Víkurfréttir


Víkurfréttir - 03.03.1994, Page 11

Víkurfréttir - 03.03.1994, Page 11
WfflfHFRÉTTIR 3. MARS 1994 11 Undirbúningur á lokstigi Þaö hefur mikiö verið gengið og á háum hælum í Stapa undanfarna daga og vikur. Stiilkurnar ellefu í Fegurðarsamkeppni Suðurnesja 1994 hafa æft göngu og framkomu undir stjórn Ágústu Jónsdóttur en hún og Páll Ketilsson eru umsjónarmenn keppninnar hér á Suðurnesjum. Þá hafa stúlkurnar stundað líkamsrækt af mikiu kappi undanfarnar vikur hjá Önnu Leu og Bróa. Á myndinni að neðan ræða þær Ágústa Jónsdóttir og Birna Magnúsdóttir við stúlkurnar á einni göngu- æfingunni í vikunni, en sú síðarnefnda sá fyrstu árin um göngu og framkomu með Ágústu og hefur einnig verið við stjórnvölinn við undirbúning Fegurðarsamkeppni íslands á Hótel íslandi nokkrum sinnum. Síðustu árin hefur Ágústa hins vegar haft yfirumsjón með vali þátttakenda hér á Suðurnesjum og þjálfað stúlkurnar í framkomu. Sala aðgöngumiða hefst í á morgun Sala aðgöngumiða á Feg- urðarsamkeppni Suðurnesja sem fram fer í veitingahúsinu Stapa laugardaginn 12. mars nk. hefst í Stapa á morgun kl. 16-18. Miðaverð er 4.800 kr. Það er glæsileg dagskrá í boði með veglegum kvöldverði og fordrykk en þetta er níunda feg- urðarsamkeppnin sem haldin er á Suðurnesjum. Fyrsta keppnin sem haldin var af einhverri alvöru var á Glóðinni 1986. Keppnin var haldin í Stapa 1987 og á síðasta ári var keppnin aftur færð í gamla góða Stapann. þar sem margir Suð- urnesjamenn eiga góðar minningar frá liðnum tímum. Það hefur sýnt sig að Stapi er ákaflega hentugt hús fyrir svona stórt kvöld eins og feg- urðarsamkeppnin er og tókst mjög vel til í fyrra. Þá fóru Hljómar á kostum á 30 ára afmæli sínu, sællar minningar. Nú verður hljómsveit kvöldsins Páll Óskar og Millj- ónamæringarnir, sem hefur verið ein alvinsælasta hljómsveit landsins í vetur enda kann Páll Óskar að koma fólki út á dansgólfið og halda því þar! Dagskrá keppninnar verður veg- leg eins og undanfarin ár. Að- alalriðið er auðvitað framkoma stúlknanna. Þær munu koma á óvart með nýtt atriði sem ekki hefur verið reynt áður en síðan munu þær koma fram í glæsilegum baðfatnaði frá Sportbúð Óskars, sem mun eflaust koma mörgum í sumarskap, en kvöldið verður með suður- amerískum þema eða stíl og minna á vorkomuna. Áætlað er að krýning verði um miðnætti. Eins og alltaf býður dómnefnd erfitt verk að velja úr hópi ellefu fagurra yngismeyja, sem vonandi eiga eftir að verða okkur til sóma á Fegurðarsam- keppni Islands. Dagskráin ásamt matseðli er nánar kynnt í auglýsingu annars staðar á síðunni. Eins og fyrr greinir verður að- göngumiðasala í Stapa á morgun. Öll undanfarin ár hefur verið mikil aðsókn og er því vissara að vera snemma á ferðinni og tryggja sér miða í tíma. Nýjar vörur Lœgra verð! PÓSCIDON HRFNflRGÖTU 19 S:12973 0jVR ^ 5 ( urðardrottning Suðurnesja 1994 verður krýnd íVeitingafiúsinu Stapa, laugardaginn 12. mars nk. Sala aðgöngumiða fiefst á morgun, föstudag fil. 16-18 í Stapa. JKc aise ðia Forréttur Cfiile Zapatini Paprika fyllt rækjumauki, ostasósu með nacfio flögum. Aðalréttur Svínafille „vera cruz“ m/mexikönskum firísgrjónum, kartöflum og grænmeti. Eftirréttir Sítrónu Tequila frauð Kaffi og konfekl D A G S K R A MAHSNVHIISTOfAN Þel-Hárhús H úsiðopnaðkl. 18:30. Gestir \á frískandi jordrykk. Kynnir: Garðar K. Milfijálmsson Knjndar verða: Fegurðardrottning Suðurnesja 1994, Ljósmyndafyrirsœta Suðurnesja 1994 Minsælasta stúlkan Yfirmatreiðslumaður: Þorgils Þorgilsson Sviðsstjóri og tónlist: Davíð I ónatansson MIÐAVERÐ: 4.800 kr. L ýsing: Magnús Helgi Kristjánsson Blómaskreytingar: Blómastofa Guðrúnar S kemmtiatriði: Óvænt dansatriði? Dansfólk frá Danssmiðjunni sýnir S-ameríska dansa. Páll Óskar Hjálmtýrsson syngur Danskljómsveit kvöldsins: Páll Óskar Hjálmtýrsson og Milljónamæringarnir leik fyrir dansi til kl. 03. mjmynD sraaRt ftíóhngarði 2 - Sími: 15415 LIKAMSRÆKT SOLHUSID fHUÉ SportbúdÁskars Hofnargötu 23 Simi: 14922 Una Guðlaugsdóttir, danskennari

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.