Morgunblaðið - 11.02.2016, Síða 58
58 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2016
Dauðinn er nátt-
úrlega ekkert annað
en dauðans alvara. Við
höfum hann ekki í
flimtingum þegar
hann er okkur nærri,
þótt við vissulega
grínumst oft með hann
þegar hann virðist í
óræðri fjarlægð. Húm-
orinn verður að vera
til staðar. Og ég er
viss um að betra er að deyja úr
hlátri en leiðindum.
Enginn kemst af
fyrir eigin rammleik
Það eina sem öruggt var þegar þú
leist dagsljós þessarar að mörgu
leyti dimmu og köldu veraldar var
að þú myndir ekki sleppa frá henni
lifandi eða að minnsta kosti ekki
fyrir eigin rammleik.
Fyrr eða síðar munum við deyja.
Það eru engar fréttir, það liggur
nokkuð ljóst fyrir. Hvort sem við
verðum bráðkvödd, deyjum af slys-
förum, fyrir aldur fram, í svefni eða
vöku, vegna illvígra sjúkdóma eða í
hárri elli.
Aðdragandann, daginn eða stund-
ina veit enginn. Dauðinn er alltaf
óþægilegur og kemur einhvern veg-
inn alltaf á óvart. Við skiljum hann
ekki, verðum sorgmædd og eitthvað
svo skelfing umkomulaus.
Enn hef ég ekki hitt þá mann-
eskju sem fer eitthvað auðveldlega í
gegnum ævina. Verður ekki fyrir
áföllum eða vonbrigðum. Öll miss-
um við ástvini, berjumst við sjúk-
dóma og ekki síst okkar eigið sjálf.
Það dýrmætasta sem við eigum
Flest þráum við að fá að njóta
lífsins og að fá að halda í það. Lífið
er jú það dýrmætasta sem við eig-
um. En þegar við stöndum frammi
fyrir dauðanum erum við eitthvað
svo skelfing vanmáttug. Tilvistar-
spurningar gerast áleitnar og svörin
virðast oft fá.
Reyndar erum við alla ævina að
deyja og við það fær enginn ráðið,
þrátt fyrir hvers kyns námskeið og
góðar tilraunir til þess að halda líf-
inu í okkar hrörnandi líkama. Samt
höldum við áfram að hrörna, uns við
veslumst endanlega
upp og deyjum. Eða
þangað til við hættum
því við síðasta andvarp.
Því þá lýkur forréttin-
um og aðalrétturinn
tekur við.
Ég hef nefnilega þá
óbilandi trú og er þess
raunar fullviss að æv-
innar ljúfustu og bestu
stundir séu aðeins sem
forréttur að þeirri lífs-
ins veislu sem koma
skal. Þar sem okkur býðst að sitja
til borðs með sjálfum frelsaranum á
hinni eilífu uppskeruhátíð yfir sigri
lífsins. „Þá munum við sjá auglitis
til auglitis.“ Tárin verða þerruð og
spurningunum svarað. „Dauðinn
mun ekki framar til vera, hvorki
harmur né vein, sársauki eða kvöl.
Hið fyrra er farið. Sjá, ég gjöri alla
hluti nýja,“ eins og segir í Opinber-
unarbók Jóhannesar.
Enginn á meiri kærleika
Jesús sagði: Ég er upprisan og
lífið. Sá sem trúir á mig mun lifa
þótt hann deyi. Og hver sem lifir og
trúir á mig mun aldrei að eilífu
deyja. Trúir þú þessu? – Ég lifi og
þið munuð lifa!
Þess vegna finnst mér svo gott og
spennandi að fá að lifa í núinu, njóta
í þakklæti hverrar stundar í ljósi
þeirrar dýrðar sem koma skal. Því
að dauðinn er síðasti óvinurinn sem
að engu verður gjörður.
Enginn á meiri kærleika en þann
að leggja líf sitt í sölurnar fyrir vini
sína. Hvað þá svo þeir fái lifað um
eilífð.
En nú varir trú, von og kær-
leikur. Þeirra er kærleikurinn mest-
ur.
Lifi lífið!
Síðasti óvinurinn
Eftir Sigurbjörn
Þorkelsson
Sigurbjörn Þorkelsson
»Enginn á meiri
kærleika en þann
að leggja líf sitt í söl-
urnar fyrir vini sína.
Hvað þá svo þeir fái
lifað um eilífð.
Höfundur er rithöfundur
og aðdáandi lífsins.
