Víkurfréttir - 14.12.2000, Blaðsíða 16
iftt - Mftt - Wftt
Ntfj bíifcfrá fcrfiMÍ o«j
Síetíibríivií íiUíiw **9»ww, |||p
keitt 09 ^ott. sgg£
l
prnfið jóUpiz.z-MMíi okk<ir.
ðpiÍ 09.}0-
12. «11« (*«<)«
til JÓI«
Míkið tírval
«f ^ftýAvoniiii. 5g*gi
|fti W
PIZZA LOPEZ
ARSOL
Heiðartúni 2c • Garði
Sími 422 7935
Vinir aðstandenda þeirra sem létust í bílslysinu á brautinni ný-
lega reistu þríkross við slysstaðinn. Nokkrir ættingjanna voru
viðstaddir þegar krossinn var settur upp (mynd að ofanj.Til hliðar
má sjá inn í einn flutningabíl mótmælenda þar sem kveikt var á
friðarkertum og boðið upp á kaffi frá veitingahúsinu Stapa.
Aðgerðirnar við Reykjanesbraut að skila árangri:
Samgönguráðherra jákvæður en
næsta skreflð er borgararfundur
„Það er ljóst að aðgerðirnar
eru að skila árangri, nú strax í
mikilli unifjöiiun í fjölmiðlum
og á Alþingi. Sú umræða er á
þann veg að flýta framkvæmd-
um við tvöföldun. Næsta skref
veröur hins vegar að lialda
borgarafund“, sögðu nokkrir
aðstandendur mótmælana á
Reykjanesbraut í samtati við
VF í gærmorgun.
Sturla Böðvarsson sagði í fyrir-
spurnatíma í fyrradag að hann
myndi beita sér fyrir því að láta
athuga síðla næsta ár hvort hægt
verði að hraða tvöföldun
brautarinnar. „Það er vissulega
vilji minn til þess að skoða þegar
búið er að bjóða út verkið, þenn-
an fyrsta áfanga, hvort megi
hraða verkinu umfram það sem
vegaáætlun gerir ráð fyrir. Um
það er þó ekki hægt að fullyrða á
þessu stigi“, sagði Sturla í svari
við fyrirspurn Hjálmars Arna-
sonar, þingmanns Reykjaness.
Aðgerðirnar á mánudag þegar
brautinni var lokað á tveimur
stöðum frá kl. 14:45 til 18:00
gengu vel. Minni háttar pústrar
urðu þegar flugfarþegar voru
ósáttir við það að komast ekki á
áfangastað en að öðru leyti
gengu mótmælaaðgerðimar eins
og til var ætlast. Lögreglan
aðhafðist ekkert en reyndi þó að
fá aðstandendur til að hætta mót-
mælunum fyrr. Við því var ekki
orðið. Þórir Maronsson, yftrlög-
regluþjónn sagði að ekki yrði
hægt að líða svona mótmæli
aftur og að halda yrði uppi
lögum og reglum sem ekki var
gert í fiessu tilviki. Þórir sagði að
draumur lögreglunnar væri sá að
geta sinnt eftirliti betur á braut-
inni.
16
JÓLABLAB
VÍKURFRÉTTA
2 D □ □