Ægir

Árgangur

Ægir - 01.08.2015, Blaðsíða 13

Ægir - 01.08.2015, Blaðsíða 13
13 dagur í vinnslunni. „Hér er vinna hvern einasta dag og við höfum fjölgað starfsfólki tals- vert frá því sem var, nú starfa hjá okkur 32 á Þingeyri, líkt og við stefndum að þegar við tók- um við rekstrinum,“ segir Rúnar og bætir við að ætlunin sé að halda þeim mannskap í vetur. Verri ytri aðstæður Rúnar segir að rekstrarumhverfi fiskvinnslunnar hafi versnað undanfarna mánuði, krónan hefur heldur verið að styrkjast en afurðir eru að mestu seldar í evrum sem hefur lækkað tölu- vert. Laun í fiskvinnslu hafa hækkað meira en í öðrum sam- bærilegum störfum, sem m.a. kemur í kjölfar nýs ákvæðis um lágmarksbónusa. „Til viðbótar við hækkun lágmarkslauna um 14,5% kemur inn ákvæði um svokallað bónusígildi sem hækkar byrjunarlaun þeirra sem ekki hafa unnið við bónus um önnur 13,7% þannig að heildar- hækkun þeirra er yfir 28%. Evr- an hefur veikst um 9,6% gagn- vart krónu á árinu, þannig að launakostnaður þessara starfs- manna hefur hækkað um 40% á árinu í evrum talið. Launakostn- aður hefur hækkað í þessum rekstri og við finnum verulega fyrir því,“ segir Rúnar. Skekkt samkeppnisstaða Íslenskt sjávarfang er fisk- vinnsla án útgerðar og kaupir sitt hráefni á markaðsverði. „Það er eitthvað vitlaust gefið þegar stórútgerðir með vinnslur geta tekið sitt hráefni inn í vinnslurnar á allt að helm- ingi lægra verði en vinnslur án útgerðar og eru síðan í blóðugri samkeppni um það litla hráefni sem kemur inn á fiskmarkaðina. Ég leyfi mér að efast um að þetta standist samkeppnislög. Heilbrigð samkeppni er af hinu góða en ekki skekkt samkeppni þar sem sumir fá að spila eftir öðrum leikreglum en aðrir“ seg- ir Rúnar. Þó svo að rekstrarumhverfi vinnslunnar hafi heldur versnað á þessu ári þá segir hann að menn séu bjartsýnir. „Við lítum á þetta sem áskorun sem við þurfum að takast á við og ger- um það. Við erum með úrvals- starfsfólk sem hjálpar okkur að takast á við verkefnið auk þess sem við erum í viðskiptum við mjög góðar útgerðir sem tryggja okkur hráefni,“ segir Rúnar að lokum. Íslenskt sjávarfang er í hópi Framúrskarandi fyrirtækja árið 2014. Hér er Rúnar Björgvinsson framkvæmdastóri með viðurkenningarskjalið. Fyrirtækið hefur góðan aðgang að hráefni.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.