Víkurfréttir - 14.12.2000, Blaðsíða 35
MDRA PROFA:
Njarðvíkurskóli
rnar ekki vera lokadóm
landinu er 6,7 í stærðfræði og
6,8 í íslensku.
Þess ber að geta að uppgefnar
einkunnir eru raðeinkunnir sem
eru ekki samanburðarhæfar á
milli greina. Raðeinkunn segir
til um röð nemenda miðað við
aðra sem tóku prófið, þ.e.a.s.
hve hátt hlutfall nemenda er
með ákveðna einkunn og lægri.
Sem dæmi má nefna að nem-
andi með raðeinkunn 78 stend-
ur sig jafnvel eða betur en 78%
nemenda á landinu öllu.
Þeir sem vilja kynna sér prófin
betur geta skoðað heimasíðu
Rannsóknarstofnunar uppeldis-
og menntamála, www.rum.is
Heiðarskóli
íslenskukennsla
styrkt af Þróunar-
sjóði grunnskóla
Að sögn Árnýjar Páls-
dóttur, skólastjóra
Heiðarskóla er mik-
ilvægt að athuga vel hvaða
námsþættir ganga vel og
hvar er hægt að gera betur,
þegar niðurstöður sam-
ræmdra prófa berast skól-
anum.
Heiðarskóli fékk styrk úr Þró-
unarsjóði grunnskóla fyrir
þetta skólaár til þess að efla ís-
lensku kennsluna í skólanum
og Ámý segist binda vonir við
að það geti skilað nemendum
betri árangri á samræmdum
prófum í framtíðinni.
Niðurstöður samræmdra prófa
í íslenska í 7. bekk var 6,7 og
meðaltal í stærðfræði var 6,8,
sem er nánast hið sama og
landsmeðaltal. Meðaltal í ís-
lenska í 4. bekk var 5,8 og í
stærðfræði var meðaltal 6,3.
„Markmiðið er að sjálfsögðu
að bæta árangur skólans", seg-
ir Ámý. „Til þess að bæta ár-
angur þurfa allir aðilar skóla-
Traust bakland
nema er lykilatriði
Niðurstöður í Njarð-
víkurskóla eru ekki
enn alveg marktækar
þar sem í ljós hefur komið að
endurskoða þarf útkomu
hóps barna í 7. bekk. Um er
að ræða ritunarþátt í ís-
lensku. T.d. þarf að endur-
skoða prófið hjá 19 nemend-
um í Njarðvíkurskóla. End-
anleg niðurstaða mun því
ekki liggja fyrir fyrr en eftir
tvær vikur.
Meðaltal í 4. bekk í íslensku
var 5,8 og í stærðfræði 6,05.
Meðaltal í 7.bekk í íslensku var
6,5 og í stærðfræði 6,8.
Hvað er goður skóli?
Gylfi Guðmundsson, skóla-
stjóri segist alltaf vera svolítið
hræddur við að ræða um út-
komu á samræmdum prófum
vegna þess að hann óttast að
menn gleymi fyrir vikið að ár-
angur í þeim segir ekki svo
rnikið um hvort skóli er góður
eða slæmur.
„Við eigum einnig að tala um
árangur í uppeldi og árangur
sem sýnir að nemanda líður vel
í skóla“, segir Gylfi, „og að
skólinn kunni að takast á við
einelti, kunni að takast á við
erfiðar aðstæður sem upp koma
og geri það. Þetta eru allt atriði
sem skipta afar miklu máli
þegar við tölum um góðan
skóla. Það kemur svo ótal
margt annað til greina en
einkunnir á samræmdum próf-
um.
Máli sínu til stuðnings bendir
Gylfi á bókina „Nordiska skol-
ar i utveckling” þar sem dregn-
ir eru saman 9 mikilvægir
samfélagsins að taka höndum
saman; nemendur, foreldrar
og kennarar. Það er marg
rannsakað að áhugi foreldra á
námi bama sinna hefur afger-
andi áhrif á velgengni þeirra í
skóla. Við í Heiðarskóla höf-
um starfandi við skólann öfl-
ugt foreldrafélag sem styður
vel við bakið á skólastarfmu.“
punktar um hvernig góður
skóli á að vera. Þar segir í upp-
talningunni um góðan skóla:
1. Markmið skólans eru skýr
og miklar væntingar em gerðar
til nemenda.
