Morgunblaðið - 03.02.2016, Síða 24

Morgunblaðið - 03.02.2016, Síða 24
24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. FEBRÚAR 2016 Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. Smíðum gestahús – margar útfærslur. Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is SUMARHÚSALÓÐ TIL SÖLU Í ÖNDVERÐARNESI VIÐ GOLFVÖLLINN (hola 2) Endalóð í botnlanga við Grjóthóls- braut, með ómetanlegu útsýni í allar áttir. Allar nánari uppl. í síma 8661712 eða plommi61@gmail.com Óska eftir Staðgreiðum gull, demanta og úr Hringar, hálsmen, armbönd, Rolex, Cartier, Patek Philippe o.fl. Hringdu núna og fáðu tilboð þér að kostnaðarlausu! www.kaupumgull.is Opið alla daga 11–18. Kringlan – 3. hæð (Hagkaupsmegin) Upplýsingar í síma 661 7000. Bílaleiga HÓPFERÐABÍLAR TIL LEIGU með eða án bílstjóra. --------16 manna-------- --------9 manna--------- Fast verð eða tilboð. CC.BÍLALEIGA S. 861 2319. Smáauglýsingar ✝ KarólínaBenný Þórðardóttir fæddist 21. nóv- ember 1946 á Hvammstanga. Hún lést 6. janúar 2016 í Las Palmas á Kanaríeyjum. Foreldrar Ben- nýjar voru Birna Benediktsdóttir húsmóðir, f. 3.1. 1922, d. 20.6. 2015, og Þórður Leví Björnsson leigubifreiðar- stjóri, f. 28.11. 1922, d. 15.3. 2003. Fósturfaðir Bennýjar var Kristinn Jónsson, eftirlits- maður hjá Landleiðum, f. 12.10. 1925, d. 20.9. 2006. Syst- ir Bennýjar sammæðra er Kristín, f. 22.11. 1992, og Hjör- dís Gréta, f. 19.6. 1994. Benný ólst upp á Bark- arstöðum í Vestur-Húnavatns- sýslu hjá móðurforeldrum sín- um, þeim Benedikt Björnssyni og Jennýju Sigfúsdóttur, til 10 ára aldurs. Fluttist hún þá til Hafnarfjarðar og lauk þar námi við Flensborg 1961 og Húsmæðraskóla á Löngumýri Skagafirði 1961-62. Bjó hún í Hafnarfirði til 1979, í Garði Gerðahreppi og í Reykjanesbæ til ársins 2000. Benný og Páll fluttu síðan austur fyrir fjall og bjuggu lengst af á Bjargi í Rangárþingi ytra. Fyrir utan húsmóðurstörf stundaði Benný sveitastörf, fiskvinnslustörf og aðhlynningu við aldraða og fatlaða. Þá stundaði hún sjómennsku með Páli á tímabili en einnig versl- unarstörf, hannyrðir og hunda- ræktun. Bálför Bennýjar var gerð frá Las Palmas 11. janúar 2016. Hjördís Krist- insdóttir, f. 21.8. 1960. Benný giftist 30.12.1966 Páli Sig- urðssyni, f. 9.11. 1946. Börn þeirra eru: 1) Sigurður Grétar Pálsson, f. 2.6. 1965. Börn hans og fyrrver- andi maka, Unnar Sigurjónsdóttur, f. 12.5. 1965, eru Þórir, f. 28.2. 1982, Páll, f. 16.3. 1987, og Arnar, f. 15.11. 1991. 2) Björn Ingi, f. 15.1. 1968. 3)Kristinn Páll, f. 1.6. 1969, maki Halla Grétarsdóttir, f. 22.3. 1969. Börn þeirra eru Gissur, f. 15.7. 1986, Halla Tilvera okkar er undarlegt ferðalag. Við erum gestir og hótel okkar er jörðin. (Tómas Guðmundsson) Það hvarflaði ekki að mér þegar við töluðum saman 20. desember síðastliðinn að það yrði okkar síðasta samtal. Þú varst svo glöð og ánægð að segja mér að þið ætluðuð að eyða jólum og áramótum á Kanaríeyjum. Ég samgladdist þér innilega og þú kvaddir mig með þínum yndislegu orðum: „Gleðileg jól elskan mín og Guð geymi þig.