Morgunblaðið - 11.02.2016, Page 46

Morgunblaðið - 11.02.2016, Page 46
46 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2016 VIÐTAL Baldur Arnarson baldura@mbl.is Ellen Stofan, yfirvísindamaður hjá Geimvísindastofnun Bandaríkjanna, NASA, kemur fyrir sem hógvær kona þegar hún sest niður með blaðamanni við aðalinnganginn á Háskólanum í Tromsö. Þar stóð yfir norðurslóðaráðstefnan Arctic Fron- tiers og var Stofan meðal ræðu- manna. Þar fjallaði hún meðal ann- ars um rannsóknir starfsfélaga sinna hjá NASA á bráðnun íss á norðurslóðum. Sagði hún það álit vísindamanna NASA að herða muni á bráðnun íss á Grænlandsjökli. Stofan er doktor í jarðfræði og fjallaði doktorsritgerð hennar um rannsóknir á Venusi. „Sem yfirvísindamaður NASA veiti ég Charles Bolden, stjórnanda NASA, ráðgjöf um stefnumótun í vísindarannsóknum hjá stofnuninni. Ég fylgist með þeim fimm rannsókn- arsviðum sem við höfum hjá NASA; jarðvísindum, rannsóknum á reiki- stjörnum í sólkerfi okkar, stjarn- eðlisfræði, rannsóknum á sólinni og loks daglegum rannsóknum okkar í Alþjóðlegu geimstöðinni sem eru lið- ur í undirbúningi að leiðöngrum til Mars,“ segir Stofan um starf sitt. Fyrirmyndir eru mikilvægar Talið berst næst að stöðu kvenna í bandarísku vísindalífi. Stofan segir ekki hægt að halda því fram að hlutirnir hafi ekki þróast til betri vegar í Bandaríkjunum. „Þegar hins vegar er haft í huga að konur eru aðeins 20-30% starfs- manna í raungreinum, tölvufræði og verkfræði er ljóst að við eigum enn nokkuð í land. Staðan er aðeins betri í greinum sem tengjast líffræði og loftslagsrannsóknum. Hvers vegna er þetta mikilvægt?“ spyr Stofan. „Ef við ætlum að öðlast skilning á erfiðum vandamálum, vinna að lofts- lagsmálum, aðstoða NASA við mannaða leiðangra til Mars og fást við samfélag sem verður sífellt tæknilegra, erum við aðeins að virkja lítinn hluta mannfjöldans með því að nýta aðeins krafta hvítra karla, en ekki krafta kvenna eða fólks sem er ekki hvítt og leyfa þannig hæfileikum allra að blómstra. Rannsóknir benda til þess að krakkar þurfi fyrirmyndir. Krakkar þurfa að sjá að þeir eru vel- komnir. Þeir þurfa að fá hvatningu frá kennurum og heyra að vísindi séu raunhæfur starfsvettvangur. Það þarf að sýna þeim að þetta er gaman. Sjálf fæ ég að rannsaka eld- fjöll. Samstarfsmenn mínir eru að rannsaka vetrarbrautir og myndun þeirra. Við höfum verkfræðinga sem stýra könnunarförum á yfirborði Mars. Við fáum að skemmta okkur. Þegar krakkar eru að leggja jöfnur á minnið, eða að vinna að lausn vís- indalegs vandamáls, þurfa þeir að vita að vísindin geta boðið upp á skemmtilega hluti.“ Getur verið letjandi – Eru einhverjar hindranir, eða fordómar, í vegi kvenna í bandarísku vísindasamfélagi? „Þeir eru mjög margir karlarnir í vísindum og verkfræði sem eru mjög hvetjandi fyrir konur. Aðrir eru það hins vegar ekki. Þegar horft er til háskóladeilda í vísindum og verk- fræði er hlutfall kvenna í kennara- deildum 20-30%. Það þýðir að þegar ungar konur eru komnar að kross- götum á sínum ferli, og velta því fyr- ir sér hvort þær eigi að gera vísindin að ævistarfi, sjá þær ekki marga eins og þær. Þannig er staðan. Þetta er ekki spurning um að einhver þurfi að letja þig, heldur er hægt að láta letja sig með því að horfa í kringum sig. Konur virðast ekki ná árangri og þær kunna að spyrja sig hvort þær eigi heima annars staðar en í vísind- um.“ – Hvað er hægt að gera til að fá konur til að halda áfram í vísindum á þessu mikilvæga tímabili? „Hluti af því varðar sjálfstraust. Margar rannsóknir benda til að þeg- ar stúlkur eru í svona aðstæðum, og horfa í kringum sig en sjá engan eins og þær sjálfar, sé það letjandi fyrir þær,“ segir Stofan og bendir á verk- efni sem eru unnin um heim allan til að byggja upp sjálfstraust stúlkna, til dæmis við forritun. „Slík verkefni sýna stúlkum fram á að forritun er ekki aðeins fyrir stráka, heldur eitthvað sem þær geta fengist við. Sjálf var ég ekki besti stærðfræðinemandinn í heim- inum. Ég hef ekki tölu á hversu margar konur hafa sagt við mig að þær hefðu farið í vísindi, ef þær hefðu ekki átt í erfiðleikum með stærðfræði. Sjálf átti ég erfitt með stærðfræðina. Faðir minn var verk- fræðingur og móðir mín vísinda- kennari. Þau sögðu mér að halda áfram, ég gæti vel það sem ég ætlaði mér. Stundum þarf hvatningu,“ seg- ir Stofan en faðir hennar, Andrew, þróaði m.a. eldflaugar fyrir NASA. Stofan segir að í mars verði söfn í Bandaríkjunum helguð hinni ósögðu sögu kvenna í vísindum og tækni. „Uppáhaldssagan mín er af blökkukonunni Katherine Johnson, sem starfaði sem stærðfræðingur hjá NASA. Þetta var í Suðaustur- Virginíu og það má ímynda sér hvað hún þurfti að leggja á sig á hverjum degi til að komast í vinnuna. Hún var ótrúlegur stærðfræðingur og varð að lokum sú sem reiknaði brautirnar sem geimfararnir í Gemini og Merc- ury-leiðöngrunum fóru eftir.