Morgunblaðið - 03.02.2016, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. FEBRÚAR 2016
Saltkaup ehf | Cuxhavengata 1 | 220 Hafnarfjörður | Sími 560 4300 | saltkaup.is
í miklu úrvali
Tunnur og fötur
Salt - Umbúðir - Íbætiefni
Ný heimasíða
David Cameron,
forsætisráðherra
Breta, fagnaði í
gær nýjum til-
lögum Evrópu-
sambandsins sem
miða að því að
halda Bretum
áfram innan
ESB. Cameron
sagði að þær
fælu í sér „mikilvægar breytingar“
og „raunverulegur árangur“ hefði
náðst í viðræðum við ESB. And-
stæðingar aðildar Bretlands að
sambandinu sögðu hins vegar að
tillögurnar fælu ekki í sér neinar
raunverulegar breytingar á
tengslum landsins við ESB. Tillög-
urnar fela m.a. í sér heimild til að
fella niður bótagreiðslur til erlends
vinnuafls og vernd fyrir ríki utan
evrusamstarfsins.
BRETLAND
Deilt um nýjar
tillögur ESB
David Cameron
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Úrslit forkosninga repúblikana í
Iowa í fyrradag eru sigur fyrir öld-
ungadeildarmennina Ted Cruz og
Marco Rubio en talsvert áfall fyrir
auðkýfinginn Donald Trump og talið
er líklegt að á næstu vikum standi
baráttan einkum milli þeirra
þriggja. Í forkosningum demókrata
var hins vegar mjög lítill munur á
fylgi Hillary Clinton, fyrrverandi
utanríkisráðherra, og öldunga-
deildarmannsins Bernie Sanders,
sem vann upp allt að 40 prósentu-
stiga forskot hennar í kosningabar-
áttunni.
Donald Trump var að meðaltali
með sjö prósentustiga forskot í Iowa
í tíu síðustu fylgiskönnunum sem
gerðar voru í ríkinu fyrir kjörfund-
ina í fyrradag. Svo fór þó að Ted
Cruz, öldungadeildarmaður frá Tex-
as, fékk mest fylgi, um 28%, og
Trump var í öðru sæti með 24%.
Trump reyndist vera nær því að
lenda í þriðja sætinu en því efsta því
að Marco Rubio, öldungadeildar-
maður frá Flórída, kom fast á hæla
honum með 23% og mun meira fylgi
en spáð hafði verið. Ben Carson,
fyrrverandi taugaskurðlæknir, var í
fjórða sæti með 9% atkvæðanna.
Mjög íhaldssamir kjósendur
Þótt línurnar hafi skýrst nokkuð
gefa úrslitin í Iowa takmarkaða
mynd af styrk frambjóðendanna í
forkosningunum. Hafa þarf í huga
að Mike Huckabee sigraði í Iowa í
forkosningum repúblikana árið 2008
og Rick Santorum fjórum árum síð-
ar, en þeir voru báðir langt frá því að
verða forsetaefni repúblikana.
Úrslitin í Iowa benda til þess að
Trump standi ekki eins vel að vígi og
talið hefur verið en of snemmt er að
afskrifa hann þar sem hann er enn
álitinn sigurstranglegri en Cruz í
New Hampshire þar sem kosið verð-
ur næst. Bíði Trump ósigur þar á
þriðjudaginn kemur gæti það orðið
honum að falli í baráttunni fyrir því
að verða forsetaefni repúblikana, að
mati Davids Redlawsk, prófessors í
stjórnmálafræði við Rutgers-
háskóla.
Kannanir benda til þess að Ted
Cruz hafi notið mests stuðnings
meðal repúblikana sem lýsa sjálfum
sér sem „mjög íhaldssömum“ kjós-
endum. Þessi kjósendahópur er
óvenjuáhrifamikill í Iowa því hlutfall
„mjög íhaldssamra“ kjósenda er tal-
ið hærra þar en í nokkru öðru ríki
Bandaríkjanna.
Nær tveir af hverjum þremur
þeirra sem mættu á kjörfundina í
Iowa eru í evangelískum söfnuðum
og um þriðjungur þeirra kaus Ted
Cruz.