“ Það eru forréttindi að eiga umhyggjusama systur sem var alltaf til staðar og ákaflega hjálpleg í alla staði. Minningar hrannast upp á svona stundum og man ég alltaf svo vel þegar þið Palli giftuð ykkur. Ég sat á eldhúsgólfinu í gammósíum og hvítri gollu með úfið hár og rauðar bollukinnar. Þú varst að máta brúðar- kjólinn þinn, sem var ljósblár pallíettukjóll með kórónu og brúðarslöri. Ég hafði aldrei á ævi minni séð svona fallega konu og fal- legan kjól, þetta var systir mín sem skartaði sínu fegursta. Þessi sýn er grópuð í huga mér og fylgir henni hlýja, stolt og kærleikur. Tíminn leið, gammósíurnar og gollan voru orðin of lítil. Ég var orðin unglingur og þú varst orðin þriggja barna móðir. Þessir tímar eru kærir í minn- ingunni þar sem þið Palli bjugguð á Sléttahrauninu í Hafnarfirði, hann á sjó og þú reyndir eftir bestu getu að vinna úti ásamt því að ala upp drengina og hugsa um heimilið. Á þessum tímum áttu Palli og Lalla gulan Mustang, sem var með svörtum sportröndum á hliðunum. Ákaflega fallegur bíll sem tekið var eftir á götum borg- arinnar. Ég fékk það oft í verðlaun frá henni eftir að hafa passað strákana að fara á rúntinn, kaupa ís og setja „spóluna“ í tækið með Neil Sedaka, síðan var hækkað og sungið Oh! Ca- rol. Þessi spóla var eingöngu spiluð í bílnum og svo oft að ég kunni alla texta með Sedaka sem unglingur. Kærleiksrík tengsl okkar systra eru verðmæt fyrir mig og afar dýrmætt að eiga góðar minningar. Öll ferðalögin sem við fórum saman einkenndust af skemmtilegum uppákomum og hlátri. Eftir að ég giftist og eignaðist börn þróuðust samskipti okkar í mikla vináttu. Þú varst ekki bara stóra systir mín, þú varst besta vinkona mín og sálufélagi. Ég er þér endalaust þakklát fyr- ir hvað þú varst góð við okkur öll, bæði dýr og menn. Síðasta sumar áttum við margar góðar samverustundir á Bjargi, þar sem þið Palli voruð búin að koma ykkur fyrir í faðmi fjalla. Þar spurðum við okkur: „Hvað er það sem skiptir okkur máli? Erum við að eyða of miklum tíma í eitthvað sem skiptir okkur ekki máli?“ Við vorum sammála um að leggja rækt við fjölskylduna og sam- einast á hverju ári eins og við gerðum þetta sumar. Þetta var dýrmætur tími að fá að hittast og gleðjast saman eina helgi. Ég lofa þér, elsku Lalla, að þetta verður endur- tekið. Ég sakna þess að geta ekki hringt í þig og heyrt rödd þína lengur. Ég var heppin að eiga þig fyrir systur og er þakklát fyrir allar samverustundirnar með þér, nærveru þína og hlýju. Elsku Palli mágur og þið öll, megi minning elsku Löllu syst- ur verða okkur öllum að leið- arljósi Guð geymi þig, elsku Lalla. Hjördís Kristinsdóttir. Á stundu sem þessari rekur hver minningin aðra, margs er að minnast og margs er að sakna en fyrst og síðast ber að þakka fyrir ómetanlega vináttu Bennýjar, frá því að leiðir okk- ar lágu saman í 12 ára bekk Lækjarskóla Hafnarfjarðar. Palli, eftirlifandi maður Bennýj- ar, var bekkjarbróðir okkar og hefur hann reynst tryggur vin- ur okkar hjóna í áranna rás. Þegar ég lít yfir farinn veg sé ég hvað lífshlaup okkar Ben- nýjar var áþekkt. Á unglingsár- unum unnum við á sömu vinnu- stöðum, við giftumst báðar sjómönnum og eignuðumst okk- ar fyrstu syni í sama mánuði og síðar fjölgaði sonunum okkur beggja. Eftir að hafa búið um tíma við sömu götu skildust leiðir vegna búferlaflutninga. Héldum við sambandi okkar með bréfa- skriftum eins og þá tíðkuðust og síðar meir heimsóknum til hvor annarrar þó fara þyrfti landshornanna á milli. Vafalítið var oft og tíðum strembið fyrir unga sjómanns- konu með þrjá syni að sinna þörfum allra í dagsins önn, samhliða því að vera lengst af útivinnandi. Allt hafðist þó með dugnaði sem henni var í blóð borinn, ásamt eðlislægðri glaðværð er einkenndi hana öðru fremur og fylgdi henni alla tíð, hvert sem leið hennar lá. Ári liðu, hægt og bítandi vænkaðist hagur, upphófst tími ferðalaga til útlanda. Við hitt- umst óvænt á Kanarí, þá báðar í okkar fyrstu ferð, ásamt mök- um, með í för voru þrír synir okkar hjóna. Ferðirnar urðu fleiri, við féllum báðar fyrir