Ægir

Volume

Ægir - 01.12.2016, Page 12

Ægir - 01.12.2016, Page 12
12 „Lyktin verður að vera almenni- leg, því sterkari því betra,“ seg- ir Kristján Jón Guðmundsson í Bolungarvík. Hann er að tala um skötu sem hann verkar í fé- lagi við aðra í sínum heimabæ. Hann er með fjórar tunnur stappfullar af skötu. Hún verð- ur tilbúin á fjórum til fimm vik- um. Vel kæst, herramannsmat- ur sem ættingjar og vinir njóta ríkulega. Kristján Jón er fæddur og uppalinn í Bolungarvík. Hann á bátinn Brá ÍS 106, sem hann gerir eingöngu út á strandveið- ar. „Ég réri í 26 daga á síðustu strandveiðivertíð, meira var það nú ekki þar til kvótinn var upp- urinn,“ segir hann, en vertíðin hjá honum hófst í maí og teygðist aðeins inn í ágústmán- uð. „Maður byggir ekki lífsaf- komu sína á þessu,“ segir hann en meðfram strandveiðunum starfar hann hjá rækjuverk- smiðjunni Kampa. „Það er eigin- lega ekki önnur leið en að gera bara út á strandveiðar, verð á kvóta hefur rokið upp úr öllu valdi og á sama tíma fer fisk- verð lækkandi. Það væri óðs manns æði að steypa sér í skuldir með kvótakaupum við þessar aðstæður, ekkert vit í því, þannig að þetta er eina færa leiðin, að stunda strand- veiðar,“ segir Kristján Jón. Skemmtileg árstíðabundin törn Hann sankar að sér hæfilegu magni af skötu, bæði fæst hún á eigin veiðum en ekki síður eru sjómenn á línubátum sem gerðir eru út frá Bolungarvík duglegir að gauka að honum úr sínum afla. Þegar magnið er orðið viðunandi og útlit fyrir að dugi fyrir fjölskyldu og vini er tekið til við að skera börð og raða í tunnur. „Þetta er svona törn, árstíðabundin, nokkuð mikil vinna en skemmtileg,“ segir hann. Kristján Jón og félagar bjóða til veglegrar skötuveislu í des- ember, skömmu fyrir jól, „og þangað kemur fólk af öllum stærðum og gerðum. Þetta er iðulega notaleg og góð stund,“ segir hann. Á Þorláksmessu borðar hann skötu heima með fjölskyldunni. Og það gerir hann af og til yfir árið, enda, „er þetta alltof góður matur til að borða bara einu sinni á ári.“ Gefur skötu út um hvippinn og hvappinn Skata úr tunnum Kristjáns Jón er gefin hingað og þangað. Þannig er árviss skötuveislu haldin á bifreiðaverkstæði í Hafnarfirði þar sem fram er reidd skata frá honum. Heima- menn fá líka fyrir sig og sína. „Það er önnur stemmning hér í minni bæjum, ekki óalgengt að Kristján Jón og félagar bjóða til veglegrar skötuveislu í desember, skömmu fyrir jól, og þangað kemur fólk af öllum stærðum og gerðum. Magnús Sigurjónsson múrari á Bolungarvík skoðar ofan í skötutunnuna og kannar hvort lyktin sé orðin rétt. M a n n lífið

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.