Jólakvöld - 01.12.1928, Blaðsíða 13

Jólakvöld - 01.12.1928, Blaðsíða 13
Gamalt nýjárskvæði. (Oscar Levertin). Stefán, Herrans hestasveinn hesta sína, fjóra og einn, nýjársnóttu skæra lífsins brunni leiðir að. Lausnarinn bauð honum það. Ljúf er lindin tæra. Þegar klukkan kallar tólf, koma þeir yfir steinlagt gólf allir út á gljána. Hvelfing Jofts er björt og bJá, blikar hver ein stjarnan smá, skín af skörðum mána. Fremstan ástafákinn ber, fegri og skærri en sóJ liann er, búinn brúðkaupstaumum. Beizlið hans er bJómakranz, úr bJöðum rósa söðuJJ hans, ofinn siJfursaumum. Akaft hneggjar hófaglæst hamingjunnar FJuga næst, vön að spretta úr spori. Þráir óþekt undralönd, aftanroðans gullnu strönd, Jjós og Jjóma á vori. Næstur haltrar náramjór neyðarinnar bJeiki jór þreytuskrefum þungum. Hungurdapurt augað er, eftir moði fljpann ber hjarns á hörðum bungum. En sem vofa svört að sjá sorgarinnar bJakkur hjá berum stofni stendur. Ut í bláinn bJínir hJjótt, beygðu höfði starir rótt yfir auðar Jendur. Hinztur gengur grár á fax, grár sem skíma feigðardags, sem er bráðum setztur, — geigvæn eru hóftök hans, sem hrynji moJd á kistu manns — ísgrár HeJjar hestur. Stefán, Herrans hestasveinn, hesta sína, fjóra og einn, lífsvatn drekka Jætur. Helgibirta af himni skín. Herra Jesús, Jíkn oss sýn aJlar nýjársnætur. Magnús Ásgeirsson þýddi.

x

Jólakvöld

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Jólakvöld
https://timarit.is/publication/1214

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.