Spáni. Árið 2006 fórum við til meginlands Spánar í tilefni af sextugsafmælum hennar og Palla. Í þessum ferðum var hugs- unin um að Benný ætti eftir að enda sitt lífshlaup á Kanarí víðsfjarri okkur öllum, en eng- inn veit hvað morgundagurinn ber í skauti sínu né hvar og hvenær dauðinn knýr dyra Kæra vinkona, ég er þakklát fyrir samfylgd þína og vináttu, þakklát fyrir allar fallegu og skemmtilegu minningarnar sem tengjast henni. Hver veit nema að leiðir okkar eigi eftir að liggja saman á ný á óþekktum slóðum? Með þá von í brjóst mun ég hugsa til þess sem þú varst mér Okkar innilegustu samúðar- kveðjur til Palla og afkomenda, til allra þeirra sem tengdust þessari skemmtilegu konu á einn eða annan hátt. Jóhanna Gunnarsdóttir og fjölskylda. Karólína Benný Þórðardóttir Elsku Ebba mín. Það er ótrúlegt að hér sit ég og reyni að meðtaka að þú sért farin, mikið er lífið óréttlátt. Besta vinkona mín, þú varst yndisleg manneskja og ég sakna þín. Við kynntumst árið 2003, fyrsta skóladaginn okkar í Fjölbrauta- skólanum í Ármúla. Við vorum bláókunnugar. Sát- um þarna við tölvur, ég var að taka Friends-próf á netinu og kunni ekkert í því og fer að hlæja. Um leið komst þú og spurðir mig hvað ég væri að gera. Ég segi þér að ég sé að taka Friends-próf á netinu. Þú baðst um aðgang til að geta tekið prófið. Ég vissi ekki að þú værir Friends-snillingur og gast svarað öllu. Áður en við vissum af vorum við að taka prófin saman og sátum hlið við hlið og eftir þennan dag vorum við óaðskiljanlegar. Þú varst alltaf ákveðin á besta hátt Ég minnist þess eitt sinn rétt fyrir jól að við ætluðum að komast að samkomulagi um kvikmynd til að horfa saman á. Þú varst ákveð- in í hvað þú vildir og það var Shrek 2. Ég var ekki sammála því og stóð alveg á mínu. Síðan gafst þú upp. Við völdum aðra mynd að lokum. Ég minnist þess að tveimur dögum síðar, á aðfangadag, opna ég gjöfina mína frá þér og þar er Shrek 2. Sönnun um hversu ákveðin þú varst og stóðst á þínu. Þú vissir alltaf hvað þú vildir og Vilfríður Hrefna Hrafnsdóttir ✝ VilfríðurHrefna Hrafns- dóttir fæddist 11. nóvember 1987. Hún lést 17. janúar 2016. Vilfríður var jarðsungin 26. jan- úar 2016. gerðir áætlanir til að fylgja því. Ég gat alltaf treyst á þig, sama um hvað málið sner- ist. Þú áttir svo yndislega fjölskyldu og varst þeim svo náin. Þú varst svo kærleiksrík og mikil fjölskyldumann- eskja sem vildi öll- um vel. Þú gast verið snögg að taka ákvarðanir. Einu sinni stakkstu upp á því að fara í Kringluna, ég samþykkti það og beið eftir þér þar í góðan tíma. Síðan hringir þú í mig og tilkynnir að þú sért á leið- inni að fara að versla en sért á leið- inni til Kaupmannahafnar. Það sem þú elskaðir Dan- mörku, það var yndislegt að hlusta á og fylgjast með því. Við hlógum vel að þessu og það geri ég núna með tárum á meðan ég minnist þín. Við vorum bestu vinkonur frá fyrsta degi og gengum í gegnum allt saman, bæði skemmtilega og erfiða hluti, en ávallt varstu með þitt fallega bros á vör. Með þessari kveðju og minn- ingum kveð ég þig, elsku Ebba mín, „Monica mín“. Ég vona að þér líði vel og hafir Hrafnhildi, Hrefnu Þórdísi, afa og ömmu þína hjá þér. Elsku Hjalti og fjölskylda. Ég samhryggist ykkur svo. Ebba var hin besta manneskja. Megi allar góðar vættir styrkja börnin þín, eiginmann, foreldra og systkini. Ég mun ávallt sakna þín. Og eins og segir í uppáhalds- vinkonulaginu okkar: „I want to thank you for giving me the best day of my life.