Víkurfréttir


Víkurfréttir - 03.03.1994, Side 7

Víkurfréttir - 03.03.1994, Side 7
ylffUÆFRÉTTIR 3. MARS 1994 7 • Stór draumur Suðurnesjamanna að rætast: Bygging D-álmu hefst í sumar -Gríðarlegt hagsmunamáV', segir Skúli Skúlason, formaður stjómar Sjúkrahúss Suðumesja Guðmundur Árni Stefáns- son, heilbrigðisráðherra hef- ur gefið grænt Ijós á byggingu D-álmu við Sjúkrahús Suð- urnesja. Að sögn Skúla Skúlasonar, formanns stjórnar sjúkrahússins er verið að Ijúka við samn- ingagerð og kosnaðaráætlun og er áætlað að framkvæmdir hefjist í sumar. Bygginga- kosntaður er áætlaður um 300-350 millj. króna. 30 rúma langlegudeild I D-álmunni verður 30 rúma langlegudeild á efri hæð. A neðri hæð verður endurhæfinga- og sjúkraþjálfunardeild og viðbót við heilsugæsluna. „Þetta er gríð- arlegt hagsmunamál fyrir Suð- urnesin og það er ljóst að sam- eining sveitarfélaganna þriggja spilaði stóra þátt í því að við fengum grænt Ijós á byggingu D- álmunnar", sagði Skúli. Má því segja að nýja sveitarfélagið, sem verður reynslusveitaifélag númer eitt hér á landi sé að fá sína fyrstu viðurkenningu eftir að sameining var samþykkt. En eins og áður hefur komið fram munu reynslu- sveitarfélög fá rýmri fyrirgreiðslu á ýmsum sviðurn og fá að reyna ýmsar nýjungar í rekstri. 30-35 ný störf Sjúkrahús Suðurnesja er sam- kvæmt nýju skipulagi eitt af svæðissjúkrahúsum landsins og megin áhersla verður lögð á smærri aðgerðir og síðan end- urhæfmgarstarf eftir stærri að- gerðir sem gerðar eru í Reykja- vík. Þetta mun gera það að verk- um að það losnar um svæði á Sjúkrahúsi Suðurnesja í eft- irmeðferð og endurhæfingu. Bygging D-álntu mun gefa af sér þegar hún verður tilbúin um 30 til 35 ný störf auk aðkeyptrar þjónustu frá aðilum á svæðinu. Þá erónefnd sú mikla vinna sem mun bjóðast við byggingarfram- kvæmdir. „Það er því Ijóst að þetta mun hafa mikið að segja út frá atvinnulegu sjónarhorni“, sagði Skúli. Ljúki fyrir órslok 1995 I maímánuði er stefnt að opnun neðri hæðar Víðihlfðar í Grinda- vík með fjórtán sjúkrarúmum. Þar verður m.a. hægt að þjóna „als- heimer“-sjúklingum. En hvað gerir Skúli sér vonir um að bygging D-álmu taki lang- an tíma? „Ef allt gengur að óskum má kannski gera sér vonir um að framkvæmdum Ijúki fyrir árslok næsta árs“. ♦ D-álman vcrður staðsctt austan megin við núverandi byggingar. j Nætursendingar föstudags- og laugardagskvöld FRITT MEÐ ÖLLUM PIZZUM % % % um morgunmn - Pantanir aðeins teknar í síma, ekki á staðnum. í Garð og Sandgerði laugardaga og sunnudaga kl. 12 -14 frí heimsending ■\2" -16" °9 38“ p'zzur ___ \ með'otnotum.ost.sveppum, 1 tónS909hvi",aÍ1'1' '(háttmáró) skmKu B,&P%Gs^^PPUm \ 86.S&ÍÍ P.I.Z.Z.U.H.U.S Hringbraut 92 - Símar 11544, 11545 'og teisKÚm tómötui" 57'VmSV,ostto93ktnku- «“'SpS.»^»*svepp“m meo ræK\um. sveppumogt* I <j 93. CMtNIBM-E sveppum, maísogsvf9 meperso9ÓHvum. 97. ‘S^sr %OPtC^PlKA

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.