Morgunblaðið - 03.02.2016, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 03.02.2016, Blaðsíða 20
20 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. FEBRÚAR 2016 Það olli bæði von- brigðum og reiði þeg- ar landslið Íslands féll úr forkeppni EM í handknattleik. Von- brigðin eru skiljanleg. En landsliðið og þjálfari þess verð- skulda ekki þá reiði- öldu sem á þeim hef- ur dunið og orsakað uppsögn Arons Krist- jánssonar á starfi sínu. Landsliðið var komið í gott form. Það sigraði landslið Þýska- lands í seinni æfingaleik liðanna – í Þýskalandi. Og síðan sigraði liðið Noreg í fyrsta leik EM, þar sem Björgvin Páll varði í leikslok og tryggði eins marks sigur. Eins marks tap gegn Hvíta-Rússlandi var slys. Í lok þess fyrri hálfleiks lék Ísland grimma vörn, en missti mann útaf mínútu fyrir lok hálfleiks. En Ar- on Pálmarsson skoraði síðan tvö mörk, og skyndilega var Ísland fjórum mörkum yfir, 24-20, og rúmar tuttugu mínútur til leiks- loka. Þá var sem íslenska liðið ætlaði að ganga frá sínum and- stæðingi. Þetta nefnist á slangi „to overkill“, þ.e. að ganga endanlega frá andstæðingi sín- um. En í staðinn fékk liðið á sig fjögur mörk á þremur mínútum. Stuttar sóknir, hnoð, tapaðir boltar. Þetta gerðist ekki að fyrirmælum þjálf- arans. Þetta fram- kvæmdu reynslubolt- ar liðsins í sinni góðu trú að geta gengið endanlega frá sínum andstæðingi. Hin rétta herfræði með þessa forystu hefði verið að hægja á tempóinu, og láta andstæðinginn taka vafa- samar ákvarðanir. Flestir þjálf- arar heimsins munu skoða grannt þetta myndskeið. Eftir þetta var liðið komið upp að vegg, með and- stæðing sem hafði fengið blóð á tunguna. Og eins marks tap. Leikurinn við Króatíu er ekki marktækur um getu liðsins. Leik- menn hugsanlega vansvefta, með sínum eigin ásökunum. Og leik- urinn í samræmi við það. Ósigur gegn Hvíta-Rússlandi orsakaðist því af skyndilegu aga- leysi leikmanna sjálfra á aðeins þremur mínútum. Það orsakaðist ekki af skipun þjálfarans, sem nú hefur kvatt og tekið á sig afleið- ingar ofangreindra mistaka. Aron skilur eftir sig, þátt fyrir allt, góð- an arf, sbr. sigra á Þýskalandi og Noregi. Hann æfði B-lið sem verður til taks, og það lið sýndi góða takta á móti Portúgal. Með sigri á Noregi stöndum við vel að vígi í næstu riðlakeppni, eigandi við veikari lið. Slysaleg mistök eru ekki nýnæmi, sbr. London 2012, þar sem þáverandi þjálfari tók m.a. ekki með besta hægri hornamann landsins, og tapaði slysalega. Án nokkurs upp- náms hér heima. Hvar er hann svo í dag? Það ber að þakka Aroni Krist- jánssyni hans mikla framlag sl. fjögur ár, og ekki síður okkar ágæta landsliði sem spilar kaup- laust – og við fylgjum þeim í gleði og sorg! Handknattleikslandslið Íslands og þjálfari þess Eftir Ámunda H. Ólafsson »Hin rétta herfræði með þessa forystu hefði verið að hægja á tempóinu, og láta and- stæðinginn taka vafa- samar ákvarðanir. Ámundi H. Ólafsson Höfundur er fyrrverandi flugstjóri. Í Morgunblaðinu þann 28.1. 2016 birtist grein eftir fram- kvæmdastjóra Við- lagatryggingar Ís- lands, Huldu Ragnheiði Árnadótt- ur. Framkvæmdastjór- inn er hér að svara blaðaskrifum sem hafa verið í Morgunblaðinu og á mbl.is um starfshætti Viðlagatrygg- ingar Íslands gagnvart tjónþolum. Þegar ég les þessa blaðagrein sé ég glöggt hversu framsýnn og hæfi- leikaríkur Sigmundur Davíð Gunn- laugsson forsætisráðherra er. Á haustfundi miðstjórnar Framsókn- arflokksins sem haldinn var í Vog- um á Vatnsleysuströnd þann 21.11. 