Mér finnst að hækka ætti verulega sekt vegna snjallsímanotkunar öku-
manna. Hún er nú 5.000 kr. Mætti mín vegna hækka upp í 50.000 eða meira.
Eygló.
Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is
Hækkum sektir
Umferð Bréfritari vill hækka sekt vegna snjallsímanotkunar í akstri.
Fréttablaðið birti
grein 9.12. 2015 undir
heitinu „Íslam for-
dæmir hryðjuverka-
starfsemi“, eftir
Mansoor Ahmad Mal-
ik. Hann er „imam“
(trúarleiðtogi) hjá
Ahmadiyya-múslimum,
að Kirkjuteigi 9. Ahma-
diyya var stofnað 1889
á Indlandi, af Mirza
Ghulam Ahmad (1835-
1908). Talið er að um 1% af múslim-
um í heiminum séu fylgjendur safn-
aðarins og fyrirfram mætti ætla, að
trúarleiðtoginn myndi einungis vera
talsmaður eigin safnaðar.
Ahmadiyya er einn þriggja músl-
imasafnaða á Íslandi og er hver
þeirra með sína mosku. Súnní-
íslamsöfnuður er með mosku í Ým-
ishúsinu við Skógarhlíð og er hús-
næðið í eigu Sádi-Arabíu, sem eru
heimaslóðir súnní-íslams. Þrátt fyrir
þessar moskur er Reykjavík að
mestu laus við ásýnd íslams og þetta
kunna margir að meta. Borgarstjórn
virðist því miður ákveðin að breyta
svip borgarinnar, því að hún hefur
gefið land undir enn eina moskuna.
Lúta allir múslimar hug-
myndafræði súnní-íslams?
Ahmadiyya er talinn vera frið-
samur söfnuður, en sama verður
ekki sagt um alla söfnuði íslams. Það
verður því að teljast furðulegt, að í
grein sinni gerir trúarleiðtoginn eng-
an greinarmun á viðhorfum hinna
ýmsu safnaða íslams. Hann fullyrðir
að íslam í heild sinni fordæmi
hryðjuverk og þar á meðal hlýtur að
vera súnní-íslam. Þess má geta, að
Ahmadiyya beinir trúboði sínu að
kristnu fólki, en ekki að súnní-
múslimum, þar sem siðbótar er
sannarlega þörf. Trúar-
leiðtoginn segir:
„Nýlegar árásir í
París eða hvar sem er
annars staðar í heim-
inum eins og í Líbanon,
Malí og áframhaldandi
stríðið í Sýrlandi
o.s.frv. sem leiða til
þess að saklaust fólk
lætur lífið, eru gríð-
arlega villimannlegar
og algjörlega gegn
kenningum íslams.
Hinn heilagi Kóran
kennir á skýran hátt að
sé jafnvel ein saklaus manneskja
drepin er það í eðli sínu líkt því að
drepa allt mannkynið.“
Kóraninn, vers 5:32
Framangreind tilvitnun er fölsuð,
því að sem útlærður „imam“ veit
hann hvað stendur í „hinum heilaga
Kóran“. Hann fullyrðir að í Kór-
aninum standi: „að sé jafnvel ein sak-
laus manneskja drepin er það í eðli
sínu líkt því að drepa allt mann-
kynið“. Hugtakið „saklaus mann-
eskja“ er auðvitað teygjanlegt, en
látum það liggja á milli hluta. Þessi
falsaða tilvitnun er tekin úr versi
5:32:
„Við (Muhammad) settum þess
vegna Börnum Ísraels (Gyðingum)
þau lög, að ef einhver þeirra myrti
múslima – nema það væri hefnd fyrir
morð á múslima eða hefnd fyrir að
boða múslimum villutrú – yrðu af-
leiðingarnar sambærilegar við að
hann hefði myrt alla þjóðina, en hins
vegar ef einhver gyðingur bjargaði
lífi múslima væri það sambærilegt
við að bjarga öllu mannkyni.“ (vers
5:32).
Kóraninn, vers 5:33
Verið er að lýsa hversu alvarlegt
brot það er, að gyðingur myrði músl-
ima. Undantekning er veitt, ef morð-
ið er hefnd fyrir morð á múslima eða
hefnd fyrir að boða múslimum villu-
trú. Samkvæmt sjaría-lögum eru því
ekki allir jafnir og þetta er hliðstætt
mismunun gagnvart kvenfólki.
