Morgunblaðið - 03.02.2016, Side 28

Morgunblaðið - 03.02.2016, Side 28
28 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. FEBRÚAR 2016 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þér gengur betur þegar þú reynir ekki að stjórna öllum þínum gjörðum af hörku, eða tilheyrir hópi þar sem reglur ráða ríkjum. Hjól uppgötvana og framkvæmda snúast ögn hraðar. 20. apríl - 20. maí  Naut Gættu þess að bregðast ekki of hart við minniháttar málum. Aðeins þannig getur þú hjálpað öðrum þegar þörf krefur. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú lítur vel út, sérstaklega þegar þú leggur hart að þér við vinnu. Ekki láta yfirlæti eða dramb verða þér að falli. Frekjugangi þeirra sem allt hafa skaltu vísa kurteislega á bug. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þetta er góður dagur til fasteigna- viðskipta og annarra viðskipta sem tengjast fjölskyldunni. Opinberaðu persónuleika þinn eða hugmynd þeirri manneskju sem mun sýna mesta aðdáun. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Forgangsröðunin stjórnar því hvað maður tekur sér fyrir hendur og hverju mað- ur fær áorkað. Vertu svo elskulegur að mæla ekki og reikna út fyrirhöfn miðað við árangur. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þú ert að pæla í daglegri hegðun þinni og skilur að litlu hlutirnir hafa mestu áhrifin á þig. En ekki skemma eitthvað guðdómlegt með því að reyna að láta það endast að ei- lífu. 23. sept. - 22. okt.  Vog Sérhvert verkefni sem maður tekur að sér má leysa á listrænan máta. Efst á listan- um eru fjölskyldusamkundur og vinna á heimilinu. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Það er ekkert vit í því að forðast vinnuna. Einbeittu þér að málum heimilisins og sýndu þar alla þá lipurð sem þú getur. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú er fínasti undirmaður, vinnur vel, ert skapandi og ansi nákvæm/ur. Sú fórn er þér nú nauðsyn til að koma lífi þínu á rétta braut enn á ný. 22. des. - 19. janúar Steingeit Nýtt fólk sem kemur inn í líf þitt sýnir hvar þú ert í tilfinningaþroska. Brjóttu blað og stattu við loforðin. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Að hluta til viltu reyna að þóknast öðrum því það er erfitt að vera ekki sam- þykktur. Njóttu þeirra og láttu þau lyfta þér áfram til nýrra átaka. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þú hefur nóg á þinni könnu þessa dagana og skalt ekki taka meira að þér í fé- lagsstarfinu en þú ert fær um að standa við. Afrek Dags Sigurðssonar meðþýska karlalandsliðið í handbolta hafa ekki farið framhjá neinum. Vík- verji fylgdist spenntur með úrslita- leiknum á sunnudag. Þegar leið á leikinn breyttist spennan í vantrú, slíkir voru yfirburðir þýska liðsins. Spánverjum virtist fyrirmunað að komast í gegnum þýsku vörnina. Í fyrri hálfleik skoruðu þeir aðeins sex mörk, mark á fimm mínútna fresti. x x x Þýska blaðið Die Welt líkti þessariframmistöðu við það þegar þýska landsliðið valtaði yfir það bras- ilíska á HM í fótbolta 2014 og sigraði 7-1. x x x Mikið hefur verið vitnað í Dag íþýskum fjölmiðlum. Á vefsíðu vikuritsins Der Spiegel sagði að hluti af uppskrift Dags að árangri væri að sýna nánast aldrei tilfinningar, en eftir úrslitaleikinn hefði gegnt öðru máli. Þjálfarinn hefði verið stoltur af liði sínu og tárin hefðu borið því vitni. „Ég er ofurstoltur, það er varla hægt að trúa þessu,“ hafði blaðið eftir Degi og bætti við að hann hefði „þurft að búa til orð til að tjá tilfinningar sín- ar“. Orðið var „überstolz“ og rataði í fyrirsögn fréttarinnar: „Unbesiegbar und überstolz.