Morgunblaðið - 11.02.2016, Blaðsíða 40
40 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2016
SVIÐSLJÓS
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Ágangur sjávar er farinn að bitna á
golfvelli Golfklúbbs Þorlákshafnar,
Þorláksvelli. Sandburður frá
sjávarkambinum hefur gert það að
verkum að forráðamenn klúbbsins
ákváðu að leggja af þær þrjár
brautir vallarins sem legið hafa
næst kambinum. Hafa fram-
kvæmdir og undirbúningur þeirra
staðið yfir undanfarin tvö ár. Hafa
þær notið stuðnings frá sveitarfé-
laginu Ölfusi og fleiri aðilum.
Edwin Roald golfvallahönnuður
var ráðinn til að hafa umsjón með
framkvæmdinni og hanna breytta
legu vallarins. Hann kynnti stöðu
framkvæmda á nýlegum aðalfundi
klúbbsins en reiknað er með að
þær taki tvö ár til viðbótar.
Langar gönguleiðir aflagðar
„Þessar þrjár brautir hafa átt
undir högg að sækja undanfarin ár
vegna sandburðar úr fjörukamb-
inum. Erfiðlega hefur því gengið að
rækta þéttan og góðan svörð sem
kylfingar vilja,“ segir Edwin en
framkvæmt hefur verið í áföngum
síðustu tvö ár, til að geta tekið í
notkun staðgengla fyrir brautirnar
þrjár.
„Við höfum reynt að staðsetja og
hanna nýjar brautir þannig að þær
taki á öðrum viðfangsefnum sem
kylfingar hafa bent á. Þannig hafa
langar göngur á milli brauta verið
nefndar, sér í lagi á tveimur stöð-
um á vellinum. Nýjar brautir koma
einmitt á þeim stöðum. Langar
gönguleiðir detta því út og völlur-
inn verður mun snarpari og styttri
en áður, enda hefur mörgum kylf-
ingum þótt hann í lengra lagi,“ seg-
ir Edwin ennfremur.
Þrekvirki á sínum tíma
Þorláksvöllur er einn fárra valla
á Íslandi sem bera flest einkenni
svonefndra strandvalla (e. Links)
þar sem jarðvegur er sendinn,
brautir og flatir fremur harðar og
sandhólalandslag endurspeglað vel
í hönnun. Þetta þýðir að hann get-
ur verið í notkun yfir lengra tíma-
bil á ári en flestir aðrir golfvellir.
Tilurð vallarins má rekja til þess
að árið 1994 ákváðu Landgræðslan
og bæjaryfirvöld í Þorlákshöfn að
reyna að hefta sandfok við inn-
keyrsluna til Þorlákshafnar. Sam-
hliða uppgræðslu var gerð tilraun
með að móta fyrir golfvelli og
rækta hann upp. Þessi vinna gekk
mjög vel og árið 1997 var golf-
klúbburinn stofnaður Á skömmum
tíma var byggður upp 18 holu völl-
ur, sem Hannes Þorsteinsson hann-
aði, en golfskálinn var vígður árið
2003.
„Gerð Þorláksvallar var mikið
þrekvirki á sínum tíma og þeir sem
að því komu geta verið stoltir af
því að hafa sýnt fram á hversu
gagnlegir golfvellir geta verið í
þágu landgræðslu. Fyrir vikið er í
dag orðið raunhæft að nýta þessar
framkvæmdir og endurskipulagn-
ingu til að færa völlinn nær því að
teljast alvörustrandvöllur. Við höf-
um enn engan slíkan á Íslandi,“
segir Edwin.
Vonir eru bundnar við að fyrri
áfanga verði lokið sumarið 2017 en
Edwin reiknar með að tveimur ár-
um síðar verði völlurinn kominn í
endanlega mynd. Mun völlurinn
styttast um 84 metra á gulum teig-
um og par vallarins fer úr 71 í 72.
Á meðan framkvæmdir standa yfir
verður par vallarins 70.
Landgræðsla á þessum slóðum á
sér enn lengri sögu en sem nemur
golfvellinum. Fara má allt aftur til
ársins 1935, þegar sandsvæðið um-
hverfis Þorlákshöfn var afgirt og
friðað. Melgresi var sáð og borið á
sjávarkambinn austur frá þorpinu.
Náði melgresið að fanga megnið af
sandinum sem barst upp með fjör-
unni og mynda sjóvarnargarð. Um
1950 voru skjólgarðar reistir á leir-
unum austan við þorpið, til að hefta
sandfokið enn meir og bjarga
byggðinni. Þannig ógnaði sandur-
inn fiskverkun á staðnum.
