Víkurfréttir - 21.11.2002, Page 29
47. tölublað • fimmtudagurinn 21. nóvember 2002
LESENDAL
Pennans Bókabúðar Keflavíkur
og Víkurfrétta
Þú getur unnið bókina
Suðurnesjamenn!
Svaraðu einni laufléttri spurningu.
Skrifaðu svarið á svarseðillinn
og skilaðu honum í Pennann
Bókabúð Keflavíkur.
IKiJR
*ow®«*Mjœw
0reg/ð I
Þnðjudö,
,esandi v
Sl‘ðurnes
Guðmundí
vinningsha
Sérstakiir lokaúrdráttur
17.desember.
Vinningar ísienska Orðabókin og
Suðumesjamenn
Heildarvermæti kr. 20.000.-
DregiðveiðurúrÖLLUM innsendummiðum.
Bókabtíð KefburiJour
csms»-
JÓLIN KOMA Á SUÐURNESJUM
NY BÓK UM
SUÐURNESJAFÓLK
r
t er komin bókin „Suð-
urnesjamenn“ eftir
Gylfa Guömundsson
skólastjóra í Njarðvíkur-
skóla. Bókaútgáfan Hólar
gefur bókina út, en í henni
eru samtöl við þekkta Suður-
nesjamenn. Sérstakt kynn-
ingarkvöld vegna útgáfu
bókarinnar var haldið í gær,
13. nóvember, á bókasafni
Reykjanesbæjar. Margt var
um manninn á þessum kynn-
ingarfundi og greinilegt að
fólkið skemmti sér vel.
Þeir Suðurnesjamenn sem
koma fram í bókinni eru; Sig-
ríður Jóhannesdóttir alþingis-
maður, Rúnar Júlíusson tónlist-
armaður, Reynir Sveinsson
Sandgerðingur, Hjálmar Ama-
son alþingismaður, Dagbjartur
Einarsson útgerðarmaður úr
Grindavik, Ellert Eiríksson
fyrrverandi bæjarstjóri og Jay
D. Lane sigmaður hjá Vamar-
liðinu á Keflavíkurflugvelli.
Kynningin í gærkveldi var með
mjög léttu sniði. Gyifi talaði
örlítið um hvemig hefði verið
að vinna að bókinni og las m.a.
nokkra stutta kafla upp úr bók-
inni fyrir gesti. Bókin er án efa
mjög skemmtileg enda var
ekki betur séð en gestirnir
skemmtu sér konunglega.
Milli þess er Gylfi spjallaði við
gesti spilaði Rúnar Júlíusson
lög af nýútkominni plötu sinni
„Það þarf fólk eins og þig“ en
þar er á ferð hörkuplata sem
verður án efa í jólapakka mar-
graiár.
Að lokinni kynningunni var
gestum boðið upp á kaffi og
konfekt. Þeir sem mættu á
fúndinn gátu einnig keypt bók-
ina og geisladiskinn á 30% af-
siætti ásamt því að fá áritað
nafh höfunda og vom þeir ófáir
sem nýttu sér það.
Iframhaldi af vel heppnuöu
átaki í fyrra höfum við hjá
Hótel Keflavík ákveðið að
styrkja verslun og þjónustu í
Reykjanesbæ
með að bjóða
allt að 500
gistiherbergi
í desember
eins og í
fyrra. Hug-
myndin geng-
ur út að þaö
að þeir gestir
sem koma frá
öðru bæjarfélagi í verslunar-
arferð til Reykjanesbæjar í
desembermánuði geta notað
greiðslukvittanir eða reikn-
inga fyrir viðskiptum á allri
þjónustu eða verslun í
Reykjanesbæ sem greiðslu
fyrir glæsi gistingu - sem sagt
gist án aukagjalds í boði okkar.
Ef við horfúm til baka um eitt ár
má sjá mjög jákvæða þróun í
verslun og þjónustu í Reykjanes-
bæ. I fyrra voru tóm verslunar-
rými við Hafnargötuna vel á ann-
an tug. í dag má telja þau á
fingrum annarrar handar sem er
vel þó enn þurfi stórátak til
uppbyggingar Hafnargötunar.
Mitt mat er að við eigum að
styrkja og fegra miðbæinn í
kringum Hafnargötuna á næstu
árum áður en við skipuleggjum
ný framtíðarsvæði sem tæki
áraraðir að fúllgera. Gerum vel í
því sem við höfúm og höldum
síðan áfram.
Reykjanesbær stendur framar-
lega á mörgum sviðum s.s. í
iþróttum, tónlist, skólamálum
svo eitthvað sé nefnt og höfúm
við alla burði til að vera til fyrir-
myndar í verslun og þjónustu fyr-
irbæjarbúaoggesti. Aukningá
verslun í Reykjanesbæ verður
ekki til eingöngu með vilja neyt-
anda. Við sem neytendur, versl-
unareigendur og þæjarfélag verð-
um að standa saman. Við eigum
að auglýsa bæinn okkar á já-
kvæðan hátt og sú auglýsing þarf
ekki alltaf að kosta mikla fjár-
muni. Með vilja og áræðni má ná
mjög langt. Við verðum að vekja
okkur sjálf til umhugsunar um
hvað gott er að versla heima.
I ár munum við í samvinnu við
skaffniðahappadrætti Víkurfrétta
og nokkura verslana auglýsa2-
3 heilsíður í Motgunblaðinu og
þannig senda skýr skilaboð til
landsmanna um gott samstarf og
jákvæða þróun verslunar í
Reykjanesbæ undir fyrirsögninni
„Verslunarferð í Reykjanesbæ".
Við vonum að þessi hugmynd og
framlag komi jólaverslun í bæn-
um okkar vel og okkur öllum i
gottjólaskap.
Kær kveðja,
Steinþór Jónsson, hótelstjóri á
Hótel Keflavík
ATVINNA
Aðstoö óskast á tannlæknastofuna
í Grindavík sem fyrst. Vinnutími kl. 13-17.
Um er að ræða vinnu næsta ár til að byrja
með, möguleiki áframlengingu.
Skriflegar umsóknir berist til
Tannlæknastofunnar Víkurbraut 62,
Grindavík, fyrir 1. desember.
""spurHgz
Hver er höfundur bókarinnar
Suðurnesjamenn?
Nafn:
Símanúmer:
29