Ægir

Árgangur

Ægir - 01.08.2015, Blaðsíða 23

Ægir - 01.08.2015, Blaðsíða 23
23 Engin íblöndunarefni notuð Hráefni í framleiðsluna er marn- ingur frá fiskvinnslu ÚA á Akur- eyri, fiskhold sem hreinsað er af beingarði þorsks með sérstakri tækni. Arcticus Sea Products framleiðir sem stendur úr 1500 kg af marningi á viku og er framleiðslugeta fyrir hendi til að auka þar við. „Hráefnið sem við vinnum úr er því fyrsta flokks, kælt og kemur beint úr vinnslu ÚA en við tökum marninginn strax inn í vinnslu til okkar, mótum bit- ana og þurrkum eftir að hafa blandað salti í hann til bragð- bætis. Það er eina viðbótarefnið sem við notum, þetta er vara án allra litar- eða íblöndunarefna. Hollari verður þessi vara ekki,“ segir Steingrímur en Arcticus Sea Products er gott dæmi um þann fullnýtingaráhuga sem víða eru merki um í íslenskum sjávarútvegi í dag. Kryddaður bitafiskur! „Auk þess sem við seljum beint í verslanir undir eigin merkjum framleiðum við bitafisk úr marningi fyrir Heilsu ehf., bæði fisk sem er algjörlega án við- bótarsalts og líka bita með líf- rænum kryddum en fyrir þá framleiðslu fengum við frum- kvöðlaverðlaun á nýafstaðinni matvælasýningu hér á Akur- eyri,“ segir Steingrímur en eig- endur Arcticus Sea Products stefna ótrauðir á erlenda mark- aði með bitafiskinn. „Stefnan hefur alltaf verið á útflutning og við teljum okkur eiga mikla möguleika með þær vörur sem við framleiðum í dag. Samhliða því horfum við eftir nýjum tækifærum í framleiðslu fiskafurða fyrir neytendamark- að, bæði hérlendis og erlendis,“ segir Steingrímur en stöðugildi hjá fyrirtækinu eru nú orðin þrjú og mun fjölga með aukinni framleiðslu. Hjalteyri við Eyjafjörð er sögufrægur staður og helst tengdur síldarárunum en í húsum frá þeim tíma hefur Arcticus Sea Products komið starfsemi sinni fyrir. Fyrirtækið réðst í að smíða stóran og öflugan þurrkklefa í vinnslusaln- um á Hjalteyri og má segja að hann sé hjartað í starfseminni. Bitarnir eru um 30 tíma í þurrki. www.isfell.is Sjófatnaður Starfsstöðvar Ísfells og Ísnets: • Ísnet Þorlákshöfn - Óseyrarbraut 28 • Ísnet Vestmannaeyjar - Flötum 19 • Ísnet Húsavík - Barðahúsi • Ísnet Akureyri - Oddeyrartangi • Ísnet Sauðárkrókur - Lágeyri 1 • Kristbjörg Ólafsfjörður - Pálsbergsgötu 1 • Ísfell / Ísnet Hafnarfjörður - Óseyrarbraut 28 • 220 Hafnarfjörður • Sími 5200 500 • isfell@isfell.is

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.