Víkurfréttir - 03.03.1994, Qupperneq 12
3. MARS 1994
Hvað er framundan
/ nýju bæjarfélagi?
Á næstu mánuðum munu fara
fram víðtækar breytingar í stjórnun
hins nýja sveitarfélags. Yfirstjórn
sameinast strax en nokkur ttmi getur
liðið þar til allar nauðsynlegar
breytingar verða komnar til fram-
kvænda. Ibúarnir munu ekki finna
miklar breytingar, því þjónusta við
ibúana mun ekki minnka frá því sem
nú er, heldur frekar aukast. Þetta
breytingatímabil verður sjálfsagt
erfitt fyrir stafsfólk sveitarfélag-
anna því fjölmörgum spumingum
verðu ekki unnt að svara þar til ný
bæjarstjórn tekur við.
Nýjar reglur, samþykktir
og endurskoðaðir
samningar.
Bæjarstjórn verður að semja nýja
bæjrmálasamþykkt þar sem kveðið
er á um tjölmörg mál s.s. réttindi og
skyldur bæjarfulltrúa, nefndarkerfi,
fundarsköp, fjármál og staifs-
mannamál. Taka þarf allar núgild-
andi reglur sveitarfélaganna, sam-
þykktir og samninga til endurskoð-
unar. Það verður eflaust tímafrekt
starf en nýtt sveitaifélag tekur við
réttindum og skyldum gömlu sveit-
arfélaganna. Starfsmennirnir eru í
mismunandi stéttaifélögum og
skoða þarf launakjör þeirra sem
vinna samsvarandi störf því ekki er
boðlegt annað en að greiða þeim
sömu laun. Fljótlega verða skrif-
stofur, tæknideild og áhaldahús
sveitarfélaganna sameinuð. I fram-
tíðinni spara í útgjöldum á þessum
stofnunum í kaupum á tækjum,
áhöldum og hugbúnaði. Vatns-
veitan er sameiginlegt fyrirtæki en
getur sameinast rekstri ásbaldahúss
og þarfnast ekki lengur sérstakrar
stjómar en gæti fallið undir
„tækniráð".
Nýtt skipulag.
Skipulag bæjarins þarf að skoða
út frá nýjum forsendunt. Eg tel
eðlilegast að byrjað verði á því að
byggja svæðið milli Ytri-og Innri-
Njarðvík. Við Helguvík er gott
svæði fyrir iðnað og í Höfnum er
fjölmargir og spennandi möguleikar
til útivistar sem hlúa þarf að. Eitt
dæmi um smámál sem er samt sem
áður mikilvægt.er spurningin um
það, hvort við getum í nýju sveit-
arfélagi verið með fleiri en eina götu
með sama nafni.
Skólamól.
í skóla og leikskólamálum verð-
ur lítil breyting nema í yfirstjóm.
Líklegt er að málefni leikskólans
mani "er flutt undir stjóm skóla-
r. e: lar en þau hafa fallið undir
'tjó n félagsmálaráðs undanfarin ár.
Menningarmál.
Nýja bókarsafnið að Hafnargötu
57 getur þjónað öllum íbúunum sem
upplýsingamiðstöð en áfram verða
skólabókasöfn við skólana. Huga
þarf að því hvernig unnt sé að færa
þjónustuna nær fólkinu t.d. með
bókabíl. Tónlistarskólana þarf að
reka í nálægð við grunnskólana en
leysa má sameiginlega kennslu
þeitra sem lengra eru komnir í námi
s. s.nteð nýbyggingu.
íþróttir.
Eg tel að íþróttahreyfingin ásamt
bæjaryfirvöldum ættu að skoða
♦ Drífa Sigfúsdóttir
íþrótta- og æskulýðsmálin út frá
nýjum forsendum og vinna saman
áætlun um framtíðaruppbyggingu.
Skoða þarf sérstaklega byggingu á
íjölnotahúsi. því margar íþrótta-
greinar búa við ófullnægjandi að-
stöðu.
Aukin þjónusta fyrir
aldraða.
Með sameiningunni bætist við
ný þjónusta fyrir eldri borgara í
Njarðvík og í Höfnum. Sem dæmi
má nefna að dagdvöl og þjón-
ustumiðstöð fyrir aldraða, sem
reknar eru í Keflavík standa nú öll-
um íbúunum til boða. Sama gildir
um aðgang að 28 leiguíbúðum og
39 hlutdeildaríbúðum sem ætlaðar
eru eldri borgurum. Það er
ánægjuleg tilhugsun að hægt verði
nú að brjóta niður múrana milli
sveitarfélaganna og íbúar svæðisins
eigi aðgang að sömu þjónustu.
Almenningssamgöngur.
Hægt er að ná fram góðum ár-
angri í almenningssamgöngum
með því að lagfæra áætlunarferðir
vegna skólaaksturs innan sveitar-
félaganna. Með því tækist að bjóða
íbúunum góða þjónustu án mikils
tilkostnaðar. Eg tel mikilvægt að
strax verði hafinn undirbúningur að
slíku alnmennings-samgöngukerfi.
Atvinnumól.
I atvinnumálum falla niður
hindranir sem voru milli sveil-
arfélaganna á þessum sameiginlega
atvinnusvæði. Baráttan við at-
vinnuleysisdrauginn heldur áfram
en með sameinuðu afli eins stórs
sveitarfélags. Auknar kröfur verða
gerðar til vinnumiðlunar varðandi
skráningu, ráðgjöf og atvinnuleit,
þess vegna aukast umsvif vinnu-
miðlunar og líklegt er að sú þ
usta verði flutt til.
Óska eftir óframhald' .di
stuðningi.
Þeir punktar sem hér . settii á
blað eru eins og h .rjir aðrir
minnispunktar og .igan veginn
tæmandi um þau v^rkefni sem fyrir
liggja. Vinnan við fjölmörg þessara
verkefna er hafir. en önnur bíða síns
tíma. Vandasumari verkefni hafa
bæjarfulltrúar varlc fengist við en
að vinna að sameiningu sveitar-
félaganna. E.: hef gengt starli bæj-
aifulltrúa s.l. átta ár og tekið þátt í
mótun samféivgsins. Eg vil leggja
mitt að mörkum til að sinna þessum
málum og gef kost á mér í 1. sæti í
prófi iöri framsóknarmanna sem
fram fer n.k. laugardag.
Með fyrirfram þökk og von
iwi góða þáltlöku.
Drífa Sigfúsilóttir
Þú getur valið um
4 gerðir samlokubrauða
* ÞRIGGJAKORNA * HEILHVEITIBRAUÐ
.'i'.
'i'
RISTABRAUÐ* SOJABRAUÐ
Munið okkar
glæsilegu
fermingartertur.
Pantið tímanlega.
Nýja
Bakaríið
Hafhargötu 31 ■ Sími: 11695
^ihhhhhhhhhhhhhhhí
HHH^HHHhíIBHIÍ