Víkurfréttir - 21.11.2002, Blaðsíða 4
Lestu Víkurfréttir á Netinu daglega á slóðinni www.vf.is
ÚTGÁFAN 1 __________FYRST & FREMST
Málefni heilsugæslunnar á Suðurnesjum:
Vel sóttur borgarafundur
Útgefandi:
Víkurfréttir ehf. kt. 710183-0319,
Grundarvegi 23, 260 Njarðvík
Simi 421 0000 (15 línur)
Fax 421 0020
Ritstjóri og ábm.:
Páll Ketilsson,
simi 421 0007, pket@vf.is
Fréttastjóri:
Hilmar Bragi Bárðarson,
simi 421 0002, hbb@vf.is
Sölu- og markaðsstjóri:
Jónas Franz Sigurjónsson,
simi 421 0001, franz@vf.is
Auglýsingar:
Kristín Njálsdóttir,
kristin@vf.is,
Jófriður Leifsdóttir,
jofridur@vf.is
Blaðamenn:
Jóhannes Kr. Kristjánsson
simi 421 0004 johannes@vf.is
Sævar Sævarsson,
sími 421 0003 saevar@vf.is
Hönnunarstjóri:
Kotbrún Pétursdóttir,
kolla@vf.is
Hönnun/umbrot:
Kolbrún Pétursdóttir,
kolta@vf.is,
Stefan Swates,
stefan@vf.is
Skrifstofa:
Stefania Jónsdóttir,
Atdis Jónsdóttir
Útlit, umbrot og prentvistun:
Víkurfréttir ehf.
Prentvinnsla:
Prentsmiðjan Oddi hf.
Dreifing:
ístandspóstur
Dagteg stafræn útgáfa:
www.vf.is og vikurfrettir.is
Aðrir fjölmiðlar
Víkurfrétta ehf. eru:
VF - Vikutega í Firðinum
Tímarit Vikurfrétta,
The White Fatcon og
Kapatsjónvarp Vikurfrétta.
MUNDI
í framboð!
Rödd Suðurnesja
í 1. sæti...!
Afjölmennum borgara-
fundi á veitingastaðnum
Ránni í Reykjanesbæ,
sem boðað var til vegna lækna-
dcilunnar á Suðurnesjum,
sköpuöust harðar umræður
um dcilu hcilsugæslulækna við
heilbrigðisráðuneytið. í upp-
hafi fundar var Ijóst að þarna
mættust stálin stinn, en Gunn-
laugur Sigurjónsson fyrrver-
andi hcilsugæslulæknir á Suð-
urnesjum sagði að heilbrigðis-
ráðuneytið hefði ekki gert það
sem í þeirra valdi stæði til að
ieysa deiluna. Heilbrigðisráð-
herra var ekki sammáia og
sagði að hcilsugæslulæknar
hefóu sett fram kröfur og ekki
hvikað frá þeim. Ráðherra
sagðist kunna illa við það að
láta stilla sér upp við vegg og
hann ítrekaði nauðsyn þess að
hcilsugæslulæknar myndu setj-
ast niður og koma til móts við
ráðuneytið.
Arni Sigfússon bæjarstjóri
Reykjanesbæjar ávarpaði fund-
inn og sagði brýnt að deiluaðilar
myndu setjast að samningaborði
og leysa deiluna því staðan væri
mjög alvarleg. A fúndinum tóku
margir til máls og lögðu spum-
ingar fyrir ráðherra og fulltrúa
heilsugæslulækna. Meðan annars
spurði Kristján Pálsson alþingis-
maður, ráðherra um það hvenær
hann myndi setjast að samninga-
borði með læknum. Ráðherra
svaraði því til að hann myndi
strax að loknum fúndi setjast nið-
ur meó fulltrúa lækna og for-
manni félags heilsugæslulækna
til að ræða næstu skref. Hjálmar
Amason, ásamt Ama Sigfiíssyni
og Skúla Thoroddsen bám upp á-
lyktun sem samþykkt var á fúnd-
inum.
Meira um læknadeiluna á
síðum 14,15,18 og 19 í
Víkurfréttum í dag.
Kallinn á kassanum
NÚ ER KALLINN á kassanum glaður. Borgara-
fúndur hefúr verið haldinn og ber að þakka Hjálm-
ari Árnasyni fyrir að hafa tekið áskoruninni frá
Kallinum. Hjálmar minntist á
það í ræðu sinni á fúndinum aö
hann vonaði að Kallinn á kassan-
um væri á fúndinum og að hann
yrði ánægður með hann. Svo
sannarlega er hann ánægður með
fundinn og svo virðist sem
læknadeilan sé komin á nýtt stig.
Það er allavega bytjunin.
