Víkurfréttir - 21.11.2002, Page 13
I
1
Það styttist til jóla og undirbúningurinn gengur í
garð. Víkurfréttir verða að vanda með veglega
útgáfu fyrir jólin. Við hefjum leikinn með glæsilegri
Jólagjafahandbók Víkurfrétta 2002 en hún kemur
út föstudaginn 29. nóvember. Þar verður
kynntur Jólaleikur Víkurfrétta og Samhæfni þar
sem lesendur geta unnið glæsilega vinninga frá
versluninni Samhæfni við Hringbraut í Keflavík.
I handbókinni verður einnig auglýstur opnunar-
tími verslana, Jóla- og menningardagskrá í
Reykjanesbæ og síðast en ekki síst Jólalukkan
2002 - skafmiðahappdrætti Víkurfrétta og versl-
ana á Suðurnesjum.
Fyrir það eitt að gera jólainnkaup í verslunum
á Suðurnesjum munu mörg hundruð viðskipta-
vinir fá vinning sem þeir skafa til sín! Meðal
vinninga eru 16 ferdavinningar með Flug-
leiðum og um eittþúsund aðrir vinningar
(já, þetta er rétt, eitt þúsund vinningar). Þetta
er sannkallaður Jólabónus hjá verslunum og
Víkurfréttum!
í Jólagjafahandbókinni verður einnig jólaefni
og fleira skemmtilegt.
Þeir auglýsendur sem hafa ekki tryggt sér pláss í Jólagjafahandbókinni og
vilja bjóða upp á Jólalukku VF og verslana ættu að hafa samband við auglýsinga-
deild Víkurfrétta í síma 421 0000.
í desember verða veglegar Víkurfréttir sneisafullar af skemmtilegu
efni 5. 12. (Jólablað I) og 19. desember (Jólablað II).