Morgunblaðið - 03.02.2016, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 03.02.2016, Blaðsíða 36
MIÐVIKUDAGUR 3. FEBRÚAR 34. DAGUR ÁRSINS 2016 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 488 ÁSKRIFT 5295 HELGARÁSKRIFT 3307 PDF Á MBL.IS 4696 I-PAD ÁSKRIFT 4696 1. Segja af sér fyrir minni sakir 2. Átti gjafabréf en staðnum lokað 3. Erfitt að vera fáklæddar í sundi 4. Starfsmenn taka farþega að sér »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Kunnur bandarískur gítarleikari, upptökustjóri og Grammy-verðlauna- hafi, Paul Brown, kemur fram ásamt hljómsveit sinni á Rósenberg við Klapparstíg annað kvöld, fimmtudag. Gestir hans á tónleikunum verða Jack Magnet og Friðrik Karlsson. Morgunblaðið/Sigurgeir S. Brown leikur ásamt Magnet og Friðriki  Á morgun verð- ur sýningin Front- iers of Solitude opnuð í þremur galleríum í Prag í Tékklandi. Sex ís- lenskir listamenn taka þátt ásamt norskum og tékk- neskum kollegum, þau Finnur Arnar Arnarson, Karlotta Blöndal, Kristín Rúnarsdóttir, Elvar Már Kjartansson, Monika Fryèov og Þórunn Eymundardóttir. Íslenskir listamenn sýna í Tékklandi  Í dag hefst í Gerðubergi listasmiðja fyrir ungt fólk á framhaldsskólaaldri sem vill fá tækifæri til að skapa og nýta sér ólíka miðla, svo sem mynd- list, ritlist eða önnur listform. Smiðjan er tvisvar í viku út mánuðinn og er Erla Steinþórsdóttir smiðjustjóri. Gesta- fyrirlesarar eru Þórdís Jóhannsdóttir og Hugleikur Dags- son. Listasmiðja fyrir ungt skapandi fólk Á fimmtudag Gengur í austan hvassviðri eða storm með snjó- komu, jafnvel slyddu syðst. Hægari vindur NA-til framan af degi. Frost 0 til 10 stig, en frostlaust með S-ströndinni. VEÐUR Sundsamband Íslands mun aftur freista þess að koma sveit á Ólympíuleika til að synda boðsund. Tókst það í fyrsta skipti á leikunum í London fyrir fjórum árum. Þá synti kvennasveit 4x100 metra fjórsund. Um sömu grein er að ræða í þetta skiptið en Ísland mun senda sveit í boðsund á EM í maí. Sextán sveitir komast í boð- sundið í Ríó og hafa tólf þegar tryggt sér sæti. »3 Ísland verður með í boðsundi á EM Bryndís Guðmundsdóttir býr í Kefla- vík, æfir í Kópavogi og leikur með körfuboltaliði Snæfells frá Stykkis- hólmi, eftir að hafa yfirgefið Keflavík þegar tímabilið var hafið. „Hún er mjög góð bæði í sókn og vörn og er klár leikmaður sem ger- ir aðra leikmenn í kringum sig betri,“ segir samherji um Bryndísi sem er leikmaður um- ferðarinnar hjá Morg- unblaðinu. »4 Klár leikmaður og gerir aðra í kringum sig betri Leicester heldur þriggja stiga for- skoti á Manchester City í ensku úr- valsdeildinni í knattspyrnu eftir leiki gærkvöldsins. Leicester vann Liver- pool á heimavelli, 2:0, með mörkum frá markahróknum Jamie Vardy eins og stundum áður. Gylfi Þór Sigurðs- son var einnig á skotskónum. Hann kom Swansea yfir á heimavelli en markið dugði ekki til sigurs. »1 Vardy og Gylfi Þór voru á skotskónum ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is „Árlegur annáll er ákveðin þunga- miðja í blótunum. Þar fá framámenn bæjarfélagsins, forysta Síldarvinnsl- unnar, fulltrúi almættisins á staðnum og margir, margir fleiri ávallt sinn skerf og það er aldrei skortur á skotfærum. Þetta er góður spéspeg- ill á bæjarlífið til að hafa gaman og hlæja saman, en ég held að engum eigi að sárna.