Víkurfréttir - 14.12.2000, Blaðsíða 31
Ung uppfinningakona
gerir samning við Vífilfell:
Hugmynd Lilju Kanenar
vakti eftintekt
Síðastliðið vor tók Heið-
arskóli þátt í nýsköp-
unarkeppni grunnskóla
landsins, þar sem nemendur
hönnuðu og kynntu hinar
ýmsu hugmyndir.
Lilja Karen Steinþórsdóttir, 13
ára nemandi, í Heiðarskóla tók
þátt og var hugmynd hennar
valin til að taka þátt í keppni
bestu hugmynda af öllu land-
inu í Gerðubergi.
Blöðruhaldarinn nefnist hug-
mynd hennar og vakti hann
mikla eftirtekt m.a. í fjölmiðl-
um landsins. Þá vakti blöðru-
haldarinn einnig áhuga Vífil-
fells, sem leituðu til forsvars-
manna keppninnar með hugs-
anlegan samning í huga. Þann
1, desember sl. bauð forstjóri
Vífilfells, Þorsteinn M. Jóns-
son til móttöku í húsakynnum
Víftlfells og skrifaði þar undir
samning við Lilju Karen um
kaup á hugmyndinni og fékk
hún 25.000 krónur greiddar
fyrir leyfið. Víftlfell ætlar að
framleiða blöðruhaldarann
með merki Coca cola fyrir
næstu þjóðhátíð.
Hvernig kviknaði hugmynd-
in Lilja Karen?
„Mér datt þetta í hug 17. júní í
fyrra þegar ég tók eftir því hve
margar blöðmr svifu um loft-
ið,“ segir Lilja Karen. „Krakk-
ar höfðu þá misst blöðmna sína
og sum grétu yfir því. Til að
bæta úr þessum vanda fannst
mér sniðugt að búa til einskon-
ar festingu á hendi bamanna,
blöðmhaldara. Ef litlu bömin
misstu ekki blöðrumar frá sér
þá yrði minna grátið á þjóðhá-
tíð, svo ekki sé minnst á kostn-
að foreldranna þegar blaðra
syífur í burtu.“
Áttir þú von á þessum við-
brögðum frá framleiðanda
Coca cola á íslandi?
„Nei, alls ekki en þetta gladdi
mig mjög mikið,“ segir Lilja
Karen og bætir við „vonandi
kemur hugmynd mín til með
að minnka óþarfa blöðmmissi
á þjóðhátíðardaginn í framtíð-
inni. Vífilfell stefnir að því að
framleiða blöðruhaldarann
með Coca cola merkinu fyrir
næstu þjóðhátíð og auglýsa
þannig vöm sína.“
Hvað ætlar þú svo að gera
við féð?
„Eg legg eitthvað inn á banka-
bók og svo ætla ég að kaupa
mér föt. Þetta er í fyrsta skipti
sem ég tek þátt í svona keppni
og vonandi fæ ég að vera með í
þeirri næstu,“ segir Lilja
Karen.
Hvað viltu segja að lokum
við unga hugvitsmenn?
„Vertu þú sjálfur! Og hikaðu
ekki við að koma hugmyndum
þínum á framfæri!"
Síðasta blað fyrir jól fimmtudaginn 21. desembar
Innrammaðir
speglar
eftir máli
Karton í
mörgum litum.
Myndlist- eftirprentanir
Tilbúnir
rammar.
, Nýtt!
Ikonar
Grískir handunnir íkonar
verð frá kr. 1.990,-
INNRÖMMUN
SUÐURNESJA
Iðavöllum 9, sími 421 3598
Apotheker
SCHELLER
| Náttúrulegar snyrtjyörurá
föstudagstilboði^^H
NATURKOSMETIK fegurð frá náttúrunnar
Kaupauki fylgír þegar keypt eru
2 atríði frá úHjg£ náttúrusnyrtivörum
ti
H E N D I
APOTEK
SUÐURNESJA
HRINGBRAUT 99
Sími:421 6565 Fax: 421 6567
JÓLABLAB VÍKURFRÉTTA
2 0 0 0
31