Mjög umdeildur þingmaður
Þessi kjósendahópur er ekki eins
stór í New Hampshire og kannanir
benda til þess að Cruz eigi á bratt-
ann að sækja þar en sigurlíkur hans
eru taldar meiri í biblíubeltinu í
suðurríkjunum þar sem kosið verður
vikurnar á eftir. Jonathan Martin,
stjórnmálaskýrandi New York Tim-
es, segir að Cruz þurfi nú að ákveða
hvort hann eigi að einbeita sér að
New Hampshire til að reyna að
vinna upp forskot Trumps fram að
kosningunum þar eða að beina sjón-
um sínum einnig að Suður-Karólínu
þar sem evangelíski kjósendahópur-
inn er álíka stór og í Iowa. Með sigri
í New Hampshire myndi Ted Cruz
senda þau skilaboð að hann gæti
höfðað til fleiri kjósendahópa en ev-
angelísku íhaldsmannanna, að mati
Martins.
Cruz er mjög umdeildur vegna
íhaldssamra viðhorfa sinna í sam-
félagsmálum, m.a. andstöðu við rétt
kvenna til fóstureyðinga og hjóna-
bönd samkynja para. Forystumenn
repúblikana telja að ef Cruz verður
forsetaefni þeirra gjaldi hann afhroð
í forsetakosningunum þar sem hann
geti ekki höfðað til óháðra kjósenda
og miðjumanna sem líklegt er að
ráði úrslitum.
Ted Cruz er 45 ára og fæddist í
Kanada. Móðir hans er bandarísk og
faðir hans er innflytjandi frá Kúbu.
Cruz nam lögfræði við Harvard-
háskóla og var kjörinn í öldunga-
deildina fyrir Texas árið 2012.
Marco Rubio er 44 ára, kominn af
fátækum innflytjendum frá Kúbu og
þykir góður ræðumaður, eins og
Cruz. Rubio var kjörinn í öldunga-
deildina fyrir Flórída árið 2010 og
naut þá stuðnings íhaldsmanna í te-
boðshreyfingunni svonefndu. Sá
stuðningur minnkaði þó árið 2013
þegar Rubio tók þátt í að semja
lagafrumvarp um breytingar á inn-
flytjendalöggjöfinni, m.a. til að gera
ólöglegum innflytjendum kleift að fá
dvalarleyfi.
Takist Rubio að fylgja góðri út-
komu sinni í Iowa eftir með því að
verða í einu af þremur efstu sæt-
unum í New Hampshire gæti það
skipt sköpum í baráttu hans fyrir því
að verða forsetaefni demókrata.
Kannanir benda til þess að Rubio sé
með svipað fylgi í New Hampshire
og þrír aðrir frambjóðendur sem
hafa fylgt meginstraumnum í repú-
blikanaflokknum, þeir John Kasich,
Chris Christie og Jeb Bush. Takist
honum að skjótast fram fyrir þá í
New Hampshire er líklegt að fast
verði lagt að þeim að draga sig í hlé
til að Rubio geti fengið atkvæði
þeirra kjósenda, sem vilja hvorki
Trump né Cruz, í von um að hann
geti höfðað til óháðra kjósenda og
miðjumanna í forsetakosningunum í
nóvember.
Rubio sækir að Trump og Cruz
Góð útkoma í forkosningum í New Hampshire í næstu viku gæti skipt sköpum fyrir Marco Rubio
sem vonast til þess að geta sameinað þá repúblikana sem vilja hvorki Trump né Cruz sem forsetaefni
AFP
Sigurvegari Ted Cruz fagnar sigri í forkosningunum í Iowa með eiginkonu
sinni, Heidi, og föður sínum, Rafael, prédikara og innflytjanda frá Kúbu.
AFP
Kom á óvart Marco Rubio ávarpar stuðningsmenn sína eftir að hafa lent í
þriðja sæti í forkosningum repúblikana. Fjölskylda hans fylgist með.
AFP
Í fótspor eiginmannsins? Hillary Clinton ávarpar stuðningsmenn sína.
Eiginmaður hennar og fyrrv. forseti, og dóttir þeirra standa á bak við hana.
AFP
Stórjók fylgi sitt Bernie Sanders ávarpar stuðningsmenn sína í Des Moines
eftir að hafa unnið upp 40 prósentustiga forskot Hillary Clinton í Iowa.
Mjög mjótt á munum
» Hillary Clinton fékk 49,8%
atkvæðanna og Bernie Sand-
ers 49,6% í forkosningum
demókrata í Iowa.
» Sanders er talinn sigur-
stranglegur í forkosningum
sem fram fara í New Hamp-
shire á þriðjudaginn kemur.
» Sigurlíkur Clinton eru meiri í
öðrum ríkjum þar sem kjós-
endurnir eru íhaldssamari og
telja Sanders of róttækan.