Ægir - 01.03.2016, Blaðsíða 17
17
Frystigámar / Sala og leiga 10 / 20 og 40 ft.
Seljum einnig og leigjum gámahús, geymslugáma og salernishús í
ýmsum stærðum og gerðum. Fjöldi sérlausna í boði, sniðnar að
þörfum hvers og eins viðskiptavinar.
Klettagörðum 5 | 104 Reykjavík | Sími 568 0100
www.stolpigamar.is
Hafðu
samband
568 0100
færisins frá botni og láta sjálf-
virkan búnað tryggja rétta fjar-
lægð þótt togað sé yfir ójafnan
botn eða á landgrunnsköntum.
Nýta upplýsingar frá
veiðarfæranemum
Jóhann Sigurðsson verkefna-
stjóri þróunarmála hjá Naust
Marine segir að framhaldsþró-
un kerfisins hafa staðið í eitt og
hálft ár. „Hingað til hefur kerfið
okkar gert mönnum kleyft að
hámarka veiðihæfni trollsins
með því að mæla átak á togvíra
og bregðast við breytingum. Á
síðustu árum hafa hins vegar
komið á markað veiðarfæra-
nemar sem gefa nákvæmari
upplýsingar um legu veiðarfær-
isins og aðrar aðstæður í sjón-
um. Með því að taka þessar
upplýsingar inn í togvindukerf-
ið er til dæmis hægt að stilla
flottroll inn á ákveðið dýpi og
þá heldur kerfið trollinu á því
dýpi. Menn þurfa þá ekki stöð-
ugt að vera að stilla víralengd
út frá breytilegum aðstæðum
og geta í staðinn einbeitt sér að
því að finna fiskinn.“
Trollið látið svífa yfir botninum
Jóhann segir að á síðari árum
hafi menn verið að hverfa frá
því að draga veiðarfærin eftir
sjávarbotninum og sumsstaðar
séu botntrollsveiðar hreinlega
bannaðar vegna rasks sem troll-
in valda. Hann segir að með
nýja sjálfvirka togvindukerfinu
sé hægt að leysa þetta vanda-
mál með því að nota flottrolls-
hlera og láta trollið svífa yfir
botninum í ákveðinni skil-
greindri fjarlægð frá botni,
hvort sem það eru 5 eða 50
metrar frá botni.
„Þá geta menn náð til botn-
lægra tegunda án þess að raska
eða skemma sjálfa veiðislóð-
inni.“ segir Jóhann en prófanir
sem undanfarið hafa verið
gerðar á nýja togvindukerfinu
um borð í tveimur skipum hafa
skilað góðum árangri og segir
hann að stefnt sé að lokapróf-
unum í næsta mánuði. Hann
segir að til að koma til móts við
núverandi viðskiptavini fyrir-
tækisins verði hægt að fá nýju
útgáfuna sem uppfærslu við
eldri togvindukerfi frá Naust
Marine.
Togvindurnar frá Naust Mar-
ine hafa alla tíð verið algjörlega
rafknúnar en nú er að sögn Jó-
hanns í undirbúningi að hanna
samsvarandi búnað fyrir vök-
vaknúnar vindur.
Naust Marine
stóreykur virkni
sjálfvirka tog-
vindukerfisins