Morgunblaðið - 03.02.2016, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 03.02.2016, Blaðsíða 30
30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. FEBRÚAR 2016 Nýsköpunar- og tækniráðstefnan Sónar +D verður í fyrsta sinn haldin hér á landi, í Hörpu dagana 17. til 19. febrúar, samhliða tónlist- arhátíðinni Sónar Reykjavík. Ráð- stefnan er opin öllum gestum há- tíðarinnar og segja aðstandendur hana vera heilmikla viðbót við þeg- ar auglýsta dagskrá hátíðarinnar. Meðal þátttakenda í Sónar +D eru sumir af þeim rúmlega 70 lista- mönnum og hljómsveitum sem koma fram á Sónar Reykjavík í ár, auk erlendra fyrirlesara á sviði samfélagsmiðla, tónlistarsköpunar og miðlunar. Aðstandendur Sónar segja í til- kynningu að allt frá því hátíðin var fyrst haldin í Hörpu árið 2013 hafi hún hlaðið utan á sig og sé nú von á um 1.500 erlendum gestum. „Mikil þróunarvinna hefur farið fram á bakvið Sónar +D hjá Són- ar-hátíðinni í Barcelona þar sem markmiðið hefur verið að bjóða upp á sérstaka dagskrá sem kynn- ir það nýjasta í nýsköpun, tónlist og tækni – sem og að skapa ný tækifæri fyrir fólk og fyrirtæki. Sónar +D í Barcelona sækja um 6.000 manns,“ segir í tilkynningu og bætt er við að stefnt sé á að +D verði hluti af Sónar Reykjavík næstu ár, samhliða því sem hátíðin stækkar og erlendum gestum hennar fjölgar. Konur í tónlist Dagskrá Sónar +D í Reykjavík skiptist niður í nokkur þemu og verður boðið upp á pallborðs- umræður, kynningar á tækni og tækjum og námskeið. Meðal dag- skrárliða eru pallborðsumræður um konur í tónlist þar sem The Black Madonna ræðir við Ellen Al- lien, Sölku Sól og Natalie Gunn- arsdóttur um mýtuna um gler- þakið; Ólafur Arnalds mun ræða við Pétur Jónsson um hvernig hann hefur lagað sig að misumandi verkefnum og um leið verið trúr sinni köllun sem tónlistarmaður; og Margeir Steinar Ingólfsson mun ræða við samfélagsmiðlafröm- uðinn Oliver Luckett um það hvernig samfélagsmiðlar hafa breytt markaðssetningu á tónlist og tónlistarhátíðum. Þá koma saman fulltrúar nokk- urra af framsæknustu útgáfufyr- irtækjum landsins og ræða stöð- una, tilkomu Spotify og áhrif streymiþjónusta á útgáfu tónlistar. Skjáir og myndvarpar eru orðn- ir staðalbúnaður a tónlistar- hátíðum í dag og sú upplifun verð- ur inntakið í samtali Atla Bolla- sonar og Gabríels Benedikts Bachmann um hvað þau áhrif sem grafík og framsetning á henni í lif- andi tónlistarflutningi geti haft mikil áhrif á upplifun áhorfenda. Tónlistarmaðurinn Frank Murd- er mun kynna módular-hljóðfæri sem hann hefur hannað og segja frá því þegar hann fór að þróa tæki til að tengja saman upplifun hans og áhorfenda. Dirty Electronics stendur fyrir námskeiði þar sem nemendum verður kennt að búa til sinn eigin synthesizer og spila á hann með hjálp kennara frá Mute. Námskeið þetta hefur verið haldið víða um lönd við miklar vinsældir. Pioneer mun kynna nýjustu tækin fyrir plötusnúða; Vínyll.is kynnir hvernig hægt er að fram- leiða vínylplötur með litlum til- kostnaði og tíma auk þess sem Orgelsmiðjan kynnir eitt af þeim 37 orgelum sem fyrirtækið hefur smíðað. Gestum býðst að setja upp sýnd- arveruleikagleraugu og upplifa sýndarveruleikamyndband frá Warp Records og tónlistarmann- inum Squarepusher. Krakkar semja tónlist Sónar +D fer fram í Flóa í Hörpu síðdegis alla þrjá dagana sem Sónar Reykjavík stendur yfir. Þá verður einnig í húsinu dag- skráin Sónar Krakkar, í samvinnu við Símann. Þar fá 48 börn á aldr- inum 9 til 13 ára tækifæri til að læra að semja tónlist á iPada und- ir leiðsögn