Ægir

Árgangur

Ægir - 01.08.2015, Blaðsíða 6

Ægir - 01.08.2015, Blaðsíða 6
6 Tímarnir eru breyttir. Líka í sjávarútvegi. Nær væri kannski að orða það svo að tímarnir séu ekki hvað síst breyttir í sjávarútvegi miðað við aðrar atvinnugreinar og þarf í þeim efnum ekki að líta ýkja langt aftur í tímann. Fyrir fáum árum var frystihús í hverju byggðarlagi, svo komu frystitogararnir til sögunnar og þá breyttist margt. Nú er það framleiðsla á ferskum afurðum sem sækir stöðugt á og hún breytir líka „heimsmynd“ sjávarútvegsins á Íslandi. Ferskleiki afurða og tími eru nátengd hugtök og af þeim sökum sjáum við vinnslur sem byggjast á þessum útflutningi færast nær stærstu útflutningspunkt- unum, þ.e. Keflavíkurflugvelli og Sundahöfn. Enn og aftur færir þetta okkur heim sanninn um hversu miklu markaðslögmálið ræður í þró- uninni í þessari grein hér innanlands. Þetta er að sjálfsögðu það sem í daglegu, og stundum allof hátíð- legu, tali er kallað byggðaþróun. Það hvernig samfélagið þróast, byggðirnar sjálfar. Á þróunina getur mannshöndin að sjálfsögðu haft áhrif með ákvörðunum sínum og gjörðum. Þarf ekki að fara marga daga aftur í tímann til að finna ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að- gerðir til styrkingar byggðinni í Grímsey. Ástæðulaust er að ætla ann- að en hún sé tekin í þeim tilgangi að hafa áhrif á þróun, styrkja byggðina, koma í veg fyrir hrun byggðar í þessum útverði okkar í norðri. Grímsey hefur alltaf verið og verður mikilvægur hluti af sjó- sókn okkar. En þá kemur upp í hugann þessi áhugaverða spurning um hvort komi á undan; hænan eða eggið. Ræður sjávarútvegur byggðaþróun og í beinu framhaldi væri þá eðlilegt að velta þeirri spurningu fyrir sér hvort það sé hlutverk þessarar greinar umfram t.d. ferðaþjónustu, svo dæmi séu tekin. Ræður byggðaþróun því hvernig sjávarútvegur þróast? Færri eru væntanlega þeirrar skoðunar en vissulega skiptir sjávarútvegsfyrirtæki máli hvernig innviðir þess samfélags eru þar sem þau starfa. Stærri áhrifavaldur er það sem að framan var nefnt, þ.e. markaðsendi sjávarútvegsins og eins og tilflutningur starfa vegna ferskfiskútflutnings sýna þá er þar á ferðinni hreyfiafl sem miklu getur breytt á skömmum tíma. Og það sem meira er; nokkurn veginn þegjandi og hljóðalaust. Líkast til hefði einhver stjórnmála- maður fengið skömm í sinn hatt ef hann hefði lagt til fyrir nokkrum árum sértækar aðgerðir til að flytja fiskvinnslu nær stæstu útflutn- ingshöfn og -flugvelli landsins. Aukið millilandaflug frá Norðurlandi og Austurlandi kann að breyta þessari mynd á nýjan leik, hver veit. Það sem nefnilega verður seint flutt milli landshluta eru fiskimiðin við landið. Þau munu ekki færast nær Keflavíkurflugvelli og Sundahöfn, hvað sem tautar og raular. Einmitt þess vegna er svo mikilvægt að byggð haldist út um landið til framtíðar. Jóhann Ólafur Halldórsson skrifar Sjávarútvegur og byggðaþróunin R itstjórn a rp istilll Vökvakerfislausnir Vökvadælur, vökvamótorar og stjórnbúnaður Danfoss hf. Skútuvogi 6, 104 Reykjavík, Sími: 510 4100 www.danfoss.is Stjórnbúnaður skipa. Tæknibúnaður sem ætlaður er til notkunar á sjó mætir erfiðustu hugsanlegu skilyrðum. Álag óblíðrar náttúru, miklar hitabreytingar og stöðugur ágangur af söltum sjó, eykur þörf viðskiptavina fyrir áreiðanlegan og skilvirkan búnað. Út gef andi: Athygli ehf. ISSN 0001-9038 Rit stjórn: Athygli ehf. Glerárgötu 24, Ak ur eyri. Rit stjór i: Jóhann Ólafur Hall dórs son (ábm.) Sími 515-5220. GSM 899-9865. Net fang: johann@athygli.is Aug lýs ing ar: Augljós miðlun. Sími 515-5206. GSM 898-8022. Net fang: inga@athygli.is Suðurlandsbraut 30. Reykjavík. Hönnun & umbrot: Athygli ehf. Suðurlandsbraut 30. Reykjavík. Sími 515-5200. Á skrift: Hálfsársáskrift að Ægi kostar 5500 kr. Áskriftar símar 515-5200 & 515-5205 ÆG IR kem ur út 10-11 sinn um á ári. Eft ir prent un og ívitn un er heim il, sé heim ild ar get ið.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.