2015 taldi hann mesta þjóðarmein um þessar mundir vera ábyrgð- arleysi í samfélaginu og sagði ótrú- lega mikið umburðarlyndi fyrir bulli og rangfærslum á Íslandi. Þarna hittir Sigmundur Davíð naglann á höfuðið, en það merki- lega er að þarna er hann alveg sammála rithöfundinum Þórbergi Þórðarsyni (1888-1974). Árið 1944 birtir hann bókina: Einum kennt – öðrum bent. Þar skilgreinir hann bullið í fjóra meginflokka. Í stuttri blaðagrein tekst framkvæmdastjór- anum að birta alla þessa 4 flokka: skalla, uppskafningu, lágkúru og ruglandi. Þórbergur skilgreinir ruglandi á eftirfarandi hátt: Rugl- andin lýsir sér í margskonar veik- leika eða blindu í hugsun, svo sem ósönnum staðhæfingum, gölluðum skilgreiningum, bágbornum rök- semdaleiðslum, kjánalegum skoð- unum og röngum frásögnum. Þór- bergur segir ruglandi hafða í frammi ýmist óvitandi eða sé höfð í frammi af ráðnum hug. Þótt framkvæmdastjórinn fari þarna með alkunnar klisjur þá skiptir ekki öllu hvað stendur í lög- um nr. 55/1992 eða reglugerð nr. 83/1993 sem reyndar byggist á úr- eltum lögum nr. 20/1954, sem voru afnumin með lögum um vátrygging- arsamninga nr. 30/2004. Það sem skiptir máli er hvernig farið er eftir þessum ákvæðum í reynd. Stofn- unin hefur dýrustu lögmenn og verkfræðinga landsins á sínum snærum til þess eins að geta greitt tjónþolum sem minnstar bætur. Þannig að nær gæti verið að kalla þessa tegund tryggingar hul- iðstryggingu frekar en við- lagatryggingu. Framkvæmdastjórinn talar um að tjónþola gefist ávallt kostur á að vera viðstaddur matið, málið ávallt borið undir tjónþola og honum gef- inn kostur á að tjá sig. Þetta skipt- ir engu máli, því það er ekkert hlustað á tjónþola, bara valtað yfir þá. Viðlagatrygging Íslands vill taka sér sjálfdæmi (sbr. Njálu og Grá- gás), í málefnum tjónþola. Þess vegna vill framkvæmdastjórinn banna fólki að leita til lögfræðinga. Framkvæmdastjórinn virðist ekki skilja það að stofnunin er stjórn- vald í skilningi stjórnsýslulaga og er þar bundin af rannsóknarreglu stjórnsýsluréttar, sem felur það í sér að stofnuninni ber að rannsaka mál með sama hætti og lögregla sakamál (sbr. Pál Hreinsson, Stjórnsýsluréttur – Málsmeðferð, 2013 bls. 469-472). Varðandi það sem fram- kvæmdastjórinn segir um úrskurð- arnefndina skv. 19. gr. laga nr. 55/ 1992, að hún heyri undir fjár- málaráðherra, þá er það hrein ruglandi. Úrskurðarnefndin er sjálfstætt hliðarsett stjórnvald sem fjármálaráðherra hefur ekkert yfir að segja (sjá stjórnsýslulögin, Páll Hreinsson, forsætisráðuneytið 1994, bls. 259-265) og er úrskurð- arnefndin kostuð af Viðlagatrygg- ingu. Það að stofnuninni sé ekki heim- ilt að greiða lögfræði- eða mats- kostnað á sér hvergi stað í lögum. Aftur á móti hefur úrskurð- arnefndin úrskurðað svo í máli nr. 3/2012 frá 10. maí 2013: „Ekki er fært að fallast á kröfu kæranda um útlagðan kostnað vegna kærumáls þessa, enda hefur úrskurðarnefndin ekki lagaheimild til slíks.“ Aldrei hefur reynt á það fyrir dómi hvort stofnunin sé und- anþegin greiðslu lögfræði- og mats- kostnaðar tjónþola vegna þess að fólk er yfirleitt þrotið að kröftum þegar það er búið að fara í gegnum það langa, dýra og tímafreka ferli sem leiðrétting smánarlegra tjóna- bóta er. Í 70. gr. stjórnarskrárinnar eru fólki tryggð eftirfarandi grund- vallarmannréttindi: ,,Öllum ber réttur til að fá úrlausn um réttindi sín og skyldur eða um ákæru á hendur sér um refsiverða háttsemi með réttlátri málsmeðferð innan hæfilegs tíma fyrir óháðum og óhlutdrægum dómstóli.“ Í raun er þessi réttur tekinn af tjónþolum með þessu úrskurðarnefndarferli. Bæði vegna þess hversu langdregið og dýrt þetta ferli er. Fleiri en eitt dæmi eru um að mál verði að fara tvisvar fyrir úrskurðarnefndina meðan mál eru í þessu úrskurð- arferli, sem getur tekið allt upp í 8 ár. Þá eru mál ekki dómtæk fyrir héraðsdómstólunum og/eða í fram- haldi af því fyrir Hæstarétti því dómstólarnir vilja láta klára kæru- leiðir framkvæmdavaldsins áður en þeir telja mál dómtæk. Fyrirsögn þessarar greinar vísar til ákvæðis í 17. gr. laga nr. 55/1992 um Viðlagatryggingu Íslands. Tímaskyn manna virðist vera með mjög mismunandi hætti. Fram- kvæmdastjórinn virðist telja 8-10 ár vera svo fljótt sem auðið er. Alla vega tala verk hennar því máli. Svo fljótt sem auðið er Eftir Ingileif S. Kristjánsdóttur og Diðrik Jóhann Sæmundsson Ingileif Steinunn Kristjánsdóttir »… fólk er yfirleitt þrotið að