipulagðar ferðir til Íslands.
Ferðirnar eru fjölbreyttar og taka mið af sögu og menningu þjóðarinnar.
Starfsemin hefur vaxið jafnt og þétt enda hafa ferðalangarnir góða sögu að segja.
Skógafoss Farið er víða um landið í skipulögðum ferðum Juliu um Ísland.
Ljósmynd/Bryndís Kristjánsdóttir
Kastali Guildford er bækistöð ferðar Íslendinga til Suður-Englands í maí.
Áhugi á nýsköpun og frumkvöðla-
mennt einskorðast ekki bara við
kennara og nemendur og þá sem
starfa í nýsköpunar- og sprotafyr-
irtækjum. Hugtökin eru þó sumum
ennþá býsna framandi og margir
foreldrar gætu efalítið vel hugsað
sér að fræðast meira um nám
barna sinna sem í auknum mæli
snýst um nýsköpun og frum-
kvöðlamennt. Og hvað efst er á
baugi hjá kennurum þeirra ef því
er að skipta.
Þótt vefsíða Félags kennara og
áhugafólks um nýsköpun og frum-
kvöðlamennt fjalli að miklu leyti
um viðburði, námskeið og annað
sem lýtur beint að kennurum,má á
síðunni verða margs vísari um
frumkvöðlamennt, nýsköpun, skap-
andi skólastarf og eflandi kennslu-
fræði svo fátt eitt sé talið. Skil-
greiningarnar eru þar svart á hvítu.
Að læra meira og meira – meira í
dag en í gær kemur öllum til góða.
Vefsíðan www.fnf.is
Morgunblaðið/Sverrir
Frumkvöðlar framtíðarinnar? Nám snýst í auknum mæli um nýsköpun.
Skapandi nám í brennidepli
Barþjónaklúbbur Íslands stendur fyr-
ir hinni árlegu kokteilhátíð Reykjavík
Cocktail Weekend í samstarfi við
helstu veitinga- og skemmtistaði í
Reykjavík. Hátíðin hefst í dag, mið-
vikudag, og stendur til 7. febrúar. Yfir
40 staðir taka þátt og verður dagskrá
í gangi á stöðunum yfir hátíðina. For-
keppni í Íslandsmeistaramóti bar-
þjóna og vinnustaðakeppni verður í
Gamla bíói á morgun, fimmtudag, þar
sem helstu vínbirgjar landsins kynna
vöru sína. Á laugardaginn verður
Master Class á Center Hótel Plaza
með fyrirlestrum og fróðleik um vín
og jafnframt vínkynning.
Hátíðinni lýkur sunnudaginn 7.
febrúar, en þá fer fram úrslitakeppni í
Íslandsmóti barþjóna og keppni milli
vinnustaða í kokteilgerð í Gamla bíói.
Galakvöldverður og fjör fram eftir
kvöldi.
Barþjónaklúbbur Íslands
Kokteilhátíð í
Reykjavík
Vín Barþjónar keppa í kokteilgerð.
„Andleg næring og dúndurskemmt-
un,“ segir Tómas Oddur Eiríksson,
jógakennari og mannvistarlandfræð-
ingur, um veislu sem blásið verður til
kl. 20-22.30 í Gamla bíói fimmtudag-
inn 11. febrúar. Tilefnið er tveggja ára
starfsafmæli Yoga Moves.
„Viðburðurinn er hannaður til að
lyfta upp mannsandanum. Ýmis tján-
ingarform renna saman í eitt; kraft-
mikið jóga, dans við tónlist, hug-
leiðsla og slökun í lokin.
Þátttakendur koma með mottur með
sér og hreiðra um sig í sal Gamla bíós
sem hentar einstaklega vel fyrir við-
burð af þessu tagi. Það er góður andi
í húsinu og fyrsta flokks hljóðkerfi,“
segir Tómas Oddur og bætir við að
undanfarið hafi orðið mikil vakning
um núvitund og dans. Einnig hafi sú
þróun orðið víða um heim að fólk kýs
að koma saman og dansa og
skemmta sér allsgáð og iðka jóga
samhliða.
Orkan í tónlistinni
Sjálfur hefur Tómas Oddur haft
plötusnúð á sínum snærum í vikuleg-
um jógatímum í Dansverkstæðinu.
„Hver jógakennari útfærir kennsluna
með sínum hætti. Þar sem ég er mik-
ill tónlistarunnandi og ástríðudansari
ákvað ég að prófa að blanda saman
jóga, dansi og hugleiðslu í nærveru
plötusnúðs,“ segir hann og lýsir nán-
ar fyrirkomulaginu í Yoga Moves og
þætti plötusnúðsins: „Hann lætur
seiðandi tóna nostra við eyrun á
meðan jógaiðkendur draga djúpt
andann í flæðandi hreyfingum. Orkan
í tónlistinni eykst jafnt og þétt og
þegar takturinn er orðinn þéttur
Yoga Moves fagnar tveggja ára starfsafmæli
Kraftmikið jóga, dans við tón-
list, hugleiðsla og slökun
Afmælisveisla Tómas Oddur ætlar
að bjóða upp á margþætta upplifun.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Hafið samband við Anders Ingemann Jensen í síma +45 4020 3238 og spjallið um óskir ykkar og væntingar.
Það mun vera möguleiki á að fá einkafund með EBK um byggingaráætlun, annað hvort 9. eða 10. febrúar.
Fundurinn verður haldinn á Hótel Reykjavík Centrum, Aðalstræti 16, 101 Reykjavík. Nauðsynlegt er að panta
fundartíma gegnum netfangið aj@ebk.dk, í síma +45 4020 3238 eða á vefnum ebk-hus.is. Anders talar dönsku
og ensku.
EBK HUSE A/S hefur meira en 40 ára reynslu í uppsetningu á sumarhúsum, þar sem
dönsk hönnun og gæði eru í fyrrirúmi. EBK hús eru meðal hinna leiðandi á markaðinum
með 4 deildum í Danmörku, 3 í Þýskalandi, 1 í Noregi og 1 í Svíþjóð. Við höfum líka
margra ára reynslu í að byggja á Íslandi, í Þýskalandi, Færeyjum, Svíþjóð og Noregi.
Við bjóðum danska hönnun til byggingar og innréttingar
- við höfum nú þegar byggt 70 hús á Íslandi.
EBK HUSE A/S, Skovsøvej 15, DK-4200 Slagelse
Anders Ingemann Jensen, Sími +45 4020 3238, Netfang: aj@ebk.dk
16
04
3
Hefur þú hug á að byggja nýtt sumarhús?
WWW.EBK-HUS.IS
DÖNSK HÖNNUN
OG ARKITEKTÚR