Víkurfréttir - 03.03.1994, Side 6
6
3. MARS 1994
VÍKURFRÉTTIR
Stærsta frétta■ og auglýsingablaðiÖ á Suðurnesjum
Útgefandi: Víkurfréttir hf.
Afgreiðsla, ritstjórn og auglýsingar: Vallargötu 15, símar 14717,
15717. Box 125,230 Keflavík. Póstfax nr. 12777. - Ritstjóri og
ábm.: Páll Ketilsson, heimas. 13707, bílas. 985-33717. - Frétta-
stjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, heimas. 27064, bílas. 985-42917.
- Auglýsingastjóri: Sigríður Gunnarsdóttir - Upplag: 6400 eintök
sem dreift er ókeypis um öll Suðurnes. - Fréttaþjónusta fyrir
Stöð 2 og Bylgjuna. - Aðili að Samtökum bæja- og héraðsfréttablaða.
- Eftirprentun, hljóðritun, notkun ljósmynda og annað er óheimilt
nema heimildar sé getið.
Umbrot, filmuvinna og prentun: Grágás hf., Keflavík
D-ALMA IAUGSYN
Heilbrigðisráðherra hefur gefið það út að bygging D-álmu
verði hafin á þessu ári, líklega í sumar. Hér er um gríðarlegt
hagsmunamál að ræða fyrir Suðurnesjamenn, þar sem ný þrjátíu
rúma langlegudeild bætist við það sem fyrir er, ásamt end-
urhæfingar- og sjúkraþjálfunardeild og viðbót við heilsugæslu.
En þetta er ekki aðeins viðbót þjónustulega séð því þetta er
stórmál atvinnulega séð. Margar hendur þarf við smíði bygg-
ingarinnar og síðan skapar D-álman sjálf þegar hún verður til-
búin 30-35 störf. Þá er ónefnd öll sú þjónusta sem þarf að kaupa
af aðilum á svæðinu.
í samtali við Skúla Skúlason, formann stjórnar Sjúkrahúss
Suðurnesja í grein annars staðar í blaðinu kemur fram að hann
telur að sameining Keflavíkur, Njarðvík og Hafna hafi haft
mikið að segja í þessari ákvörðun ráðherra um að hefja bygg-
ingu D-álmu á þessu ári. Nýja sveitarfélagið verður reynslu-
sveitarfélag og við það eitt, fær það tækifæri til að reyna ýmsar
nýjungar í rekstri. Stjórnvöld koma þannig til móts við þau
sveitarfélög sem sameinast. Og kannski er þetta aðeins fyrsta
„viðurkenningin“ sem hið nýja sveitarfélag er að fá'ffá stóra
bróður, ríkinu.
Það verður því spennandi að fylgjast með þróun mála í nýju
sameinuðu sveitafélagi á næstu mánuðum, ekki síst eftir kosn-
ingar.
PRÓFKJÖR EDA EKKI?
Hér hefur áður verið rætt urn framkvæmd við skipan fram-
boðslista fyrir bæjarstjórnarkosningar í vor. Leiðarahöfundur
taldi þá að prófkjör væri rétta leiðin til að ákveða fram-
boðslistana og hafa nú a.m.k. tveir flokkar ákveðið að viðhafa
prófkjör, með skilyrðum þó. All margir hafa hins vegar verið
á þeirri skoðun að stilla ætti upp í ljósi viðkvæmninnar eftir
sameiningu sveitarfélaganna. Málið er hins vegar það að við-
kvæmnin snýst öll um það að hlutur Njarðvíkinga verði ekki
fyrir borð borinn, einungis vegna þess að í því bæjarfélagi var
andstaðan mest gegn sameiningu. Það er kannski rétt að taka
„mýkra“ á þessum málum nú en nauðsyn þyrfti, en er engu að
síður spurning um hvort ekki sé verið að berja á lýðræðinu
þcgar kannski stærstu flokkarnir ætla að gefa Njarðvíkingum
eftir tvö sæti af fimm efstu. Ekki síst í ljósi þess að at-
kvæðamagn Njarðvíkinga er aðeins á milli 20 og 30% í nýju
sveitarfélagi. Hvað sem þessu öllu líður er mikilvægt að allir
íbúar, jafnt frambjóðendur sem aðrir, vinni að því af kappi.
HUGMYNDASAMKEPPNI
UM NAFN
Nýlega var samþykkt að láta fara fram hugmyndasamkeppni
á meðal íbúa sveitarfélaganna þriggja um nafn á nýja sameinaða
sveitarfélagið. Dómnefnd mun velja fimm nöfn, sem síðan
verða lögð fyrir íbúa sveitarfélaganna þriggja til að velja um í
sérstakri skoðanakönnun. Þetta er lýðræðisleg og góð leið til að
tlnna nafn og vonandi heppnast hugmyndasamkeppnin vel og
gott nafn fæst á þetta framtíðarbæjarfélag.
Páll Ketilsson.
S'EHL-stSmpJw tíska
Ijósmyndari: oddgeir karlsson
Jyrirsœtur: yngvi þór, aron, ásdís, katý og laufey
EINKAKLÚBBURINN
Einkaklúbbsfélagar athugið!
BUBBLEFLIES spila íÞOTUNNI laugardagskvöld.
50% afsláttur allt kvöldiðfyrir einkaklúbbsfélaga.
Kiddi í Hljómalind sér um diskótekið.
Einnig minnum við Einkaklúbbsfélaga á sértilboð okkar á RANNI.
Því hefur verið framlengt um eina viku, eða til 11. mars.
TVEIR fyrir EINN ásérstökum Einkaklúbbsinatseðli
og 15% afsláttur af víni með matnum.
Umboðsmaður í Keflavík: Sigvaldi, s: 92-14249.