2. Skólinn einkennist af virk-
um áhuga á því að sýna árang-
ur.
3. Foreldrar taka þátt í skólalíf-
inu og styðja starf skólans.
4. Skólinn leggur áherslu á að
þróa námsefni og kennsluað-
ferðir.
5. Skólinn leggur áherslu á
vinnufrið og góðan starfsanda.
6. Stjómun beinist að aðalvið-
fangsefni skólans - að bamið
fái að þroskast.
7. Stjómendur og starfslið allt
hafi jákvæða afstöðu til skóla-
þróunar.
8. Fagleg endurmenntun fyrir
kennara er fastur liður í skóla-
starfinu.
9. Skólinn fær stuðning frá
umhverfmu.
Velvilji bæjartjórnenda
Að mati Gylfa uppfylla skólar í
Reykjanesbæ ágætlega þessi
skiíyrði en hann segir að bæjar-
stjómin hafi staðið sig vel og
geti verið stolt af sínu verki.
„Myndarlegur nýr skóli er ris-
inn í Heiðarbyggð og góðar
endurbætur og viðbyggingar
við hina skólana; skólaeldhús,
matur fyrir nemendur og allir
skólamir em nú einsetnir. Það
er því óhætt að óska bæjar-
stjóm til hamingju með hversu
vel hefur gengið að koma öllu
heim og saman“, segir Gylfi og
bætir við að sveitarfélagið sé
með þessum aðgerðum að
tryggja að nemendum og
starfsfólki skólanna bestu að-
stæður sem til em, svo að ár-
angur náist í skólastarfi. Gylfi
er þess fullviss að einsetning
skólanna muni bæta skólastarf
og þá um leið námsárangur er
fram líða stundir.
Starfsfólk leggur
sig 100% fram
„Það er einnig ljóst að kennarar
og skólastjómendur hafa fullan
hug á að gera vel, vinna með
jjeim hætti að aðstæður allar og
vinna með nemendum skili sér
á réttan hátt. Trúlega má alltaf
bæta skólastarf og finna leiðir
til að ná betri árangri og starfs-
fólk skólanna er sífellt að leita
leiða til þess. Eg tel að skóla-
stjómendur og starfsfólk þurfi
að einbeita kröftum sínum að
því að skapa gott og jákvætt
námsumhverfi til að tryggja að
bömunum líði vel í skólanum
og hafi jákvæðar minningar
þaðan er frá líður. Þetta er
grundvallaratriði. Skóli á auk
þess að vera lifandi stofnun
sem leggur rækt við að gera
nemendur sjálfstæða og kenna
þeim að virða skoðanir og
sjálfstæði annarra”, segir Gylfi.
Traust bakland
er lykilatriði
Baklandi, þ.e. foreldrar og for-
ráðamenn nemenda, eru ekki
síður mikilvæg, að mati Gylfa.
„Menntun þeirra og viðítorf
skipta máli en þó alveg sérstak-
lega áhugi Jreirra og vilji til að
hjálpa bömum sínum og fylgj-
ast með starfi þeirra. Sá bak-
grunnur skiptir sköpum, hvað
varðar námsárangur á sam-
ræmdum prófum og árangur
yfirleitt, utan skóla sem innan.
Foreldri þarf að vera vakandi
hverja stund yfir velferð bams
og sýna starfi þess og vinnu
áhuga, alla daga. Þetta er lykil-
atriði“, segir Gylfi og nefnir í
beinu framhaldi agalaust upp-
eldi sem stendur á ótraustum
grunni þar sem böm og ung-
lingar verða öryggislausir og
geta því ekki tileinkað sér
þekkingu og fæmi til að alvöru
nám eigi sér stað.
„Frá fyrsta skóladegi í 6 ára
bekk þarf foreldri að setjast
með baminu sínu og veita því
aðstoð. Lítil böm ráða ekki við
það ein. Þetta þarf að verða
sjálfsagður þáttur í uppeldi
barns, helst allan grunnskól-
ann. Með þeim hætti tekst að
aga barn til þess að það telji
það sjálfsagðan hlut að sinna
náminu eins og hverri annarri
vinnu því nám er fyrst og
fremst vinna. Ég vil því enn
leggja áherslu á þá skoðun
mína að foreldrar em baklandið
sem er svo mikilvægt svo ár-
angur náist.“
Framhald á næstu síðu.
JÚLABLAÐ
VÍKURFRÉTTA
2 D 0 □
35