Morgunblaðið - 11.02.2016, Blaðsíða 54
54 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2016
Kemi, Finnlandi. AFP. | Óárennilegir
hópar, sem kalla sig Hermenn Óðins,
hafa undafarna mánuði vaktað götur
borga í Finnlandi undir því yfirskini
að þeir séu að vernda heimamenn
fyrir hælisleitendum. Nú er komið
fram óvænt svar við þeim – brosandi
konur, sem bjóða upp á faðmlag.
Í smábænum Kemi, sem er um
klukkustundar akstur frá heim-
skautsbaug gengur hópur þrekinna
manna í svörtum hermannajökkum
um götur og lætur 15 stiga frost ekki
á sig fá. Þeir halda því fram að þeir
þurfi að vernda konur og börn í bæn-
um fyrir „íslömskum boðflennum“
eins og það er orðað á heimasíðu
þeirra.
Þessi fámenni hópur undir forustu
stofnandans, Mikas Ranta, 29 ára
gamals vörubílstjóra, sem nefndi
samtökin eftir Óðni, æðsta guði nor-
rænar goðafræði, stendur vaktina
þótt enginn hælisleitandi sé sjáan-
legur á götunum þegar tíðindamann
AFP ber að garði.
Virkir í 20 bæjum
Hópurinn segir að sjálfboðaliðar
séu virkir í að minnsta kosti 20
finnskum bæjum og fari um í ein-
kennisklæðum samtakanna, með
svarta hatta og klæddir svörtum
jökkum með einkennisstafi þeirra á
bakinu.
Vaktir þeirra hófust í Kemi í októ-
ber eftir að farandmenn, einkum frá
Írak, fóru að streyma yfir landamær-
in frá Svíþjóð. Margir þeirra
fóru í gegnum Kemi á leið
sinni til bæja sunnar í Finn-
landi.
Finnar tóku á móti
32.000 hælisleitendum í
fyrra. Í Finnlandi búa 5,4
milljónir manna og var það
með því mesta sem gerðist í
Evrópu miðað við höfða-
tölu.
Hermenn Óð-
ins, sem sem
flestir eru
verkamenn
á aldr-
inum 20 til 40 ára, halda fram að þessi
straumur hafi leitt til aukningar
glæpa.
Lögreglan er reyndar á öðru máli,
en Ranta lætur það ekki á sig fá og
ítrekar að samtökin muni verða nauð-
synleg innan nokkurra mánaða þegar
sumarið kemur, almenningur streymi
að ströndum vatnanna og „nauðgun-
arárásirnar“ hefjist.
Sagðir tengjast nýnasistum
Í finnskum fjölmiðlum hefur mikið
verið fjallað um tengsl Hermanna
Óðins við nýsnasistasamtök.
Ranta, sem var dæmdur fyr-
ir að ráðast á tvo innflytj-
endur 2005, er ekkert að fela
að hann sé nýnasisti – „Já,
það er ég“ – en heldur fram
að hugmyndafræði hans og
aðild að Finnsku and-
spyrnuhreyfingunni komi
eftirlitinu ekkert við.
„Þótt ég sé
stofnandinn
eða þannig
þýðir það
ekki að
allur
hópurinn sé [nýnasistar] … Við erum
bara eftirlitshópur og hvers vegna
þarf fólk að gera eitthvað annað úr
því?“ spyr hann.
Hópur kvenna er nú staðráðinn í að
sýna að Finnland sé umburðarlynt og
öruggt. Þær kalla sig Systur Kyllikki,
gáskafullrar persónu úr finnska
söguljóðinu Kalevala. Í hópnum eru
mæður, ellilífeyrisþegar og sérfræð-
ingar, sem náðu saman gegnum fé-
lagsmiðilinn Facebook.
Þær taka á móti ókunnugum með
bros á vör og miða sem veitir „leyfi til
faðmlags“.
Sumir vegfarendur virðast skelk-
aðir þegar konurnar koma aðvífandi.
Ekki er nóg með að þær tali við
ókunnuga heldur faðma þær þá. Í
Finnlandi stingur slík hegðun í stúf,
en konurnar eru þeirrar hyggju að
yfirstíga megi ótta og óöryggi með
einföldum góðverkum.