“ Ragnhildur Pálsdóttir. Látin er Ásdís, náfrænka mín, 89 ára, næstelst sjö dætra hjónanna Sig- ríðar Sigurðardóttur og Erlings Pálssonar, sundkennara og síðar yfirlögregluþjóns í Reykjavík. Foreldrar Erlings, Páll Erlings- son og Ólöf Steingrímsdóttir, fluttu 1908 til Reykjavíkur austan úr Grímsnesi og reistu nýbýlið Bjarg við Sundlaugaveg. Páll varð frumkvöðull að sundkennslu og sundmenntun í Reykjavík og beitti sér fyrir byggingu gömlu Sundlauganna, sem voru í landi Bjargs. Erlingur sonur hans var frækinn sundkappi og starfaði um tíma við sundkennslu með föður sínum. Þegar Páll settist í helgan stein 1922 tóku bræður Erlings, Ólafur og Jón, við sundkennsl- unni. Erlingur og Sigríður tóku við búinu á Bjargi og ráku þar stórbúskap fram á miðja síðustu öld. Bræður Erlings, Steingrímur, Ólafur og Jón, festu sér allir erfða- Ásdís Erlingsdóttir ✝ Ásdís Erlings-dóttir fæddist 17. apríl 1926. Hún andaðist 17. janúar 2016. Útför Ásdísar fór fram 27. janúar 2016. festulönd í nágrenni Bjargs. Erlingur, Ólafur og Jón voru kvæntir systrunum Sigríði, Jústu og Þórunni Sigurðar- dætrum, landspósts frá Árnanesi í Hornafirði. Þetta var stórfjölskylda okkar Ásdísar á upp- vaxtarárunum og mikill samgangur milli heimilanna. Bjargssysturnar voru tíðir gestir á heimili foreldra minna. Þegar við systkinin veiktumst af Akureyrarinflúensunni 1948 léttu systurnar Jóhanna og Ásdís undir með móður minni, sem átti við veikindi að stríða. Eftir skóla- göngu í Laugarnesskóla lauk Ás- dís íþróttakennaraprófi frá Íþróttaskóla Íslands á Laugar- vatni, eins og Erla systir hennar síðar. Þær fetuðu þannig í fótspor föður síns og afa, sem voru braut- ryðjendur í sundkennslu. Ásdís var sundkennari á fjórða áratug við Sundhöll Reykjavíkur, hélt sundnámskeið og kenndi skóla- sund og var í fylgdarliði íslensku ólympíufaranna 1948 í London. Margir Reykvíkingar muna þenn- an glaðbeitta sundkennara. Ásdísi var annt um sundmennt þjóðar- innar og skrifaði fjölmargar grein- ar um það málefni í blöð og tíma- rit, m.a. fróðlega grein í Lesbók Mbl. 2. des. 1995 á 100 ára ártíð Erlings, föður hennar. Ásdís var glæsileg kona, glað- lynd, uppátektarsöm, spaugsöm og ákveðin í skoðunum. Á mennta- skólaárum mínum tefldu skyld- mennin oft á heimili foreldra minna á Kleppsvegi og slógum við Dísa þá oft í „eina bröndótta“, eins og hún kallaði skákina. Ásdís giftist Úlfari Nathanaels- syni stórkaupmanni. Þau bjuggu fyrst á Bjargi, en fluttu síðar í hús sitt í Mávanesi í Garðabæ. Það var gott að koma í heimsókn í Máva- nesið og börnum okkar Þuríðar eru minnisstæðar heimsóknirnar fyrir áramótin þegar Úlfar leysti þau út með pokum af flugeldadóti, sem var meðal varnings sem hann höndlaði með. Ásdís og Úlfar flutt- ust árið 1999 til Tulsa í Texas í Bandaríkjunum, en þar höfðu tveir synir þeirra, Þorsteinn og Pétur, sest að. Tveir synir Sigríð- ar Ídu, elstu dóttur þeirra, fylgdu þeim og héldu þau hjónin heimili fyrir þá meðan þeir voru að ljúka háskólanámi. Úlfar og Dísa sneru aftur til Íslands 2013 vegna veik- inda hennar. Það er bjart yfir minningunni um frænku mína og við Þuríður vottum Úlfari, börnum þeirra og aðstandendum okkar dýpstu sam- úð. Páll Ólafsson. Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsam- lega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs- lógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felli- glugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dög- um fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað get- ur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu að- standendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.