Ægir

Årgang

Ægir - 01.08.2015, Side 21

Ægir - 01.08.2015, Side 21
21 vild í þeirra garð og stuðningur í þeim landsfjórðungi. „Andstaðan var aftur á móti miklu meiri á Norðurlandi og Austfjörðum. Ástæðan er án efa fyrst og fremst sú að þegar Norðmenn koma hingað til hvalveiða voru fyrir hátt í 2000 norskir landnótaveiðimenn við síldveiðar á fjörðum á Norður- og Austurlandi. Þessir menn voru gjarnan harðsvíraðir and- stæðingar hvalveiða og byggð- ist afstaða þeirra öðru fremur á svokallaðri hvalrekstrarkenn- ingu, þ.e. þeirri skoðun og trú að hvalur gengndi því hlutverki að reka torfufisk, fyrst og fremst síld, inn á firði og flóa. Í kjölfarið fylgdi svo þorskurinn í ætisleit á grunnslóðinni. Trúin var sú að ef enginn hvalur væri til staðar til að sinna þessu hlutverki þá kæmi ekki síldin og heldur eng- inn þorskur til að veiða. Menn trúðu þessu og það skipti engu máli þó menn á borð við Bjarna Sæmundsson mótmæltu kenn- ingunni af mikilli festu. Umræð- an um þetta var mjög hörð, óvægin og tilfinningarík, bar sumpart sömu einkenni og deilurnar um hvalveiðar nú- tímans þó deiluefnin væru önn- ur,“ segir Smári en það vekur nokkra furðu að umrætt tímabil sem hann skoðar í bók sinni sé svo lítið rannsakað sem raun ber vitni. „Einhverra hluta vegna hefur þessi viðamikla atvinnustarf- semi hér á landi ekki notið mik- illar athygli og virðist eins og ekki hafi mátt fjalla um þetta. Þá ályktun má draga út frá t.d. kennslubókum í sögu. Menn geta svo velt fyrir sér ástæðum þessa og kemur upp í hugann hvort hér sé um að ræða þjóð- ernisviðhorf og að þarna voru útlendingar á ferð. En í öllu falli er hér um að ræða mikilvægan kafla í íslenskri atvinnusögu og merkilegan,“ segir Smári Geirs- son. Hvalskurður á Svínaskálastekk á vertíðinni 1908. Frystigámar / Sala og leiga 10 / 20 og 40 ft. Seljum einnig og leigjum gámahús, geymslugáma og salernishús í ýmsum stærðum og gerðum. Fjöldi sérlausna í boði, sniðnar að þörfum hvers og eins viðskiptavinar. Klettagörðum 5 | 104 Reykjavík | Sími 568 0100 www.stolpigamar.is Hafðu samband 568 0100

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.