Öruggur og friðsæll bær
„Við erum hér til að sýna að Kemi
er öruggur og friðsæll bær og fólk
ætti að vera betra hvað við annað,“
sagði kona úr hópnum, sem vildi ekki
gefa upp nafn sitt af ótta við árásir á
félagsmiðlum.
Segjast vakta hælisleitendur
Hópur sem nefnist Hermenn Óðins stundar eftirlit í bæjum í Finnlandi Segjast vernda konur og
börn gegn innflytjendum Konur hafa tekið sig saman og svara með brosi og bjóða upp á faðmlag
AFP
Vígalegir Hópur svartklæddra félaga úr Hermönnum Óðins stendur á götu í bænum Kemi í Finnlandi 5. febrúar.
Liðsmenn samtakanna fara um götur og segjast vera að vernda heimamenn fyrir hælisleitendum.
AFP
Konur svara Félagi úr Systrum Kyllikki býr sig undir að ganga um bæinn
Kemi og faðma vegfarandur. Framtakið er andsvar við Hermönnum Óðins.
Mika Ranta,
stofnandi Her-
manna Óðins.
Fordæma öfgar
» Hvorki lögregla né Hermenn
Óðins hafa greint frá því að
slegið hafi í brýnu til þessa, en
þeir eru þyrnir í augum yfir-
valda.
» Finnska lögreglan segir að
Hermenn Óðins hafi engan rétt
til að láta að sér kveða.
» Ríkisstjórnin hefur fordæmt
tilveru þeirra og harmaði Pet-
teri Orpo „öfgar“ í fari þeirra.
» Samtökin segja að þau séu
með 600 félaga í Finnlandi og
stuðningshópar hafi komið
fram á hinum löndunum á
Norðurlöndum og í Bandaríkj-
unum.
Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, gagn-
rýndi í gær stuðning Bandaríkjamanna við helstu
samtök Kúrda í Sýrlandi, Lýðræðissambands-
flokk Kúrda, PYD. Forsetinn sagði að Sýrland
hefði orðið að „blóðhafi“ vegna þess að stjórnin í
Washington neitaði að skilgreina flokkinn sem
hryðjuverkasamtök.
Tyrknesk stjórnvöld segja að PYD og vopnaðar
sveitir flokksins, Verndarsveitir þjóðarinnar
(YPG), séu útibú Verkamannaflokks Kúrdistans,
PKK, sem barðist í áratugi blóðugri baráttu fyrir
sjálfstæði Kúrdahéraða í Tyrklandi. Bandarísk
stjórnvöld hafa skilgreint PKK sem hryðjuverka-
samtök en reiða sig á PYD og vopnaðar sveitir
flokksins í Sýrlandi í baráttunni gegn Ríki íslams,
samtökum íslamista. Talið er að meira en 500 manns hafi beðið bana síð-
ustu tíu daga í sókn sem sýrlenski stjórnarherinn hóf með hjálp rússneskra
herflugvéla gegn uppreisnarmönnum í borginni Aleppo.
STRÍÐIÐ Í SÝRLANDI
Erdogan gagnrýnir stuðning við Kúrda
Kúrdar með fána PYD.
Lögreglan í Haryana-ríki á norðanverðu Ind-
landi hefur ákveðið að nota teygjubyssur til að
skjóta pipardufti og glerkúlum þegar stöðva
þarf óeirðir sem eru nær daglegt brauð á þess-
um slóðum. Lögreglan hefur hingað til notast
við táragas og kylfur í átökum við mótmæl-
endur en segir að þær aðferðir hafi ekki gefið
góða raun. Hún hafi komist að þeirri niður-
stöðu að það sé miklu betra að skjóta pipardufti
og glerkúlum með teygjubyssum en að nota
byssur til að skjóta gúmmíkúlum því að þær
geti valdið slæmum meiðslum. Andstæðingar
nýju aðferðarinnar segja að glerkúlur geti
einnig valdið meiðslum en lögreglan segir að
þeim verði ekki skotið nema reynt hafi verið án
árangurs að stöðva óeirðirnar með duftinu.
INDLAND
Teygjubyssum beitt gegn mótmælendum
Lögreglumaður beitir
teygjubyssu.
Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - www.ofnasmidja.is - sími 577 5177
hafðu það notalegt
vottun reynsla
ára
ábyrgð
gæði
miðstöðvarofnar