Víkurfréttir - 31.05.2000, Blaðsíða 16
v-jenny@itn.is • www.artifox.com/jenny.html
Sossa og Reynir
Katrínar opna dymar
Enn scm komið er vita fáir af
ævintýralandinu í Grófinni
í Keflavík. Þar hefur Reynir
Katrínarson aðsetur og hvert sem
litið er blasa við stórkostleg mál-
verk. Myndefnið er öðruvísi - allt
öðruvísi; Ijósfiæði, undarleg tré,
framandi fuglar og blóm. Litirnir
eru bjartir og draumkenndir.
Reynir ætlar að gefa landsmönnum
kost á að heimsækja vinnustofu sína
í sumar, en hún verður opin þriðja
laugardag hvers mánaðar frá ld. 13-
18. Hann bíður alla hjartanlega vel-
komna en það er einnig hægt að
hringja í síma 421-7142 og panta
tíma.
í vetur stundaði Reynir nám í Förð-
unarskóla No Name og er nú að læra
leikhúsforðun. Hægt er að panta lík-
amsförðun hjá honum, sem og
venjulega andlitsfórðun.
Reynir var í Myndlista- og handíða-
skóla Islands á árunum 1976-80 og
hefur haldið fjölda einkasýningum
og tekið þátt í samsýningum, innan-
lands sem utan.
Sossu þekkja orðið flestir, en mál-
verkin hennar eru einstaklega björt
og glaðleg. Hún er nú stödd erlendis
en snýr aftur heim í lok júlí. Vinnu-
stofa hennar verður opin frá ágúst,
þriðja hvern laugardag, en hún er
staðsett í Olíusamlagshúsinu við
Keflavíkurhöfn á 2. hæð. Síminn er
421-6233, ef fólk vill koma á öðrum
tímum.
léttir ffér lífíð
SUMARID 2000 A SUBURNESJUM