HELGA Valdimarsdóttir er hinsvegar hetja Suður-
nesjamanna í þessari deilu. Hún er sjúklingur og ör-
yrki og af staðfestu kom hún sér um tíma fyrir á
biðstofu heilsugæslunnar þar sem hún krafðist
lausnar á deilunni. Hún er svo sannarlega hetja og
hana ber að virða fyrir sinn þátt í að vekja athygli á
deilunni. Það er til skammar að hún hafi ekki fengið
að flytja ávarp á borgarafúndinum. Hún hefúr lýst
þvi yfir að hún hafi beðið Hjálmar um leyfi til að
ávarpa fúndinn, en ekki fengið. Var þetta ekki borg-
arafundur? Hvemig í ósköpunum getur hann neitað
henni, borgaranum, um að tala? Við hverskonar
lýðræði búum við? Fundarstjórinn (þessi ungi bros-
andi) sagði i yfirlýsingu að hún hefði átt þess kost
að rétta upp hendi. Jafhffamt lýsti hann því yftr að
þeir sem sátu ffemst hafi haft meiri möguleika en
aðrir til að tala. Bull og vitleysa. í fyrsta lagi bað
Helga um orðið í upphafí fundar - það er kurteisi.
Henni var neitað - það er hroki! í öðm lagi reyndi
hún að rétta upp hendi - en sást ekki. Og í þriðja
lagi vom möguleikar hennar minni af því hún sat
aftarlega - góð rök það! Borgarafundur er fyrir
borgarana. Það liggur í augum uppi að rödd sjúk-
linganna hefði átt að heyrast á fúndinum - þeir em
jú þolendur þessarar deilu, ásamt íbúum Suður-
nesja.
KJÖRNEFND Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjör-
dæmi er vandasamt verk fyrir höndum. Nú er
nefhdin að vinna að uppstillingu fyrir listann í kjör-
dæminu fyrir næstu kosningar. Háværar raddir em
uppi um að hið 5000 manna samfélag Vestmanna-
eyinga vilji sjá Guðjón Hjörleifsson í fyrsta sæti
listans, eftir að fúlltrúi þeirra var dæmdur í tugthús.
Einnig em uppi sögur um það að Vilhjálmur Egils-
son sé inn í myndinni sem þingmaður kjördæmis-
ins. Það er alveg ljóst að Suðumesjamenn sætta sig
ekki við neitt annað en að Suðumesjamaður sitji í
fyrsta sæti listans. 40% kjósenda kjördæmisins búa
á Suðumesjum og það er einfaldlega rökrétt, í lýð-
ræðislegu tilliti að efsti maður listans komi af Suð-
umesjum. Það er líka krafa og það verður einfald-
lega allt vitlaust á Suðumesjum ef svo verður ekki.
KALLINN á kassanum hefúr heyrt því fleygt að
hart hafi verið sótt að Áma Sigfússyni bæjarstjóra
um að gefa kost á sér á lista Sjálfstæðismanna í
Suðurkjördæmi. I guðanna bænum Ámi, ekki einu
sinni hugsa um það. Þú ert góður bæjarstjóri og þér
er treyst til góðra verka á þeim vettvangi. En að
fjórum ámm liðnum viljum við sjá þig rúlla inn á
þing, sem þingmaður og ráðherraefúi Suðumesja-
manna. Þar treystum við þér til góðra verka.
IBÚAR Suðumesja em hvattir til að senda Kallin-
um á kassanum skeyti um áhugaverð málefni sem
Kallinn getur tekið fyrir í pistlum sínum. Engu og
engum verður hlíft, munið þið það. Sendið Kallin-
um línu á netfangið vf@vf.is eða sendið bréf merkt:
Kallinn á kassanum, Víkurfféttir, Gmndarvegi 23,
260 Reykjanesbær.
Kveðja, Kallinn
Þær skoðanir sem fram koma hjá Kallinum á kassanum
þurfa ekki að endurspegla skoðanir ritstjómar Víkurfrétta.
Siv tekur
skóflustungu
að sorpeyð-
ingarstöð
Siv Friðleifsdóttir, um-
hverfisráðherra mun
taka fyrstu skóflu-
stunguna vegna byggingar
nýrrar sorpmóttöku og
sorpbrennsiustöðvar
fímmtudaginn 21. nóvem-
ber nk., en sorpbrennslu-
stöðin verður staðsett í
Helguvík. Á dögunum sam-
þykkti Sorpeyðingarstöð
Suðurnesja að taka tiiboði
Vélsmiðjunnar Héðins í
byggingu nýrrar móttöku-
og sorpbrennslustöðvar í
Helguvík.Alls bárust
fímmtán tilboð i verkið, en
tilboð Héðins hljóðaði upp
tæpar 740 milljónir ís-
ienskra króna.
Brennslugeta nýju stöðvar-
innar verður tæp 12 þúsund
tonn á ári en búnaður stöðvar-
innar mun fúllnægja öllum
þeim heilbrigðiskröfúm sem
settar hafa verið ásamt því að
fúllnægja væntanlegum kröf-
um sem Evrópusambandið
mun setja. Talið er að ffam-
kvæmd stöðvarinnar verði
lokið fyrir árslok 2003.
D ItölEGAR
fdinmikiKiwu
VfWVK.Vf.fe
Hádegisverðartilboð
990 kr.
3ja rétta kvöldverður
1.950 kr.
I einu elsta húsi
bæjarins
Fjörugarðurinn
Víkingaveislur
alla daga og dansleikir
allar helgar
Um helgina spilar
hljómsveitin
Léttir Sprettir
Munið jólahlaðborðið
4