Golfvellir vannýtt auðlind
„Okkur langar einmitt til að
varðveita og skírskota til þeirrar
menningarsögulegu arfleifðar sem
tengist vellinum, t.d. með því að
gera fólki kleift að ganga þarna
um, upplifa svæðið betur og fræð-
ast um sögu þess. Golfvellir eru
vannýtt auðlind hvað þessa blöndun
landnýtingar varðar. Þeir geta
gegnt mjög spennandi og víðtæku
hlutverki í samfélaginu,“ segir
Edwin en mikill áhugi er meðal
heimamanna í Þorlákshöfn og
klúbbfélaga á þessum
breytingum. Samkvæmt
gildandi aðalskipulagi
er gert ráð fyrir stór-
skipahöfn í Þorláks-
höfn, upp með sjáv-
arkambinum sem
liggur meðfram hluta
golfvallarins. Nái þau
áform fram að ganga
segir Edwin að
stækkuð höfn
muni líklega
draga úr
sandburði.
Sjórinn sækir að golfvellinum
Miklar framkvæmdir fyrirhugaðar hjá Golfklúbbi Þorlákshafnar Leggja þarf af þrjár brautir á
Þorláksvelli vegna ágangs sjávar og sandburðar Golfvallahönnuður segir völlinn verða enn betri
Skýringarmynd/Edwin Roald-Mbl.
Þorláksvöllur Teikning af brautunum á Þorláksvelli, til vinstri eins og þær munu líta út eftir 1. áfanga framkvæmda og til hægri eftir lok framkvæmda.
10
1
2
3
4
5
6
7
8
9
11
12
13
14
1516
17
18
10
1
2
3
4
5
6
7
8
9
11
12
13 14
15
1617
18
Þorláksvöllur
ÁFANGI 1
Opnun 2017
Golfbrautir við sjávarkambinn
lagðar af. Tvær nýjar brautir
lagðar, nr. 7 og 11. Leikið
verður tímabundið inn á 10.
flöt af bráðabirgðateig.
ÁFANGI 2
Opnun 2019
Tvær aðrar brautir gerðar, nr.
2 og 10, ásamt nýjum teigum
á næstu braut. Nýjir teigar á
3. braut, sem verður 18. hola,
par-5, með ræktun á nýjum
brautarkafla.
Leikið tímabundið inn
á tvær eldri flatir af
bráðabirgðateigum.
Golfskáli Golfskáli
Möguleiki á færslu
æfingasvæðis, þurfi það
að víkja fyrir athafna-
svæði stækkaðrar hafnar
skv. aðalskipulagi.
Tvær nýjar
brautir lagðar.
1
1
1 13
1
1
10
17
17
18
18
16 11
15
7
1
2
11
1
Ljósmynd/GÞ
Kynning Edwin Roald golfvallahönnuður kynnti fyrirhugaðar fram-
kvæmdir á aðalfundi Golfklúbbs Þorlákshafnar á dögunum.
„Sandfokið hefur verið mikið
upp úr fjörunni á þessar
brautir og kallað á erfiðleika í
umhirðu vallarins. Kylfingar
vilja ekki spila í miklum sandi
og þetta hefur verið okkur
virkilega erfitt. Með breyting-
unum vonumst við til að fá
betri nýtingu á vellinum og
meiri aðsókn,“ segir Guð-
mundur Baldursson, formaður
Golfklúbbs Þorlákshafnar, um
breytingarnar á vellinum.
Guðmundur segir það mik-
inn feng fyrir klúbbinn að
hafa fengið Edwin til að
hanna breytingarnar. Hann
hafi flutt ítarlega og góða
skýrslu á aðalfundinum.
Um 300 félagsmenn eru
í GÞ, þar af töluverð-
ur fjöldi af höfuð-
borgarsvæð-
inu.
Vonast eftir
meiri aðsókn
FORMAÐUR KLÚBBSINS
Guðmundur
Baldursson
Ljósmynd/Edwin Roald
Golf Þrettánda brautin á Þorláksvelli, sem mun styttast um 60 metra af gul-
um teigum. Völlurinn er umlukinn sandhólum og tjörnum á sumum stöðum.
ÞÚF
ÆRÐ
VÉLS
LEÐA
-
FATN
AÐIN
NHJ
ÁOK
KUR
STORMUR EHF | KLETTHÁLSI 15 | S: 577 1717 | WWW.STORMUR.IS