“ Konan sem fáir þekkja „Sú saga hefur verið sögð af geim- faranum John Glenn að hann hafi spurt hvor stúlkan frá Langley í Virginíu hefði farið yfir útreiking- ana. Svo þekkt var hún,“ segir Stof- an en Glenn var fyrsti Bandaríkja- maðurinn sem fór á sporbaug um jörðu. „Obama forseti sæmdi hana heiðursorðu í desember (Presidenti- al Medal of Freedom). Hér er þessi kona, Katherine Johnson, sem tók þátt í að móta geimferðaáætlun Bandaríkjanna og fáir hafa heyrt getið. Eitt af því sem við höfum skoðað í bandaríska stjórnkerfinu er hvernig við getum komið á framfæri svona sögum af konum um heim all- an sem hafa lagt mikið af mörkum til vísinda og tækni.“ Þegar viðtalinu lýkur segir Stofan að Ísland sé einn af sínum eftirlætis- stöðum. „Þið hafið mögnuð eldfjöll og einstakt land,“ segir hún. NASA þarf á konum að halda  Yfirvísindamaður hjá NASA segir mannkynið þurfa á hæfileikum kvenna að halda í vísindunum  Mikilvægt sé að styðja átaksverkefni sem segja hina ósögðu sögu kvenna í þróun vísinda og tækni Ljósmynd/NASA Vísindakona Stofan var skipuð yfirvísindamaður hjá NASA 2013. AFP Leiðangrar út í geim » Frá og með árinu 1991 gegndi Stofan ýmsum stöðum sem yfirmaður verkefna hjá rannsóknarstofu NASA (Jet Propulsion Laboratory) í Pasa- dena, Kaliforníu. » Hún var yfirvísindamaður nýárþúsundaverkefnis NASA, aðstoðaryfirvísindamaður Ma- gellan-leiðangursins til Ven- usar og sinnti tilraunum á búnaðinum SIR-C, sem not- aður var til að taka rat- sjármyndir af jörðu í tveimur ferðum geimferja NASA árið 1994. » Stofan hefur rannsakað jarðfræði Venusar, Mars og Títans, tungls Satúrnusar, og jafnframt jarðfræði jarðar. » Hún tók þátt í ratsjárteymi vegna Cassini-leiðangursins til Satúrnusar og var þátttakandi í Mars-verkefninu MARSIS. » Hún leiddi jafnframt rann- sóknir vegna áforma um að senda könnunarfar (TiME) sem flotið getur á hafi á Títan. Alþjóðlega geimstöðin Rannsóknir í geimstöðinni eru eitt af því sem heyrir undir Ellen Stofan og kollega hennar. Vísindakonur hafa komið að mörg- um merkum uppgötvunum um al- heiminn sem halda munu nafni þeirra á loft um ókomna tíð. Bandaríski eðlisfræðingurinn Lawrence Krauss fjallar í bókinni Alheimur úr engu um rannsóknir Henriettu Swan Leavitt, sem var árið 1908 ráðin sem „tölva“ við Stjörnustöð Harvard-háskóla. „„Tölvurnar“ voru konur sem skrásettu birtustig stjarna á ljós- myndaplötum stjörnustöðvarinnar; konur máttu þá ekki nota sjónauka stöðvarinnar,“ skrifar Krauss og gerir grein fyrir þeirri uppgötvun Leavitt að ef hægt væri að ákvarða fjarlægðina til eins sefíta með þekkta birtulotu gætu mælingar á birtustigi annarra sefíta með svip- aða lotu gert kleift að ákvarða fjar- lægðina til þeirra. það fréttist að hún hefði látist úr krabbameini þrem- ur árum áður. Hubble hafi hins vegar orðið heims- þekktur. Fjallað er um framlag Katherine Johnson til geim- ferða NASA hér fyrir ofan. Vera Rubin var líkt og Leavitt brautryðjandi í rannsóknum á al- heiminum. Hún fékk ekki skólavist í Princeton-háskóla, þar sem skól- inn tók þá ekki við konum í fram- haldsnám í stjarnvísindum. Út frá rannsóknum hennar á hreyfingu á stjörnum og gasi í Vetrarbrautinni kom í ljós að þar hlyti að leynast meiri massi en vitað var um. Hulduefnið kom til sögunnar. Edwin Hubble hafi síðan notað mælingar sínar á sefítum og birtu- lotutengsl Leavitt til að sanna að sefítar í Andrómeduþokunni og nokkrum öðrum þokum væru alltof langt í burtu til að geta verið innan Vetrarbrautarinnar. Alheimurinn reyndist miklu stærri en talið var. Krauss skrifar að Konunglega sænska vísindaakademían hafi bú- ið sig undir að tilefna Leavitt til Nóbelsverðlauna árið 1924 þegar Konan sem stækkaði alheiminn FRAMLAG BANDARÍSKRA VÍSINDAKVENNA Henrietta Leavitt Katherine Johnson Vera Rubin VÍKURVAGNAR EHF. Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is Einnig mikið úrval varahluta í Ifor Williams og aðrar gerðir af kerrum, ásamt úrvals viðgerðarþjónustu. Kerrur frá Ifor Williams í öllum stærðum og útfærslum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.