tónlistarfólksins Borko og Rúnu Esradóttur. Ráðstefna haldin samhliða Sónar  Fjöldi dagskrárliða á Sónar +D Salka Sól Eyfeld Atli Bollason Ólafur Arnalds Rúna Esradóttir Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Ég geri ráð fyrir að flytja eitthvað af eldri lögum, en megináherslan verður samt á nýja músík,“ segir tónlistarmaðurinn Högni Egilsson aðspurður um efnisskrá sína, en hann kemur fram á tónleikum Blikktrommunnar í Kaldalóni Hörpu í kvöld kl. 20. „Að undanförnu hef ég verið að vinna í sólóplötu sem ég er að und- irbúa og ég mun vonandi flytja sem mest af nýju efni á tónleikunum. Mér finnst svo spennandi að fást við óútsprungna músík, því þá get ég enn haft áhrif á hana og hvernig hún er að myndast. Það fer ákveðinn dans af stað við tónsmíðarnar. Það skapast alltaf nýjar víddir inni í lög- unum við það að handfjatla þau blíð- lega,“ segir Högni, sem flytja mun tónlist sína einn við flygilinn á tón- leikunum. Spurður hvort hann verði líka bara einn við flygilinn á vænt- anlegri plötu svarar Högni því neit- andi. „Mér finnst gaman að hafa tón- vefinn þykkan og leika mér með mismunandi hljóðfærahópa. Á tón- leikunum verða lögin hins vegar nakin.“ Inntur eftir því hvort nýja tónlistin hans sé í fjörugri eða ró- legri kantinum segist Högni eiga erfitt með að svara því. „Þetta er bara tónlistin mín. Ég veit ekki alveg hvernig ég á að út- skýra það. Ég verð mjög glaður þeg- ar ég heyri góða tónlist, þá fer ég í stuð – á sama tíma og einhverjum öðrum finnst þetta sama lag of ró- legt,“ segir Högni og tekur fram að útsetningar laga gegni lykilhlut- verki. „Með útsetningunni er hægt að breyta stemningu og tilfinningu lags,“ segir Högni og líkir útsetning- unni við klæðnað. „Það er samt alltaf sama lagið bak við klæðin. Mér finnst mikilvægast að tónlistin sé sönn og heiðarleg og hrífandi án þess endilega að vera hjartnæm. Það er snúið að finna hvað gerir tón- list hrífandi, en það er auðvitað sá leikur sem maður er í sem tónlist- armaður.“ Ambátt sögunnar Spurður hvenær næsta sólóplata hans sé væntanleg segir Högni erfitt að svara því. „Efnið er allt tilbúið, en ég vil geta gefið mér góðan tíma og undirbúa útgáfuna vel. Mig langar að skapa sérstakan myndheim í kringum músíkina,“ segir Högni sem hefur nóg að gera um þessar mundir í leikhúsunum. Hann samdi tónlistina við Old Bessastaðir sem Leikhópurinn Sokkabandið frum- sýnir í Tjarnarbíói annað kvöld og vinnur sem stendur að tónlistinni fyrir Hleyptu þeim rétta inn sem Þjóðleikhúsið frumsýnir síðar í mán- „Heiðarleg og hrífandi“  Högni Egilsson á Blikktrommunni í Hörpu í kvöld kl. 20 Þórunn Kristjánsdóttir thorunn@mbl.is „Eins og önnur skáldverk þá fjallar þetta um samtíma sinn. Mig langaði að fjalla um hvernig við hefðum þetta. Við einangrum börn og gam- almenni og við það myndast sam- hengisleysi og einangrun hópa, rof milli kynslóða,“ segir Halldóra K. Thoroddsen um nóvellu sína Tvöfalt gler sem hún hlaut nýverið Fjöru- verðlaun fyrir í flokki fagurbók- mennta. Tvöfalt gler kom upphaflega út í tímaritaröðinni 1005, sem gefin er út í takmörkuðu upplagi. Fyrir það hafði handritinu verið hafnað af for- lögum en Hermann Stefánsson, einn af félögum tímaritsins, óskaði eftir því að fá handritið til útgáfu í 1005. Nóvellan kom út að nýju hjá bókaút- gáfunni Sæmundi. Hvorki dauðar né skoðanalausar Tvöfalt gler fjallar um ekkju á átt- ræðisaldri sem verður ástfangin og hefur sitthvað um samtíma sinn að segja, sem hún fylgist með í gegnum tvöfalt gler íbúðar sinnar. Verk í ís- lenskum