Víkurfréttir

Tölublað

Víkurfréttir - 19.12.2002, Blaðsíða 36

Víkurfréttir - 19.12.2002, Blaðsíða 36
Lestu Víkurfréttir á Netinu daglega á slóðinni www.vt.is Helga Margrét Guðmundsdóttir tók saman Skemmtilegur skóli í holtinu argir íbúar á Suður- nesjum sem nú eru komnir til vits og ára muna eftir veru sinni í Gagn- fræöaskóla Keflavíkur sem nú hcitir Holtaskóli í Keykjancs- bæ. Skólinn var um árabil ung- lingaskóli og eini gagnfræða- skólinn sunnan Hafnarfjarðar. Ungmcnni víðs vegar af skag- anum komu þar saman og tóku ýmist gagnfræðapróf eöa landspróf. í dag er skólinn heilsdagsskóli fyrir börn frá 6 ára -16 ára. Þar er Siguröur E. Þorkclsson skólastjóri, Jónína Guðmundsdóttir aðstoðar- skólastjóri og formaöur for- eldrafélagsins er Albert Eð- valdsson. Þcssi þrcnning hefur sérstöðu þar sem bæði kynin koma við sögu yfirstjórnar skólans og faðir er formaður forcldrafélagsins. Góð sam- vinna er milii heimila og skól- ans og hefur skólinn á að skipa cinstaklega samhentum hópi foreldra bæði í foreldraráði og stjórn foreidrafélagsins. Segja má að í foreldraráði Holta- skóla séu frumheijar. ÁsdísÝr Jakobsdóttir, Brynja Sigfiisdóttir og Karólína Júlíusdóttir hafa lagt grunninn að góðu starfi ráðsins og sett samstarfsreglur skóla- stjómar og ráðsins. Störf þeirra hafa verið til fyrirmyndar fyrir önnur foreldraráð á svæöinu. Á heimasíðu skólans er greint frá hlutverki foreldraráðs. Góð heimasíða skólans. Foreldrar hafa í auknurn mæli til- einkað sér tölvutæknina og leita gjaman að heimasíðum skóla sem böm þeirra stunda nám í. Þannig hefur skapast nýr vett- vangur fyrir samstarf heimila og skóla. Vilji maður kynna sér skólastarf í Holtaskóla liggur beinast við að fletta upp á heima- síðunni holtaskoli.is þar sem hægt er að fínna ýmsar krækjur með upplýsingum um starf skól- ans. Þar er m.a. hægt að finna allar upplýsingar um foreldra- starfið í skólanum, ágrip af sögu Holtaskóla og leiðarljós skóians. Holtaskóli leggur áherslu á: Mannúð, samvinnu og gagn- kvæma virðingu. Að skólastarfið einkennist af tillitssemi, metnaði og skyldurækni. Að skólinn mæti ólíkum þörfum nemenda sinna á faglegan og ábyrgan hátt. Að öguð vinnubrögð kennara og nemenda skili árangursriku skólastaifi. Að námsmarkmið séu skýr og öllum ljóst hvaða kröfur skólinn gerir. Umsjónarmaður heimasíðunnar er Guðrún Björk Jóhannesdóttir sem er umsjónarkennari ó.bekkj- ar B og hefúr starfað við Holta- skóla frá árinu 1982. Mötuneyti Holtaskóla er rómað. Þar starfa þær Ástriður, Guð- rún,Salvör og Kristín. Þær segja að nemendur séu mjög duglegir að borða heitan mat í hádeginu og soðin ýsa, kjötsúpa, gijóna- grautur og slátur séu vinsælir réttir. Þær leggja sig fram um að kynnast nemendunt og koma til móts við þarfir þeirra hvort held- ur er að seðja maga eða gefa faðmlag. Matseðillinn er birtur á heimasíðu skólans vikulega og geta foreldrar fylgst með þar. Hér er sýnishom af matseðlinum í byijun desember. Mánudagur: Kreolabollur, hrisgijón Þriðjudagur: Kjötfarsbollur, brún sósa og kart- öflumús Miðvikudagur: Soðin ýsa, kartöflur og rúgbrauð Fimmtudagur: Kjöt í karrý, kartöflur og hris- gijón Föstudagur: Píta með buffi og grænmeti. Nýtt merki skólans, fáni, bolir og afmælissöngur. í síðasta mánuði hélt Holtaskóli upp á 50 ára afmæli með pomp og prakt að viðstöddu mildu fjöl- menni fyrst með hátíðardagskrá í íþróttahúsinu við Sunnubraut og síðan með glæsilegri afmælis- veislu á hátíðarsal skólans. I tilefni afmælisins var kynnt nýtt merki skólans „Holtasóleyin" sem Jón Ágúst Pálmason hann- aði. Var merkið prentað á boli sem nemendur klæddust á af- mælisdaginn og fáni með merk- inu blakti við hún. Nemendur sungu einnig afmælissöng skól- ans við texta eftir Ásgeir Ama- son, sem er einn af elstu kennur- um Holtaskóla. Textinn var sung- inn við lag eftir fyrrverandi kennara skólans Guðmund Her- mannsson. Jón Ágúst og Guð- mundur eru báðir gamlir nem- endur skólans. Ellert Eiríksson sem var einn af fýrstu útskriftamemendum skól- ans talaði fyrir hönd elstu nem- enda skólans og i lokin kallaði hanntvo nemendur 8.bekkjar, stúlku og dreng, upp til sín til að heilsa upp á hóp af fyrstu út- skriftamemum. Ellert sagði þeim að þau skyldu skoða þetta fólk vel því þannig myndu þau lita út eftir 50 ár og minnti á að þau eldri hefðu einu sinni verið ung. Þar afi ömmu fann. Við skólann hafa starfað 2 skóla- stjórar þeir Rögnvaldur Sæ- mundsson og Sigurður E. Þor- kelsson og héldu þeir báðir ræður af þessu tilefhi. Það vakti athygli hve Qölmennt var í afmælinu og gaman var að sjá hversu margir fyrrum nementiur skólans mættu og heilsuðu upp á gamla skólann sinn. Sumir virtust dreymnir á svip. Þeir skyldu þó ekki hafa verið að rifja upp fyrstu kynni sín af ástinni sem kannski kviknaði einmitt á skólaárum þeirra í Holtaskóla? Eða eins og segir í afmælis- söngnum Fyrir hálfri öld hérna reis skóli I hann gengu pabbi og mamma og einnig hann átti að slgóli hann afi -þar ömmu hann fann. Þeim verður með tregatárum til þess oft hugsað i elli erþau komung að árum œfðu hér lestw á bók. m '• 'Á' ’ \ N \ " L LF.v. Ingvar Guðmundsson og næstur honum Rögnvaldur Kw^jundsson og lengst til hægri Gylfi Guðmundsson, allt ■ "fIfyrruiftfélagar Sigurðar úr Holtaskóla. Á milli þeirra má sjá Éuðfinn Sigurvinsson, Steinþór Jónsson og Eirík Hermannsson, K núverandi skólamálastjóra. IK. -- ♦ jy: Xt t * * Sigurður skólastjóri bfdonjfn skrýddur með|llerti Eiríkssyni, fyrrum bæjarstjóra Reykjanesbæjar en hann var í'.fyrsta útskriftarhópi skólans. Með á myndinni er hluti af elstu nemendum skólans þegar hann byrjaði fyrir 50 árum. 36
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.