Víkurfréttir


Víkurfréttir - 20.03.2003, Side 22

Víkurfréttir - 20.03.2003, Side 22
www.asberg.is Ásberq Faste i g nasaI a Jón Gunnarsson, löggiltur fasteigna- og skipasali Sölumenn: Þröstur Ástþórsson og Þórunn Einarsdóttir Hafnargata 27 • 230 Keflavík • Símar 421 1420 og 421 4288 Psv 471 • Wotfang: asberg@asberg.is Hlíðarvegur 9, Njarðvík. Mjög gott I46m! einbýli með 4 sveínli. og 38m! bílskúr. Eign sem er mikið endurnýjuð innan sem utan. Verð 14.900.000,- Freyjuvellir 14, Keflavík. Gott 126m! einbýli með 36m! bílsk. Parket og flísar á gólfum, rúmgóð herb. og góður staður. Verð 17.500.000. Vesturgata 44, Keflavík. Gott 113m! einbýli með risi hægt að gera herb. 3 svefnh. og 25m! bílskúr. Eign í góðu ástandi, töluvert endumýjað. Verð 13.100.000,- Þórustígur 18, Njarðvík. Góð jarðhæð í tvíbýli með ný- legri eldhúsinnréttingu. Sér inn- gangur. Verð 5.500.000,- Hringbraut 85, Keflavík. Góð 3ja herb. 77m! íbúð á efri hæð með sérinngangi, töluvert endumýjuð, ásamt 43m! bílskúr. Verð 9.500.000,- Smáratún 27, Keflavík. 95m! e.h. með 3 svefnh. og sérin- ngangi. Búið að endumýja skolp og vatnslagnir. Eign á vinsælum stað. Verð 10.200.000,- Faxabraut 6, Keflavík. Góð 2ja herb. 59m! íbúð á neðri hæð í tvíbýli með sér- inngangi. Þakjárn nýlegt. Verð 5.200.000,- Suöurgata 48, Keflavík. 125m! endaparhús á 2 h. með 4 svefnh. Hús endurnýjaðað innan. Laust strax. Tilboð Njarðvíkurbraut 12, Njarðvík. Mjög gott 161m! einbýli á tveimur hæðum með 4 svefh. og 50m! bílskúr. Eign í góðu ástan- di. Verð 14.000.000,- Kirkjuvegur 14, Keflavík. Góð 3ja herb. íbúð á 3. h. í fjöl- býli. Parket og flísar á gólfum. Hagstæð lán áhvílandi. Verð 11.500.000,- Heiðarhvammur 6, Keflavík. Góð 3ja herb. 78m! enda íbúð á 3.h. 1 fjölbýli. Eign í góðu ástandi á vinsælum stað. Verð kr. 8.200.000,- Nónvarða 6, Keflavík. Góð 3ja herbergja íbúð á n.h. í tvíbýli með sérinngangi. Nýtt í eldhúsi og nýlegt parket á stofú og holi. Góður staður. Verð 9.800.000,- Mávabraut 9, Keflavík. 3ja herbergja íbúð á 2. h. í fjöl- býli. Hagstæð lán áhvílandi. Laus strax. Verð 6.600.00,- Rekstur til sölu. Verzlun til sölu á besta stað í bænum, góð velta framundan, rekstur sem gefur mikla mögu- leika. Uppl. á skrifstofu. Pólitíkin Sjá einnig: www.vf.is Tími samstöðu er ruiminn upp! angt er síðan jafn hart hefur verið sótt að Sjálf- stæðisflokknum og for- ystumönnum hans. Nýjar bar- áttuaðferðir sem ekki byggja á málefnalegum skoðanaskiptum hafa verið tekn- ar upp. Sjálf- stæðisflokkurinn hefur aldrei og mun aldrei beita slíkum að- ferðum og svarar því með mál- efnalegum rökfærslum. Ríkis- stjórnir Davíðs Oddsonar hafa umbreytt samfélagi okkar gríðarlega og mörg áratuga gömul baráttumál hafa loks náðst fram. Nægir þar að nefna cinkavæðingu ríkisfyrir- tækja, skattalækkanir, jöfnun atkvæðisréttar og umbætur og aukið frelsi á flestum sviðum þjóðlífsins. Menn uppskera eins og þeir sá Starfið innan stjómmálaflokk- anna er hópvinna. Innan hópsins uppskera menn eins og þeir sá. Því miður em dæmi í íslenskri flokkapólitik að þeir sem ekki sætta sig við eigin uppskem kenna öðmm um og fara i sér- ffamboð. Einkenni slíkra ffam- boða er það að þau njóta mikillar athygli í upphafi en fjara síðan hægt og rólega út. Aðalástæða þessa er sú að ffamboðin em byggð á persónum en ekki grundvallarstefhumálum sem lifa áffam þótt einstaklingar komi og fari. Hagur heildarinnar af slík- um ffamboðum er því oft lítill sem ekki neinn og atkvæðunum mætti oft allt eins henda. Samstaða um frábæran lista er lykilinn Uppstillingamefnd Sjálfstæðis- flokksins í Suðurkjördæmi lauk í fyrra góðu starfi þar sem stillt var upp öflugum lista sem endur- speglar allt kjördæmið og ólíka hópa samfélagsins. Sá tuttugu manna listi var staðfestur með tuttugu atkvæðagreiðslum á fundi kjördæmisráðs flokksins að loknu starfi uppstillingamefhdar. Þar sannaði góð samvinna heild- arinnar sig. Þær staðreyndir að ekki er sæti fyrir alla áhugasama á lista Sjálfstæðisflokksins og sótt er hart að flokknum með nýjum baráttuaðferðum mega ekki verða til þess að sá mikli ár- angur sem náðst hefur á