Næsta vers „hins heilaga Kórans“
lýsir refsingum þeirra sem heyja
styrjöld gegn múslimum, eða boða
þeim villutrú. Vers 5:32 hljóðar:
„Sannarlega er refsing þeirra,
sem heyja styrjöld gegn Allah og
sendiboða hans (Muhammad) eða
boða trúvillu (gyðingatrú eða
kristni), engin önnur en dauðarefs-
ing, eða krossfesting, eða að báðar
hendur þeirra og báðir fætur verða
höggnir af, eða þeir gerðir útlægir. Í
þessum heimi verður niðurlæging
þeirra fullkomin og handan dauðans
bíða þeirra hræðilegar kvalir.“ (vers
5:33).
Með vers 5:32 og 5:33 í huga er úti-
lokað að samþykkja boðskap trúar-
leiðtogans. Sú fullyrðing „að íslam sé
boðskapur friðar“ er algjörlega frá-
leit, jafnvel þótt huglausir þjóðar-
leiðtogar á Vesturlöndum hafi lagst
svo lágt að taka undir hana. Margir
múslimar haga lífi sínu í samræmi
við hugmyndafræðina sem þeir að-
hyllast, en auðvitað ekki allir.
Hryðjuverk, limlestingar og kven-
fyrirlitning eru sterkir þættir í
súnní-íslam og allur heimurinn fær
að líða fyrir boðskapinn sem eign-
aður er Allah.
Hugmyndaheimur íslams er
framandi kristnu fólki
Heimurinn stendur agndofa gagn-
vart hatursfullum boðskap súnní-
íslam og hryðjuverkum í nafni Allah.
Auk þess að vera trúarbrögð er ísl-
am frumstæð hugmyndafræði, sem
fyrirskipar útbreiðslu með jihad-
hryðjuverkum og kúgun með harð-
neskjulegum sjaría-lögum. Þessi
ófögnuður lætur ekkert ósnert. Önn-
ur viðhorf ríkja í kristni, því að Jesús
sagði: „Gjaldið keisaranum það sem
keisarans er og Guði það sem Guðs
er.“ Líklega er þetta mikilvægasta
leiðsögn sem kristni hefur gefið
mannkyni.
Íslam sem hugmyndafræði birtist
á rituðu formi í Kóraninum, Hadítum
(frásagnir Muhammads) og Sira
(ævisaga Muhammads) og er því
einn boðskapur og óbreytanlegur.
Súnní-múslímar eru bókstafstrúar,
en aðrir söfnuðir virðast fremur hóf-
samir. Vestræn samfélög mega ekki
gera þau mistök að meðhöndla alla
múslima með sama hætti. Súnní-
íslam ættu öll samfélög að banna og
beita uppfræðslu til að milda viðhorf
þeirra múslima sem fá landvist.
Náðst hefur góður árangur við að
lækna áfengissýki og hliðstæðum að-
ferðum ætti að vera hægt að beita
gegn íslam.
Súnní-íslam hvetur
til hryðjuverka
Eftir Loft Altice
Þorsteinsson » Súnní-íslam ættu
öll samfélög að
banna og beita upp-
fræðslu til að milda
viðhorf þeirra múslima
sem fá landvist.
Loftur Altice
Þorsteinsson
Höfundur er verkfræðingur.
Atvinnublað alla laugardaga
ER ATVINNUAUGLÝSINGIN ÞÍN
Á BESTA STAÐ? Sendu pöntun á augl@mbl.is eða
hafðu samband í síma 569-1100
Allar auglýsingar birtast bæði í
Mogganum og ámbl.is
Netlu-, túnfífla- og birkilaufstöflur
örva brennslu ogmeltingu og eru
bjúglosandi. Sérstaklega er mælt
með vörunni til að hreinsa líkamann.
Colonic Plus
Kehonpuhdistaja
www.birkiaska.is
Café Nielsen –
Egilsstöðum
Til sölu er veitingastaðurinn Café Nielsen á Egilsstöðum, um er að ræða
húsnæði og rekstur staðarins. Café Nielsen er í hjarta Egilsstaða í ein-
staklega fallegu umhverfi, umvafið skjólríkum trjágróðri. Stór timburpallur
er við húsið og afar vinsælt að borða úti á góðviðrisdögum. Café Nielsen
er í sögufrægu húsi við Tjarnarbraut 1, elsta húsi bæjarins (byggt 1947).
Hér er einstakt tækifæri fyrir fólk sem vill reka rómantískan og nota-
legan veitingastað á landsbyggðinni en ljóst er að mikil viðskiptavild fylgir
staðnum.
Nánari upplýsingar hjá INNI fasteignasölu
s.580 7905 eða á www.inni.is.