“ Það er Smári Geirsson, einn forsprakka Komma- blótsins í Neskaupstað, sem hefur orðið. Hann hefur sótt um 40 af þeim 50 blótum sem hafa verið haldin og verið í forystuhópnum síðustu ára- tugi. Upphafið rekur hann til þess að Hjörleifur Guttormsson og félagar byrjuðu að standa fyrir þorrablóti Al- þýðubandalagsfélagsins á staðnum um miðjan sjöunda áratuginn. Þá fengu einungis félagar í Alþýðu- bandalaginu miða á blótið, en þeir gátu boðið gestum með sér. Nú mæta jafnvel gestir úr fremstu röð atvinnu- rekenda á Íslandi. Róttækni íbúanna fyrr á árum Blótin hafa breyst og þróast í það að verða eins konar bæjarblót í Nes- kaupstað og reyndar eru blót haldin víða fyrir austan á þorranum. Smári segir menn ófeimna við að halda á lífi sagnfræðilegri staðreynd um rót- tækni íbúanna fyrr á árum og því sé rökrétt að tala um Kommablót. Jafn- vel megi sjá rauðan fána með hamri og sigð á blótunum í Neskaupstað. Þá hafi á blótið síðasta laugardag borist kveðjur í nafni manna eins og Pútíns og Kims Yong-uns og einnig Guðna Ágústssonar, Bubba Morthens, Gísla Marteins Baldurssonar og fleiri. Smári segir að mikil vinna liggi að baki þorrablótunum og margir leggi hönd á plóg við skemmtiatriði, sjálft blótshaldið og matinn. „Munstrið hér í Neskaupstað hefur á ýmsan hátt verið mjög sérstakt,“ segir Smári. „Þeir sem hafa unnið að blótinu hafa flestir gert það í mjög langan tíma og hér er ekki skipt um nefndir árlega eins og hefð er fyrir víða ann- ars staðar. Ég byrjaði til dæmis að standa í þessu í kringum 1980 og Guðmundur heitinn Bjarnason, sem við misstum á síðasta ári, kom að því að semja og flytja annálinn í tæplega 40 ár og marga fleiri mætti telja.“ Rifja upp og borða afganga Hér er svokallað trogafyrirkomu- lag þannig að menn mynda hópa og hver hópur sér um sinn mat og allt til- heyrandi, þar á meðal drykki. Haldn- ir eru trogfundir þar sem skipulagt er hvað hver og einn á að gera. Svo hitt- ast menn til að skammta í trogin áður en blótið er haldið og daginn eftir blót hittist fólk og borðar afganga. Rifjar upp og tekur það út sem gerðist á blótinu og fær sér viðgerðarbjór eftir atvikum,“ segir Smári. Aldrei skortur á skotfærum  50. kommablótið í Neskaupstað  Góður spéspegill Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson Smári Geirsson Skemmtun Sigurður Ólafsson blótsstjóri og Björgólfur Jóhannsson, sem leiddi söng karla við minni kvenna, álengdar eru Margrét Einarsdóttir og Ingibjörg Þórðardóttir sem leiddu söng kvenfólksins. Stefán Þorleifsson er á 100. aldursári, en lætur ekki deigan síga. Hann hefur mikið ábyrgðar- hlutverk á blótunum sem felst í því að skera úr um hvort minni karla eða kvenna sé betur sung- ið. Ekki bregst það að Stefán færir góð og gild rök fyrir niðurstöðu sinni og úrskurðar ævinlega að flutningur kvennanna hafi verið betri. Áhöld eru um hvort Stefán hafi mætt á öll komma- blótin eða misst af einu þeirra vegna lækn- isaðgerðar. Smári segir að menn vilji helst ekki missa af blóti og margir komi um langan veg til að gleðj- ast með Norðfirðingum. Sömuleiðis sé mikil festa í stjórnun blótanna eins og sjáist á því að blótsstjórar hafa aðeins verið fjórir frá upp- hafi. Stefán Þorleifsson stjórnaði fyrstu 25 blótunum, en síðan hafa þeir Freysteinn Bjarnason, Karl Jóhann Birgisson og Sigurður Ólafs- son verið blótsstjórar. Annálinn í ár sömdu Smári, Jón Björn Hákonarson og Guðmundur Rafnkell Gíslason. Hópur fólks flytur annálinn sem er lesinn, leikinn, sunginn og fluttur í myndum. Á fimmta hundrað manns sóttu kommablótið síðasta laugardag og var það haldið í íþróttahúsinu, þar sem rýmra var um gesti heldur en í Egilsbúð. Konurnar vinna alltaf MÆTTI Á BLÓTIÐ Á 100. ALDURSÁRI Stefán Þorleifsson SPÁ KL. 12.00 Í DAG Vaxandi austlæg átt, 10-18 m/s eftir hádegi, en hægari NA-til. Snjókoma á köflum um landið S-vert, en lítils- háttar él fyrir norðan. Kólnar NA-lands, en hlánar allra syðst.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.