Víkurfréttir - 14.12.2000, Blaðsíða 34
Stóru-Vogaskóli
Ætlum að
bæta okkur
r r
Skólastjórnendur segja niðurstöðu
Snæbjörn Reynisson,
skólast jóri Stóru-
Vogaskóla sagði að
skólinn hefði komið illa út
úr prófunum að þessu
sinni. Einkunnir í 7. bekk
var meðaltal í íslensku 6,2
og í stærðfræði 5,9. I 4.
bekk var meðaltal í ís-
lensku 5,1 og í stærðfræði
5,4.
Mikil hreyfing á börnum
Snæbjöm telur ýmsa ástæður
vera fyrir þessari slöku út-
komu og nefnir í því sam-
hengi sögu núverandi 7.
bekkjar.
„Það byrjuðu 22 böm í þess-
um bekk haustið 1994. I vet-
ur eru 22 nemendur í bekkn-
um og af þeim eru 10 nem-
endur eftir af þeim hópi sem
hóf nám 1994. Þegar þessir
nemendur tóku samræmd
próf 1997 sem 4. bekkur,
voru 18 nemendur í hópnum,
af þeim eru nú 13 eftir. Það
þýðir að á þeim tíma sem lið-
inn er hafa 5 nemendur farið
úr bekknum en 9 komið inn.
Að öllu samanlögðu má sjá
að mjög miklar breytingar
hafa orðið innan bekkjarins á
þessum rúmlega 6 ámm sem
liðin eru frá því að börnin
hófu skólagöngu sína. Slíkar
aðstæður geta valdið vand-
kvæðum í skólastarfí. A hitt
má einnig benda að ef þeir
nemendur em teknir út sem
tóku samræmd próf í 4. bekk
1997 kemur í ljós að þeir
hækka sig verulega í ís-
lensku, um einn heilan, en
standa í stað í stærðfræði",
segir Snæbjöm.
Fjöldi nýbúa
Varðandi útkomuna í 4. bekk
segir Snæbjöm að hún veki
upp aðrar vangaveltur, þ.e.
„samkeppnisstöðu“ þeirra
skóla sem hafa hátt hlutfall
nýbúa og/eða nemenda með
annað móðurmál en íslensku.
„Stóru-Vogaskóli er með
óvenju hátt hlutfall nýbúa,
tvítyngdra nemenda og nem-
enda sem eru nýkomnir úr
öðru málumhverfi. I einum
bekk fer hlutfall slíkra nem-
enda upp í tæpan helming.
Þannig aðstæður gera kennsl-
una bæði flóknari og þar með
vandasamari, auk þess sem
ekki er von til að slíkur hópur
nái sambærilegum meðal-
einkunnum og þeir hópar
sem ekki hafa við sömu
hindranir að glíma.“
Ætlum að bæta okkur
Snæbjöm leggur áherslu á að
niðurstöður samræmdra
prófa í 4. og 7. bekk í haust
kalli á viðbrögð í þá átt að
reyna að bæta árangurinn.
„Það má undirbúa börnin
betur undir að taka slík próf
og virkja foreldra betur varð-
andi nám barnanna, enda
þykir sannað að þeir nem-
endur sem eiga trausta, vel
upplýsta, áhugasama og já-
kvæða foreldra, standa sig
hvað best.“
Þess má geta að hlutfall rétt-
indakennara er um 80% í
skólanum. Miðað við skóla á
Suðurnesjum er staðan sé
sæmileg, en miðað við höf-
uðborgarsvæðið er hún óvið-
unandi að sögn Snæbjöms.
Grunnskólar á Suður-
nesjum koma ekki
nógu vel út, sam-
kvæmt niðurstöðum sam-
ræmdra prófa í 4. og 7. bekk.
Arangur skólanna hefur þó
batnað lítillega síðan í fyrra
enda hafa kennarar og skóla-
stjórnendur lagt sig alla frani
við að ná settu marki. Ýmsar
ástæður liggja að baki þess-
um lágu meðaleinkunnum og
hér á eftir verður farið nánar
ofan í saumana á málinu.
Meðaleinkunn hjá 4. bekk á
landinu öllu var 6,4 í stærð-
fræði og 6,1 í íslensku. Meðal-
einkunn á Suðurnesjum var
hins vegar 6,0 í stærðfræði og
5,5 í íslensku. Athygli vekur að
einkunn í íslensku er töluvert
langt undir landsmeðaltali.
Einkunnir í 7. bekk eru nær
landsmeðaltali. Meðaleinkunn í
stærðfræði í grunnskólum á
Suðumesjum er 6,5 og 6,4 í ís-
lensku en meðaleinkunn á
Gerðaskóli
Viljum gera betur og
leitum leiða til þess
Gerðaskóli er nálægt
Suðurnesjameðaltali,
en aðeins yfir því í
báðum greinum í 7. bekk.
Skólinn er hálfum undir
landsmeðaltali í báðunt
greinum í 4. bekk og 0,3 und-
ir í íslensku í 7. bekk og á
landsmeðaltali í stærðfræði í
7.bekk.
Einkunnir í 4. bekk em sem hér
segir: íslenska 5,5 og stærð-
fræði 5,9. Meðaltal í 7. bekk er
6,5 í íslensku og 6,7 í stærð-
fræði.
Veldur okkur áhyggjum
Að sögn Einars V. Arasonar,
skólastjóra, velur útkoman á
Suðurnesja í heild áhyggjum,
sem og oft áður. „Þegar horft er
á kennaraflotann, hæstu
einkunnir í skólunum og vel-
vilja yfirvalda í þessum sveitar-
félögum, þá er maður ósáttur
við heildarútkomuna", segir
Einar. „Kennarar em að fá fína
vinnu og topp einkunnir út úr
sumum nemendum, en það em
bara of margir nemendur að fá
lágar einkunnir. Við munum
skoða okkar niðurstöður og
bera þær saman við fyrri niður-
stöður til að sjá eitthvert mynst-
ur sem gæti geftð vísbendingar
um hvernig hægt sé að bæta
kennsluna enn meira“, segir
Einar.
Gott kennaralið
Einar leggur áherslu á að í 4.
og 7. bekkjum sé einvalalið
réttindakennara sem leggja hart
að sér.
„Það má segja að vöntun sé á
menntuðum kennurum þó það
snerti ekki þessa bekki og fög
nákvæmlega, t.d. vantar mynd-
* vVÍ
mennta- og tónmenntakenn-
ara“, segir Einar þegar hann er
spurður út í stöðuna í kennara-
málum. Hann bendir einnig á,
þegar verið er að bera saman
skóla og skólasvæði, að mikil-
vægt sé að athuga vissa hluti,
t.d. hlutfall nemenda sem eru
undanþegnir prófum, fjölda ný-
búa í bekkjum, fjölda fatlaðra
og sérkennslunemenda.
„I heildina erum við nokkuð
sátt þó við viljum gera betur og
munum leita leiða til þess. Þá
þarf að koma til árvekni, vilji
og samstarf kennara og for-
eldra. Viðhorfs almennings á
menntun og skólagöngu skipir
einnig mjög miklu rnáli. Skóla-
starf er meira en pössun á nem-
endum, það skiptir máli að læra
og að standa sig í skólanum",
segir Einar að lokum.