bókmenntum þar sem frá- sagnarmiðjan er gömul kona eru ekki algeng. Halldóra segist ekki hafa átt í erfiðleikum með að setja sig í stell- ingu áttræðrar konu. „Ég þekki dá- lítið af gömlum fínum kerlingum og þær eru hvorki dauðar né skoðana- lausar,“ segir hún og hlær. „Gamla konan finnur mikið fyrir þessu rofi milli kynslóða. Ég leyfi henni að geisa og reyni að lifa mig inn í hennar veröld sem er svolítið ein- angruð. Hún er hlutverkalaus í þessu samfélagi okkar og hefur ekki mikil þátttökuréttindi. Samfélagið snýst bara um aldurshópinn sem er í miðj- unni og vinnur. Börn eru líka í ein- angrun en þau finna kannski ekki eins fyrir því, þó að þau hefðu gott af að læra af fleirum en jafnöldrum sín- um. Þau eru sæl hvar sem þau eru,“ segir Halldóra ennfremur. Hún bendir á að einangrun þess- ara hópa hvors frá öðrum er gerð í hagræðingarskyni í þágu vinnandi fólks. „Mér finnst þetta fyrirkomulag sem við höfum valið okkur og teljum okkur trú um að sé það besta í heimi leiðinlegt. Í nútímanum hljótum við að geta fundið skemmtilegri leiðir,“ segir Halldóra. Spurð hvort rofið milli kynslóða hafi aukist með árunum segir hún það eiga einkum við um okkur Ís- lendinga. „Því við erum svo nýorðnir borgarar. Við mættum um aldamótin á sauðskinnsskónum úr torfbænum inn í nýjan heim. Við geymum hinn heiminn í minningunni. Ég er ekki að segja að ég sakni þrældómsins held- ur sakna ég samhengisins sem við eigum minningu um. Ég ólst t.d. upp með tveimur ömmum inni á heimili.“ Vinnan orðin djók Í verkinu er komið við kaunin á samfélagsgerðinni þar sem vinnan er yfirskipuð öllum dyggðum og neyslu- hyggjan stýrir lífi og limum fólks. „Þessi vinna hjá okkur er orðin djók. Við keppumst við að framleiða fram- leiðslunnar vegna. Kaupa meira og hendum meiru. Aðallega hendum til þess að halda þessu hjóli gangandi,“ segir Halldóra. Halldóra er ljóðskáld og hefur áð- ur sent frá sér þrjár ljóðabækur og tvö smásagnasöfn á yfir tæplega tutt- ugu ára tímabili. Nóvellan er stutt en textinn er þó lengri en hún fæst alla jafna við. „Þetta erindi útheimti svona frá- sögn fannst mér. Sumt kemst ekki al- veg fyrir í ljóði og þarf að útlista bet- ur. Yfirleitt kemur allt til mín sem ljóð sem ég þarf að segja því ég er ljóðskáld. Ég hugsa þannig og er í þeirri stellingu. En svo getur maður skipt um stellingar en það hefur verið mitt hingað til,“ segir Halldóra um formið. Hún segist vera frekar á móti löngum bókum. „Alltaf þegar ég les fimm til sex hundruð síðna bækur þá langar mig að þétta þær,“ segir Hall- dóra og bætir við: „Ætli ég skrifi nokkurn tíma 500 síðna bók. Ég hef ekki þörf fyrir það,“ segir hún glett- in. „Ég geri alltaf ljóð við og við. Ann- ars hef ég ekki gert mikið und- anfarið. Maður á bara að bíða eftir gyðjunni og ekki að þröngva ein- hverju fram,“ segir Halldóra spurð út í næstu verkefni. Hún segist held- ur ekki vilja hafa of hátt um það sem hún er að fást við þá stundina, því þá gæti einhver heimtað eitthvað af henni, segir hún og brosir. Morgunblaðið/Eggert Rof „Mér finnst þetta fyrirkomulag sem við höfum valið okkur og teljum okkur trú um að sé það besta í heimi leið- inlegt,“ segir Halldóra K. Thoroddsen um verkið sem fjallar um rof á milli kynslóða í íslensku samfélagi. „Maður á bara að bíða eftir gyðjunni“  Nóvellan Tvöfalt gler fjallar um ástfangna áttræða konu VÍKURVAGNAR EHF. Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is Setjum undir á staðnum Dráttarbeisli undir flestar tegundir bíla

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.