Ægir - 01.08.2015, Blaðsíða 11
11
Nýlega keypti Ísfell ehf. í Hafn-
arfirði netaverkstæðið Net í
Vestmannaeyjum og mun taka
við rekstrinum um næstu ára-
mót. Fyrir átti Ísfell netaverk-
stæðið Ísnet í Vestmannaeyjum
og verður starfsemi þessara
tveggja verkstæða sameinuð,
að sögn Péturs Björnssonar,
aðal eiganda Ísfells.
Pétur segir tvær megin-
ástæður fyrir kaupunum. Ann-
ars vegar er Net betur staðsett
við höfnina í Eyjum þannig að
hægt er að spóla nótum sem
koma til yfirferðar eða viðgerð-
ar beint í hús í stað þess að í
dag þarf að spretta stórum nót-
um í sundur þegar komið er
með þær til Ísnets, því jafnvel
stærstu vörubílar taka ekki
stærstu næturnar í einni ferð.
„Hin ástæðan er sú að við sem
erum að þjónusta sjávarútveg-
inn þurfum að hagræða alveg
eins og gert hefur verið hjá út-
gerðinni. Það eru ekki margir
áratugir síðan tugir báta voru
gerðir út á nótaveiðar frá Vest-
mannaeyjum, í dag eru þeir 6-7.
Það er því sama þróun í gangi
hjá þjónustufyrirtækjunum.“
Þjónusta Ísfells á 7 stöðum
Pétur segir að uppistaðan í
verkefnum bæði Nets og Ísnets
í Vestmannaeyjum hafi verið
nótavinna þótt öðrum veiðar-
færum hafi að sjálfsögðu einnig
hafi verið sinnt. „Eigendur Nets
vildu minnka við sig enda sumir
komnir á eftirlaunaaldur. Þá lá
beint við að kanna hvort hægt
væri að sameina rekstur þess-
ara tveggja fyrirtækja og endir-
inn varð sá að við keyptum
Net.“ Ísfell ehf. sem var stofnað
1992 er í dag meðal öflugustu
fyrirtækja landsins í veiðarfæra-
þjónustu og í sölu á útgerðar-
vörum. Fyrirtækið er með
starfsstöðvar og netaverkstæði
á 7 stöðum á landinu. „Til að
byrja með unnu hér 3 starfs-
menn en síðan hefur þetta vax-
ið mikið bæði með innri vexti
og með uppkaupum á öðrum
fyrirtækjum þannig að í dag
starfa á milli 60 og 70 manns
hjá Ísfelli víðs vegar um landið.“
Veiðarfæragerð og þjónusta
burðarásinn
Pétur segir að upphaflega hafi
Ísnet fyrst og fremst selt efni til
veiðarfæragerðar. Það breyttist
hins vegar árið 2003 þegar fyrir-
tækið sameinaðist Icedan en þá
fylgdu 4 netaverkstæði með í
kaupunum auk fyrirtækis sem
hafði verið stofnað í Kanada til
að þjónusta íslensk skip sem
stunduðu rækjuveiðar á
Flæmska hattinum. Eftir sam-
eininguna 2003 breyttist fyrir-
tækið og veiðarfæragerð og
þjónusta við veiðarfæri varð
einn af burðarásum starfsem-
innar.
Nýlega var starfsemin í Kan-
ada seld en hins vegar stofnað
nýtt fyrirtæki í Sissimuut á
Grænlandi í samvinnu við
heimamenn sem mun veita
veiðarfæraþjónustu þar í landi.
Aðspurður um skilyrðin í þess-
ari atvinnustarfsemi segir Pétur
þau vera þokkaleg um þessar
mundir. Það hafi orðið miklar
breytingar hjá útgerðinni á síð-
ustu árum og hún sé að færast
á sífellt færri hendur og um
leið og fyrirtækjunum fækkar
stækka þau sem eftir standa.
„Okkar skilyrði sveiflast í takt
við afkomuna í sjávarútvegin-
um. Þegar gengur vel hjá út-
gerðinni er ástandið hjá okkur
líka nokkuð hagstætt,“ segir
Pétur Björnsson.
Pétur Björnsson, aðaleigandi Ísfells.
Vestmannaeyjar
Ísnet og Net í eina sæng
F
réttir