“ Der Spiegel fjallar lofsamlega um þátt Dags: „Íslending- urinn setti saman hina fullkomnu áætlun, lið hans fylgdi henni full- komlega í leik þar sem það réð lögum og lofum – og þess vegna voru þýsku handknattleiksmennirnir full- komlega verðskuldað krýndir Evr- ópumeistarar.“ x x x Eftir úrslitaleikinn fór liðið á ítalsk-an veitingastað í Kraká, La Grande Mamma. „Við erum með frá- bært lið,“ var haft eftir Degi í blaðinu Bild. „Nú verðum við einfaldlega að njóta þess. Íslendingar kunna líka að skemmta sér.“ x x x Bild vitnaði líka í leikmanninn Stef-fen Weinhold: „Nú hefur þjálf- arinn ekkert meira að segja, við skul- um athuga hvað næturlífið í Kraká hefur upp á að bjóða.“ víkverji@mbl.is Víkverji Jesús sagði: „Komið til mín, allir þér sem erfiði hafið og þungar byrðar, og ég mun veita yður hvíld.“ (Matt. 11:28) Á sunnudaginn skrifaði ÓlafurStefánsson „en hvað allt fréttist. Nú flýgur sú saga um Leirinn að tveir andans Þing- eyingar úr hópnum hafi farið í lið- skiptaaðgerðir og gengið bara vel. Kannski sögðu þau frá þessu sjálf, og einhverjir bættu svo við einhverju ganti eins og gengur. Ekki dettur mér í hug að flí- mast með heilsu fólks en sam- gleðjast má ef vel gengur, og víst er að þau grannarnir og skáld- systkin (eru ekki allir Þing- eyingar skyldir) yrkja jafn vel skorin sem óskorin. Í góðu er allt um gáfnafar og getu til að ríma, en liðir slitna og limir þar löngu fyrir tíma.“ Davíð Hjálmar Haraldsson var með á nótunum: „Fía og Friðrik hafa allt sem þarf til að ná enn lengra á framabraut hagyrðinga/ skálda: Oft er gatan grýtt og dimm á göngunni til framans en þessi hafa fætur fimm og fjögur hné – til samans.“ Friðrik Steingrímsson vildi hafa það heldur sem sannara reyndist, – „svo allt sé nú rétt með farið þá var ég ekki í liðskiptaaðgerð held- ur var gert við liðþófa og fjarlægt brjóskbrot sem var ekki á réttum stað. Segja vil til varnar mér vísnagerðar bjánum, að skáldagenið í mér er ofar en í hnjánum.“ Þetta fór ekki framhjá Davíð Hjálmari Haraldssyni: „Greinilega er skáldagen Friðriks á sínum stað, verra er þetta með brjóskið. Eflaust hann segir satt um það að sé ekkert brjósk í hnjánum, finnur því eflaust annan stað. Ætli það sé í tánum?“ Gústi Mar. veit sínu viti – „menn fara í kringum þessa stað- setningu einsog köttur kringum heitan graut. Ég orti stöku um aftanbil einn á sokkaleistunum. Ekki varð sú vísa til með viskunni frá eistunum.“ Fía á Sandi sló botninn í þessar vangaveltur: Á góðum degi gæti skeð ég geri kvæði um leista. En örugglega ekki með eista. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Af liðskiptaaðgerðum og brjóskbroti Í klípu „EINS OG ÞIÐ SJÁIÐ, ÞÁ ER FJÖRIÐ Á ENDA.“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „HVERS VEGNA SAGÐIRÐU MÉR EKKI AÐ FYRRVERANDI KÆRASTINN ÞINN VÆRI HÁRGREIÐSLUMAÐURINN MINN?“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að leyfa honum að vinna öðru hverju! ÉG ÆTLA Í FJALL- GÖNGU. EKKI REYNA AÐ TELJA MÉR HUGHVARF GÓÐUR PUNKTUR. ÉG VERÐ HEIMA ÉG SKAL LAGA TEBOLLA KASTIÐ NIÐUR GULLINU YKKAR… …OG ENGINN MUN SKAÐAST! ÞÚ ERT EKKI ENGINN FYRIR MÉR! Fjör Verslun Tunguhálsi 10 - Sími 415 4000 – www.kemi.is - kemi@kemi.is INTERFLON Matvælavottaðar efnavörur Nýjar umbúðir, sömu gæða efnin

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.