Ægir

Árgangur

Ægir - 01.08.2015, Blaðsíða 17

Ægir - 01.08.2015, Blaðsíða 17
17 að var að springa þegar skutull- inn gengi inn í hvalinn. Byssan var einnig á þann hátt sérstök að hún hvíldi á öxl skotmanns- ins í stafni hvalbátsins. Veiðitímabil Roys og félaga stóð í fimm ár og veiddu þeir um 100 hvali en veiðarnar náðu hvergi nærri því flugi sem Bandaríkjamennirnir höfðu vonast eftir. Ástæðan var fyrst og fremst að ekki tókst að þróa og bæta veiðibúnaðinn nægj- anlega. Áður en veiðum þeirra lauk við landið var danska út- gerðin Det danske Fiskeri- selskab byrjuð á tilraunaveið- um á reyðarhval sem stóðu í fjögur ár og síðasta hluta þessa 10 ára tímabils spreytti sig hér á miðunum hollenska útgerðin Nederlandsche Walvischaart en báðar útgerðirnar prófuðu sig í grundvallaratriðum áfram á líkri tækni og Roys hinn bandaríski hafði þróað. En ekki tókst Dön- unum og Hollendingunum frek ar en Roys að gera hvalveið- arnar við Ísland að alvöru at- vinnuvegi. Fyrsta vélvædda hvalstöð heims á Seyðisfirði Þrátt fyrir að Roys og félaga hans Lilliendahl hafi ekki tekist sem skyldi við veiðarnar þá er það til marks um bjartsýni þeirra á verkefnið að þeir reistu hvalstöð á Vestdalseyri við Seyðisfjörð árið 1865 sem Smári segir stórmerka í iðnaðarsögu Íslendinga. „Þarna var um að ræða fyrstu vélvæddu hvalstöðina í veraldarsögunni og líklega var hún fyrsta vélvædda verksmiðja Íslandssögunnar. Stöðin notaði gufuafl við framleiðsluna og slíkt hafði ekki fyrr verið gert hér á landi, svo heimildir séu um,“ segir Smári en stöðin var nýtt þau ár sem Roys og Lillien- dahl voru hér á landi. „Bygging verksmiðjunnar sýnir þá tröllatrú sem Banda- ríkjamennirnir höfðu á verkefn- inu en bæði veiðitölur á þeirra tímabili, sem og þeim árum sem Danir og Hollendingar voru hér, sýna að héðan hurfu öll þessi fyrirtæki þar sem ár- angurinn í veiðunum var ekki nógu góður.“ Upphafsmaður nútíma hvalveiða Á sama tíma voru fleiri að spreyta sig með nýja tækni til veiða á reyðarhvölum og gekk stórum betur. Í bænum Túns- bergi í Vestfoldfylki í Noregi var maður að nafni Svend Foyn með einkaleyfi á tækni til veiða sem hann hafði sjálfur þróað og er í grunninn sú sem nútíma hvalveiðar byggja á. Enda er Svend þessi fyrir vikið talinn upphafsmaður nútíma hval- veiða. Svend Foyn efnaðist reyndar í upphafi á selveiðum og átti mikinn þátt í uppgangi fæðing- Hvalstöðin á Sólbakka við Önundarfjörð árið 1898. Í bakgrunni má sjá griðarlegan stafla af lýsistunnum.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.