kröftum þegar það er búið að fara í gegnum það langa, dýra og tíma- freka ferli sem leiðrétt- ing smánarlegra tjóna- bóta er. Ingileif er agr.dr. í erfðafræði og sam- eindalíffræði og Diðrik er bóndi. Diðrik Sæmundsson Hulda Ragnheiður Árnadóttir, fram- kvæmdastjóri Við- lagatryggingar Ís- lands, ritar grein í Morgunblaðið 28. jan- úar sl., þar sem hún gerir grein fyrir með- ferð tjónamála hjá Viðlagatryggingu. Ef meðferð tjónamála væri með þeim lipra hætti, sem fram- kvæmdastjóri Viðlagatryggingar lýsir í blaðagrein sinni, þá væri ágreiningur milli tjónþola og Við- lagatryggingar ekki á þann veg sem staðreynd er, þ.e. að fjölmarg- ir tjónþolar eru ósáttir, ágreinings- mál fjölmörg og margir tjónþolar hafa gefist upp af fjárhagsástæðum við að ná fram sanngjörnum tjóna- bótum eftir jarðskjálftann 2008. Mér finnst þessi framsetning framkvæmdastjórans satt best að segja eins og blaut tuska framan í þá mörgu sem gefist hafa upp gagnvart Viðlagatryggingu. Fróð- legt væri að fá samanburð á fjölda mála hjá úrskurðarnefnd, annars vegar eftir jarðskjálftann árið 2000 og hins vegar eftir jarðskjálftann árið 2008. Einnig hver heild- arkostnaður Viðlagatryggingar sé eftir sömu jarðskjálfta, þ.e.a.s kostnaður við dómkvödd möt og lögfræðikostnaður. Ef tjónþolar eru sáttir við niður- stöðu matsmanna á umfangi tjóns, þá þurfa tjónþolar ekki að leggja í kostnað við að reyna að fá fram sanngjarna lausn. Ef tjónþoli er ósáttur við mat, og tekst ekki að fá betri niðurstöðu hjá matsmönnum Viðlagatryggingar eða stjórninni, þá leitar tjónþoli eftir mati frá öðr- um hæfum matsmönnum. Þarna hefst kostnaður tjónþola, sem get- ur undið upp á sig. Niðurstaða slíkra mata er í flestum tilfellum tjónþola hagstæðari en mat Við- lagatryggingar. Eitthvað er í for- sendum matsmanna Viðlagatryggingar, sem gerir lítið úr tjóni tjónþola. Við- lagatrygging stendur í flestum tilfellum með sínum matsmönnum, þrátt fyrir að hæfir og viðurkenndir mats- menn á vegum tjón- þola hafi sýnt fram á með faglegum rökum niðurstöðu, sem er hagstæðari fyrir tjón- þola. Í mínu máli var það mat matsmanna Viðlagatryggingar að tjón mitt á þeirri byggingu sem um er deilt næmi tæplega krónum 190.000,00. Úrskurðarnefnd við- lagatrygginga, sem er æðsta stjórnvald skv. lögum um Við- lagatryggingu, hefur úrskurðað að bæta skuli tjón á byggingunni sem altjón. Þarna er mikill munur á. Kostnaðarsöm barátta mín hefur skilað þessum árangri. Hvers vegna fer Viðlagatrygging ekki eft- ir úrskurði úrskurðarnefndarinnar? Hvers vegna heldur Viðlagatrygg- ing áfram að berja hausnum við steininn? Ekki er allt jafn sann- gjarnt og framkvæmdastjórinn heldur fram í fyrrnefndri grein. Raunveruleikinn er því miður allt annar. Búið er að framkvæma sex möt á þeirri byggingu, sem um er deilt í mínu máli og það sjöunda er fram- undan að ósk Viðlagatryggingar, þar sem Viðlagatrygging reynir að ógilda mat Þjóðskrár á bygging- unni. Mat Þjóðskrár er byggt á fag- legum forsendum samkvæmt gild- andi lögum um mat fasteigna. Takist Viðlagatryggingu að ógilda mat Þjóðskrár, þá verður almennt að skoða möt Þjóðskrár á bygg- ingum, sem aftur getur kallað á endurútreikning á brunabótagjöld- um bygginga í landinu. Viðlagatrygging Íslands – þrautaganga tjónþola Eftir Jón Hólm Stefánsson »Ekki er allt jafn sanngjarnt og fram- kvæmdastjórinn heldur fram … Jón Hólm Stefánsson Höfundur er skógar- og ferðaþjón- ustubóndi á Gljúfri í Ölfusi. Móttaka aðsendra greina Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar grein- ar alla útgáfudaga. Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í sam- skiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla. Að senda grein Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn grein“ er valinn. Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólar- hringinn. Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma 569-1100 frá kl. 8-18.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.