Ægir - 01.08.2015, Page 7
FFS-1BB dýptarmælir
Síld 3%
M
akríll 94%
Nýi FFS1-BB dýptarmælirinn frá Furuno, er sá fyrsti sem notar nýja CHIRP tækni til
þess að greina á milli fisktegunda. Mælirinn getur t.d. aðgreint síld og makríl hvort
sem torfan er mikið blönduð eða liggur nálægt botni.
• Fullkominn breiðbands CHIRP dýptarmælir
• Með breiðbandstækninni CHIRP fæst fram áður óþekkt greiningargeta
• Tegundargreining á fisktegundum greinir á milli makríls og síldar
• Viðmiðunargröf sem gefa upp prósentuhlutfall af hvorri tegund fyrir sig í torfu
• Hægt er að uppfæra og aðlaga viðmiðuargröf fyrir tegundir
• Mjög einfalt notendaviðmót, öllum aðgerðum
stjórnað með mús.
Það getur verið vandasamt að greina
makríl nálægt botni á venjulegum
dýptarmælum, en FFS-1BB gerir það
auðvelt með því að sýna mismunandi
fisk í mismunandi lit. Á þessari mynd
má sjá makríl við botn sem blátt endur-
varp og síld gult.
Dýptarmælirinn sendir út breiðbands-
púls „chirp“ á bæði lágtíðni- og hátíðni-
sviði (50 KHz +/-12.5 KHz og 200 KHz
+/-10 KHz). Skjárinn sýnir signal svörun
frá hvoru tíðnisviðinu fyrir sig, en jafn-
framt er skjámynd sem er úrvinnsla úr
hátíðni og lágtíðni svöruninni. Á þeirri
skjámynd er tegundargreiningin sett
fram með mismunandi litasamsetningu
á fisktegundum. Notandinn getur einnig
merkt svæði á skjánum með músinni og
fengið fram mjög nákvæma tegundar-
greiningu fyrir það svæði. Mælirinn birtir
svo kúrfur á skjánum, sem sýna
prósentuhlutfall hverrar tegundar.