síðustu þremur kjörtímabilum sé í hættu. Samstaða allra Sjálfstæðismanna og áhugasamra um áff amhald- andi batnandi lífskjör er lykilat- riði í kosningabaráttunni sem ffamundan er og á kjördag. Hag- ur heildarinnar en ekki einstakra manna er hér aðalmálið. Brestur í samstöðu Sjálfstæðismanna má ekki vera áframhaldandi vatn á myllu pólitískra andstæðinga. Styðjum Sjálfstæðisflokkinn og tryggjum þannig áfi'amhaldandi ffamþróun og uppbyggingu sam- félagsins. Georg Brynjarsson, Formaður Heimis, félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjanesbæ T fyrir trúverðugleika? að er oft ótrúlegt að sjá hve langt fólk er reiðubú- ið til að teygja niðurstöð- ur skoöanakann- ana. Slíkar kannanir geta verið ágætar svo langt sem þær ná. Þeim ber þó ailtaf að taka með varúð. Það er nefnilega oft þannig að nið- urstöðurnar geta verið ansi hæpnar og túlkun á þeim þar með oft á tíðum eintóm vit- leysa. Skýrasta dæmi sem ég hef séð um þetta, enn sem komið er í kosningabaráttunni, mátti lesa um í nokkrum fjölmiðlum á dög- unum. Þar var fhllyrt að sérffam- boð Kristjáns Pálssonar í Suður- kjördæmi væri komið með sex prósenta fylgi. Að vísu var varinn aðeins hafður á og bent á að skekkjumörk væru stór. Þegar nánar er að gáð, þá eru þau svo stór að sex prósentin hans Krist- ján verða að teljast ansi hæpin. Mér þykir rétt að skoða þetta að- eins nánar, svo fólk geti áttað sig á því að stundum ber að varast fullyrðingar sem eru byggðar á skoðanakönnunum. Umrædd skoðanakönnun var gerð af Fréttablaðinu og er svo sem ekkert nema gott um það að segja. Urtakið var 600 manns og af þeim svöruðu 66,8 prósent, eða 400 manns. Alls búa um 14 prósent kjósenda í Suðurkjör- dæmi. Ef við gefum okkur þá sennilegu forsendu að um hafi verið að ræða slembiúrtak af fólki alls staðar af á landinu þá voru 56 þeirra sem svöruðu bú- settir í Suðurkjördæmi. Sex pró- sent af þessu gefa því að 3,4 kjósendur í Suðurkjördæmi sögðust ætla að kjósa Kristján Pálsson.Frjálslyndi flokkurinn fékk samkvæmt þessum niður- stöðum tveggja prósenta fylgi. Það þýðir að 1,12 kjósandi sagð- ist ætla að krossa við hann á kjördag. Af þessum útreikning- um er ljóst að skekkjumörkin eru svo stór að „niðurstaðan" er ein- tóm della. Hefði viljað svo „vel“ til að fimm aðspurðir segðust ætla að kjósa Fijálslynda flokk- inn, þá hefði hann mælst með níu prósenta fylgi í Suðurkjördæmi. Eg hefði samt ekki tekið mark á því. Hefðu fjölmiðlar slegið því upp, þá hefði ég mótmælt slíkum vinnubrögðum. Augljóst er að þau eru einungis til þess fallin að slá ryki í augu kjósenda. Urtakið er alltof lítið. Mér skilst að bókstafurinn T eigi að standa fyrir trúverðugleika í framboði Kristjáns Pálssonar. Hafi framboð hans staðið á bak við ofangreinda túlkun á sex pró- senta fylgi, þá er ekki hægt að segja að sú kosningabarátta hefy ist með trúverðugum hætti. Magnús Þór Hafsteinsson Varaformaður Frjáislynda flokksins og oddviti lista hans í Suðurkjördæmi Verslunin Sirrý opnar aftur Full búð af nýjum vörum. Sirrý er að opna aftur eftir brun- ann í byrjun mánaðarins. Allt húsnæðið er nýmálað eins og um nýja búð væri að ræöa enda mikil vinna lögð í að endurgera búðina og hafa hana í samskonar eða jafnvel betra ástandi og hún var í. Sirrý býður uppá mikið af góðum íþrótta- merkjum samhliða tískufat- naði, allir ættu að finna eit- thvað fyrir sinn smekk. Opinn framboðs- ftmdur í Sandgerði Sandgerðislistinn stendur fyrir opnum framboðsfundi með fulltrúum allra framboða í Suðurkjördæmi. Fundurinn fer fram á Mamma Mía í Sandgerði þriðjudaginn 25. mars og hefst fundurinn klukkan 20:00. Frummælendur verða: Ami Ragnar Amason, Sjálfstæðisflokki Guðni Agústsson, Framsóknarflokki Kolbeinn Óttarsson Proppé, Vinstri Grænir Kristján Pálsson, Óháð framboð í Suðurkjördæmi Jón óunnarsson, Samfylkingin Magnús Þór Hafsteinsson, Fijálslyndi flokkurinn Eftir framsögur verða fyrirspumir úr sal leyfðar. Fundarstjóri verður Ólafur Þór Ólafsson bæjarfulltrúi í Sandgerði. 22 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU www.vf.is LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.